- What: Donald Trump suggests the U.S. may withdraw from NATO.
- Impact: This is a political development with potential implications for international relations.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað til blaðamannafundar klukkan níu á staðartíma í kvöld, eða kl. 1 í nótt á íslenskum tíma. Í viðtali við Reuters segist hann þar ætla að koma því á framfæri að hann sé að íhuga að draga Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu (NATO). Í tilkynningu Hvíta hússins segir að forsetinn muni á fundinum veita mikilvægar upplýsingar um stríðsátökin í Íran. Trump tjáði blaðamönnum í gær að hann telji að stríðinu muni ljúki innan tveggja til þriggja vikna. Átökin hafa staðið yfir í meira en fjórar vikur en upphaflega höfðu bandarísk stjórnvöld áætlað að þau myndu vara í fjórar til sex vikur, samkvæmt ríkisstjórn Trumps. Trump sagði í viðtali við The Telegraph í dag að hann væri alvarlega að íhuga að draga Bandaríkin úr NATO eftir að önnur ríki bandalagsins ákváðu að taka ekki þátt í stríðsrekstri gegn Íran. „Ég hef aldrei verið sannfærður um NATO. Ég hef alltaf vitað að það væri pappírstígur, og Pútín veit það líka.“