Innlent | mbl | 27.3.2026 | 11:22 „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ Kolbrún Halldórsdóttir og Daði Már Kristófersson. Samsett mynd mbl.is/Kristinn Magnússon/Eyþór. Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Skuldahlutfall ríkisins lækkað Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2018 » Fleiri tengdar fréttir „Við erum náttúrulega bara mjög áhyggjufull yfir þessu,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, BHM, um fyrirhugaðar aðgerðir fjármálaráðherra sem snúa að því að fækka stöðugildum hjá ríkinu um 200, eða 1%, á næsta ári. Fækkunina á stöðugildum tilkynnti Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, á kynningarfundi um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 í gær. Frétt af mbl.is Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Hafa fengið tillögur frá BHM Í samtali við mbl.is segir Kolbrún forsvarsmenn BHM hafa verið í samtali við stjórnvöld að ákveðnu marki. „Við höfum reyndar gagnrýnt þessa ríkisstjórn fyrir það að hafa sniðgengið aðila vinnumarkaðsins þegar kemur að tillögum af þessu tagi. Þau hafa ekki verið mjög dugleg í að eiga við okkur opið samráð.“ Kolbrún segir bandalagið meðvitað um að grípa þurfi til aðgerða miðað við hvernig verðbólga og vaxtastig hafa þróast hér á landi og bætir hún við að ríkisstjórnin hafi fengið ákveðnar hugmyndir frá BHM sem bandalagið telji mun vænlegri til árangurs en að skera niður starfsmannafjölda hjá ríkinu. „En þá erum við auðvitað að tala um að við þurfum að sækja auknar tekjur fyrir ríkissjóð til þess að standa straum af öflugu menntakerfi, heilbrigðiskerfi og velferðarkerfi.“ Frétt af mbl.is Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Telja að það séu tækifæri til að auka tekjur ríkissjóðs Hún segir tillögur BHM hins vegar ekki hafa hlotið náð fyrir augum Daða Más og því telji bandalagið nú að um ákveðna fljótfærni sé að ræða hjá ráðherranum með því að fara fram hjá aðilum vinnumarkaðsins varðandi samráð. Þá virðist sem hann forðist það að ræða tekjuhlið ríkissjóðs. „Við teljum að það séu tækifæri til þess að auka tekjur ríkissjóðs til þess að efla kerfin okkar og við teljum að það sé búið að skera í þessum kerfum sem ég nefndi alveg inn að beini og rúmlega það. Við erum að glíma við verulegan vanda þarna og það þarf að auka útgjöld í þessu kerfi – ekki bara halda sjó – heldur auka útgjöld, vegna þess að kerfið okkar stendur t.d. ekki undir þeirri mannfjöldaviðbót sem hefur orðið á vinnumarkaði.“ Bætir Kolbrún við að sú leið sem fjármála- og efnahagsráðuneytið virðist nú vera að fara á hálfgerðum krísutímum sé langt frá því að vera fagnaðarefni fyrir þá sem fara fyrir heildarsamtökum launafólks. „Við erum bara mjög áhyggjufull.“ „Styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ Aðspurð segir hún að BHM muni eiga beint samtal við Alþingi varðandi framhaldið og bendir hún aukinheldur á að fjármálaáætlunin eigi eftir að fara í gegnum þinglega meðferð. BHM muni taka fullan þátt í því samtali. „Úr því að þær hugmyndir sem við höfum lagt til hafa ekki hlotið náð fyrir augum fjármálaráðherra þá munum við auðvitað fara með þær fyrir þingið og þingnefndir.“ „Ég tek undir með forseta Alþýðusambandsins sem hefur sagt að við munum styðja ríkisstjórnina í því að koma í veg fyrir bruðl með ríkisfé og skera niður þar sem þau telja að sé verið að bruðla með fé en við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi,“ segir Kolbrún að lokum. Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Skuldahlutfall ríkisins lækkað Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2018 » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Heuermann hyggst játa sök „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ Leita af sýslumanni í nýtt embætti Sex tilboð bárust í byggingu hjúkrunarheimilis Beint: Farið yfir árangur í krabbameinsmeðferð Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Heuermann hyggst játa sök 13 með réttarstöðu sakbornings í Höfðatorgsmáli Fólkaflokkurin sigraði í Færeyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Klifraði yfir girðingu og gekk heim Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Heuermann hyggst játa sök „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ Leita af sýslumanni í nýtt embætti Sex tilboð bárust í byggingu hjúkrunarheimilis Beint: Farið yfir árangur í krabbameinsmeðferð Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þú ert alveg á réttri leið“ Trump frestar árásum á íranskar orkustöðvar Geta ekki sagt „full og varanleg“ Fólkaflokkurin sigraði í Færeyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Klifraði yfir girðingu og gekk heim Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“