Innlent | mbl | 7.5.2026 | 16:33 Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ Ársæll segir niðurstöðuna geta haft víðtæk áhrif á stöðu embættismanna og stjórnendur ríkisstofnana. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Karítas Setja bókamerki Landsréttur hefur staðfest ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði beiðni Ársæls Guðmundssonar, fyrrverandi skólameistara Borgarholtsskóla, um að leiða vitni fyrir dóm í svokölluðu vitnaleiðslumáli. Ársæll segir niðurstöðuna fela í sér að ráðherrar geti vikið embættismönnum úr starfi á ómálefnalegum forsendum. „Kannski er aðalniðurstaðan að ráðherrar hafa bara alræðisvald og geta beitt þessu valdi ómálefnalega ef þeim dettur í hug,“ segir Ársæll. Frétt af mbl.is Skólameistari kærir úrskurð Standast ekki skoðun Málið hverfist um ákvörðun Guðmundar Inga Kristinssonar, þáverandi menntamálaráðherra, um að auglýsa starf skólameistara Borgarholtsskóla laust síðastliðið haust. Ársæll telur þær skýringar sem gefnar voru um fyrirhugaðar kerfisbreytingar ekki standast skoðun. „Það er náttúrulega engin þörf á þessu,“ segir hann og telur ákvörðunina hafa verið ómálefnalega. Héraðsdómur og síðar Landsréttur töldu hins vegar ekki skilyrði uppfyllt til að heimila vitnaleiðslur yfir þeim 11 einstaklingum sem Ársæll vildi leiða fyrir dómara; Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, Ágústi Ólafi Ágústssyni og Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, aðstoðarmönnum mennta- og barnamálaráðherra, Hreiðari Inga Eðvarðssyni og Sigurjóni Arnórssyni, aðstoðarmönnum félags- og húsnæðismálaráðherra, Kristínu Ólafsdóttur og Ólafi Kjaran Árnasyni aðstoðarmönnum forsætisráðherra, Helgu Kristínu Kolbeins, formanni Skólameistarafélags Íslands, Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur, aðstoðarskólameistara Borgarholtsskóla, og Halli Hrafni Garðarssyni Proppé, formanni nemendafélags Borgarholtsskóla. Ársæll vildi nýta vitnaleiðslurnar til þess að meta grundvöll mögulegrar málshöfðunar gegn ríkinu vegna ákvörðunarinnar um að auglýsa starf hans laust til umsóknar. Frétt af mbl.is Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Rökstuðningur alveg skýr Meðal annars var vísað til þess að ekki hefði verið rökstutt hvað ætti að leiða í ljós með hverju vitni. Ársæll segir það alveg hafa verið skýrt að hann og hans lögmaður hafi ætlað að sýna fram á að ákvörðunin byggði á ómálefnalegum sjónarmiðum. Hann segir niðurstöðuna geta haft víðtæk áhrif á stöðu embættismanna og stjórnendur ríkisstofnana. „Þetta er ekki alveg í takt við vestrænt lýðræði.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Beint: Frambjóðendur ræða um flugvöllinn Afkoma Sýnar umfram áætlanir á fyrsta fjórðungi Hraunar yfir stjóra Tottenham Eldur í Hollandi veldur vandræðum hjá Herjólfi Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þóra og RÚV sýknuð Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ X26 - Borgarafundur Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi ESB upplýst en þjóðin ekki Bílstjóri rútunnar réttindalaus þegar hún valt Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Fór strax að ræða aðildarviðræður Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Beint: Frambjóðendur ræða um flugvöllinn Afkoma Sýnar umfram áætlanir á fyrsta fjórðungi Hraunar yfir stjóra Tottenham Eldur í Hollandi veldur vandræðum hjá Herjólfi Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Stefnir í sögulegt afhroð fyrir Starmer Um 1.500 skip föst í Persaflóa Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi ESB upplýst en þjóðin ekki Bílstjóri rútunnar réttindalaus þegar hún valt Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Fór strax að ræða aðildarviðræður Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“
This article describes a legal ruling in Iceland that establishes a potential administrative threat, where government ministers allegedly have unchecked power to dismiss public officials and state institution directors without substantive justification. The case centers on a former school principal's failed legal attempt to depose ministers and officials as witnesses to challenge his dismissal. The core concern is that this precedent could enable arbitrary, non-substantive personnel actions against public sector employees, posing a systemic risk to institutional governance.