Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.3.2026 | 12:18 | Uppfært 13:29 „Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“ Daði Már Kristófersson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Samsett mynd mbl.is/Eyþór/Kristinn Magnússon Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 „Kemur gríðarlega á óvart“ „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Skuldahlutfall ríkisins lækkað » Fleiri tengdar fréttir „Það vekur auðvitað mestar áhyggjur að þetta er ekki í samræmi við nein fræði eða svona almennt upplegg um hvernig þú átt að fara í pólitíska stefnumótun. Þetta virðist bara fyrst og fremst byggja á kreddum um að það þurfi að fækka fólki.“ Þetta segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í samtali við mbl.is um áform fjármálaráðherra um að fækka stöðugildum hjá ríkinu um 1%, á næsta ári, eða rúmlega 200 manns. Frétt af mbl.is Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Heyrðu fyrst af áformunum í gær Aðspurð segir Sonja félagið fyrst hafa heyrt af áformunum í gær er Daði Már kynnti fjármálaáætlunina fyrir árin 2027-2031. Hins vegar boðaði hann okkur á fund vegna umræðu um efnahagsaðgerðir, eins og hann hefur fjallað um í fjölmiðlum, fyrir svona rúmum tveimur vikum. „Sem undirbúning fyrir þann fund, af því við höfum auðvitað heyrt það mjög skýrt að það hafi verið svona staðhæfingar sem við teljum vera rangar um að það sé svo mikil fjölgun opinberra starfsmanna, að þá ákvað ég að afhenda honum minnisblað þar sem kemur fram að ríkisstarfsmönnum hefur ekki fjölgað sem hlutfall af fólki á vinnumarkaði undanfarin ár.“ Frétt af mbl.is „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ Eigi ekki að vera sjálfstætt markmið að fækka fólki Sonja segir það ekki geta verið sjálfstætt markmið ríkisstjórnarinnar að fækka ríkisstarfsmönnum. Bendir hún á að ríkisstjórnin tali um, og hafi talað um fyrir kosningar, að hún ætli sér að bregðast við fjársveltum innviðum sem haldi uppi nauðsynlegu öryggi og heilbrigði þjóðarinnar. „Þú gerir það auðvitað ekki með því að vera með sjálfstætt markmið um að það eigi að fækka ríkisstarfsmönnum. Þú verður að velta fyrir þér hvaða þjónustu þú ætlar að veita,“ segir Sonja og heldur áfram: „Það kom hvergi fram í gær hvar ætti að skera niður eða hvaða starfsemi þau væru að líta til. Hann nefnir þarna að þetta eigi ekki að varða framlínustarfsmenn en þeir eru bara mikill meirihluti ríkisstarfsmanna, það er ekki af mörgu öðru að taka.“ „Virðist fyrst og fremst byggja á kreddum“ Þá segir hún það vekja hjá sér mestar áhyggjur að áformin séu ekki í samræmi við nein fræði eða almennt upplegg um hvernig eigi að fara í pólitíska stefnumótun. „Þetta virðist bara fyrst og fremst byggja á kreddum um að það þurfi að fækka fólki.“ Munu óska eftir samtali við fjármálaráðherra Spurð um framhaldið segir Sonja að BSRB muni óska eftir samtali við Daða Má sem og ríkisstjórnina. „Það hefur líka komið fram í máli þingmanna að það virðist ekki einu sinni vera skýr sýn milli þeirra í ríkisstjórninni um hvað þessi boðaða fækkun eigi að fela í sér. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir í viðtali í gær að fækkunin verði fyrst og fremst vegna þess að fólk sé að skipta um starf eða sé að fara af vinnumarkaði vegna aldurs en fjármálaráðherra segir að það verði uppsagnir. Þannig að það er spurning hvort þau séu sjálf sammála um hvað standi til og þá finnst mér óábyrgt að vera að boða svona breytingar af því að það auðvitað hefur áhrif á fólk sem að starfar við að halda samfélaginu gangandi alla daga í mjög krefjandi störfum undir miklu álagi að það sé einhvern veginn verið að boða það að það eigi að fara að segja þeim upp án þess að nokkur viti hvað standi til.“ „Við höfum verið að vekja athygli á því að vegna þess að þjóðin er að eldast og við erum miklu fjölbreyttari heldur en við vorum og líka bara vegna fjölgunar ferðamanna að þá er alveg ljóst að það verður aukin þörf fyrir þjónustu hins opinbera og þar með fjölgun ríkisstarfsmanna, þannig síður getur þetta verið sjálfstætt markmið út af fyrir sig,“ segir Sonja að lokum. Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 „Kemur gríðarlega á óvart“ „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Skuldahlutfall ríkisins lækkað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sigvaldi og Emma Karólína best í 1.deild Styrmir og Rebekka Rut bestu ungu leikmennirnir Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu annað kvöld Spursmál: Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi Daníel Andri og Jóhann Þór bestu þjálfararnir Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þú ert alveg á réttri leið“ Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu annað kvöld Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Klifraði yfir girðingu og gekk heim Sjáðu hvar páskaeggin eru ódýrust Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Sigvaldi og Emma Karólína best í 1.deild Styrmir og Rebekka Rut bestu ungu leikmennirnir Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu annað kvöld Spursmál: Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi Daníel Andri og Jóhann Þór bestu þjálfararnir Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heuermann hyggst játa sök Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu annað kvöld Stórfelld árleg hækkun gjalda Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Klifraði yfir girðingu og gekk heim Sjáðu hvar páskaeggin eru ódýrust Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article