Innlent | mbl | 26.3.2026 | 17:18 Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Skúli Mogensen í dómssal í héraðsdómi. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Landsréttur hefur sýknað sjö kröfuhafa Wow air af kröfum þrotabús félagsins um að rifta greiðslum upp á hundruð milljóna króna sem þeir fengu skömmu áður en félagið fór í þrot. Jafnframt voru Skúli Mogensen og aðrir stjórnarmenn félagsins sýknaðir af skaðabótakröfu sem nam rúmum tveimur milljörðum króna. Í héraðsdómi höfðu kröfuhafar verið dæmdir til að endurgreiða háar fjárhæðir ásamt dráttarvöxtum. Með niðurstöðu Landsréttar er líklegt að þrotabúið verði af yfir milljarði króna. Frétt af mbl.is Stjórnarmenn WOW sýknaðir af 2,6 milljarða kröfu Raunhæfar björgunaraðgerðir Kröfurnar beindust annars vegar að því að fá greiðslur til kröfuhafa afturkallaðar og hins vegar að fá stjórnendur dæmda til að greiða skaðabætur vegna tjóns sem þeir voru taldir hafa valdið. Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri þrotabús Wow air, segir að svo virðist sem Landsréttur hafi komist að niðurstöðu um sýknu á öðrum forsendum en héraðsdómur. Samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti er heimilt að rifta greiðslum ef þær hafa verulega skert greiðslugetu þrotamanns. Héraðsdómur taldi að svo hefði verið, en að mati Sveins Andra virðist Landsréttur hafa horft til lengra tímabils og komist að annarri niðurstöðu. Hann telur jafnframt að Landsréttur hafi litið svo á að raunhæfar björgunaraðgerðir hafi verið í gangi á þeim tíma sem um ræðir og að það hafi haft áhrif á niðurstöðu dómsins varðandi ábyrgð stjórnenda. Vill sækja um áfrýjunarleyfi Sveinn Andri segir allar líkur á því að sótt verði um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna málsins. „Þetta verður notað í gjaldþrotakennslu framtíðarinnar. Þess vegna tel ég mikilvægt að Hæstiréttur taki þetta mál fyrir,“ segir hann. Alls tengjast ellefu mál þessu máli. Dómar féllu í þeim í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 8. nóvember, en aðeins sjö þeirra var áfrýjað. Málin voru höfðuð af þrotabúi Wow air gegn fjölda kröfuhafa, auk Skúla Mogensen og annarra stjórnarmanna félagsins. Einnig komu fimm vátryggingafélög að málunum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kristrún á leiðtogafundi JEF Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Ísland U21 - Eistland U21, staðan er 2:1 Miðjumaður City daðraði við Real Madrid Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Umræðan Seinkum upphafi skóladags Það þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Katla minnir á sig Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Myndskeið: Krefjandi aðstæður á brautinni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Kristrún á leiðtogafundi JEF Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Ísland U21 - Eistland U21, staðan er 2:1 Miðjumaður City daðraði við Real Madrid Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Umræðan Seinkum upphafi skóladags Það þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Reykjanesbrautin er lokuð Myndskeið: Krefjandi aðstæður á brautinni Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Yfirgefin ökutæki torvelduðu snjómokstur Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl