Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fær milljónir dollara í skaðabætur frá Meta og Google

  • What: Meta and Google ordered to pay damages to a woman for cyberbullying
  • Impact: Social media companies held accountable for harm caused by online harassment
Read Full Article →

Tæknifyrirtækin Meta og Google þurfa að greiða ungri konu milljónir bandaríkjadala í skaðabætur. Hún stefndi þeim fyrir samfélagsmiðlafíkn og segist hafa orðið háð samfélagsmiðlum þegar hún var sex ára. Varð háð YouTube þegar hún var 6 ára Kviðdómur í Los Angeles í Kaliforníu dæmdi fyrirtækin Meta, sem á Facebook og Instagram, og Google, móðurfyrirtæki YouTube, til að greiða tvítugri konu, sem gengur undir nafninu Kaley, samtals sex milljónir dala, rúmlega 765 milljónir íslenskra króna, í skaðabætur. Meta greiðir sjötíu prósent og Google þrjátíu prósent. Kaley segist hafa orðið háð YouTube þegar hún varð sex ára og Instagram þegar hún var níu ára. Fíknin hafi haft ýmis áhrif á heilsu hennar. Við tíu ára aldur hafi hún orðið þunglynd og byrjað að skaða sjálfa sig. Hún greindist með líkamsskynjunarröskun og félagsfælni á unglingsaldri sem hún segir tengt samfélagsmiðlafíkninni. „Þótt ekki séu nema fyrir eiginleika sem kynda undir fíkn, þá má gera þessi fyrirtæki ábyrg. Það eru gríðaralvarleg skilaboð til þessara fyrirtækja,“ sagði Mark Lanier, lögmaður Kaley, eftir að dómurinn var kveðinn. Tæknifyrirtækin eru ósammála honum og hyggjast kanna áfram möguleika sína, meðal annars á áfrýjun. Minnir á lögsókn gegn stóru tóbaksframleiðendunum Málið er eitt fjölmargra af þessu tagi sem er fyrir dómstólum í Bandaríkjunum. Á þriðjudag var Meta dæmt til að greiða 375 milljónir dala , rúmlega 46 milljarða króna, í bætur fyrir vísvitandi blekkingar um öryggi samfélagsmiðla fyrirtækisins. Forseti Íslands hefur vakið máls á þessu og vill að enn meira sé gert til að draga samfélagsmiðlafyrirtæki til ábyrgðar. Fjölmargt ungt fólk hafi þegar orðið fyrir skaða. Foreldrar sem segja börn sín hafa þjáðst af samfélagsmiðlafíkn söfnuðust saman fyrir utan dómshúsið í Los Angeles. Þau segja dóminn viðurkenningu á áralangri baráttu. „Við erum eiginlega orðlaus og eigum erfitt með að lýsa því hvernig okkur leið að vera í dómsal og heyra niðurstöðu kviðdómsins. Það var algjör staðfesting á því sem við höfum sagt í mörg ár. Þetta snýst ekki um einhverja viðskiptaákvörðun. Það er hægt að vera réttu megin og röngu megin við línuna, þeir eru röngu megin,“ sagði Julianna Arnold. Málaferlin þykja minna á lögsókn gegn stóru tóbaksframleiðendunum í lok síðustu aldar, þar sem einblínt var á skaðsemi þess að reykja og hversu mikið fyrirtækin vissu um hve skaðlegt það væri.

Share this article