Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fækka stöðugildum hjá ríkinu um 1%

Read Full Article →

Í nýrri fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 er boðað að til standi að fækka stöðugildum hjá ríkinu um 200 á árinu 2027, eða sem nemur um 1% af heildarfjölda stöðugilda. Gert er ráð fyrir að sú ráðstöfun leiði til 3,6 milljarða króna sparnaðar árlega. „Um er að ræða hóflega leiðréttingu á hluta þeirrar fjölgunar sem orðið hefur á undanförnum árum, en alls hefur stöðugildum fjölgað um 3.400 frá árinu 2019. Við framkvæmd aðgerðarinnar verður lögð áhersla á að framlínustarfsfólki verði hlíft eftir fremsta megni.“ Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að þessi fækkun stöðugilda muni ekki skerða grunnþjónustu ríkisins. Í umfjöllun um hagræðingaraðgerðir og forgangsröðun segir að tekjur ríkissjóðs verði styrktar „með frekari umbótum á skattkerfinu“. „Áhersla er lögð á að halda aftur af vexti ríkisútgjalda og halda honum vel innan marka stöðugleikareglu, ásamt því að einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur.“ Áætlað er að skuldahlutfall hins opinbera lækki úr 44% af landsframleiðslu árið 2026 í 41% árið 2031. Í fjármálaáætluninni er gert ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með 1,1 milljarðs króna afgangi árið 2027. Gert er ráð fyrir að afkoman batni ár frá ári og verði orðin jákvæð um 34,4 milljarða króna árið 2031.

Share this article