Sjö sóttu um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri sem var auglýst þann 26. febrúar síðastliðinn. Hildigunnur Svavarsdóttir lét af starfi forstjóra eftir að ákveðið var að auglýsa stöðuna. Meðal þeirra sem sóttu um voru Erla Björnsdóttir, settur forstjóri og Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsækjendalistinn er svohljóðandi: Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Erla Björnsdóttir, settur forstjóri Guðjón Hauksson, forstjóri Gunnar Líndal Sigurðsson, verkefnastjóri Hermann Jóhannesson, flugvallastjóri Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri Snjólaug Svala Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri RÚV / Kristófer Óli Birkisson