Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 31 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Vatnslaust í Hafnarfirði þegar dæla sló út Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Vatnslaust hefur verið í Hafnarfirði í um hálftíma eftir að það sló út í dælustöð. Dælurnar eru komnar aftur í gang og ættu íbúar að fá vatn aftur innan skamms, samkvæmt upplýsingum frá Veitum. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Kosningarnar snúast meðal annars um að skapa framtíð sem togar fólk heim Kosningarnar í Færeyjum í dag snúast meðal annars um að skapa framtíð sem togar fólk aftur heim, segir fyrrverandi formaður Vestnorræna ráðsins. Útlit er fyrir að flokkur lögmannsins tapi fylgi. Fyrir 58 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist KK fagnar 70 ára afmæli með tónleikum Skólabræðurnir Kristján Kristjánsson og Haukur Holm hittust í Háskólabíó þar sem sá fyrrnefndi fagnar 70 ára afmæli með tónleikum. Sá síðarnefndi stendur einnig á tímamótum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fær milljónir dollara í skaðabætur frá Meta og Google Bandarísk kona sem stefndi tæknirisunum Meta og Google fyrir samfélagsmiðlafíkn fær milljónir dollara í skaðabætur. Foreldrar barna með samfélagsmiðlafíkn segja dóminn viðurkenningu á áralangri baráttu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjargaði deginum að fólk fylgdi tilmælum Stórhríðin sem gekk yfir landið í dag gekk að mestu áfallalaust fyrir sig, enda fóru flestir að tilmælum almannavarna um að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leikskólar Áfram í starfi í sex vikur þrátt fyrir grun um brot Lögreglan á Akureyri rannsakaði í tvígang meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á Tröllaborgum gegn barni og felldi niður í bæði skiptin. Starfsmaðurinn hélt áfram störfum í sex vikur og fræðsluyfirvöld töldu ekki tilefni til að upplýsa foreldra. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Öxnadalsheiði opnuð Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Öxnadalsheiði var opnuð klukkan sjö. Gul viðvörum fellur úr gildi fyrir Norðurland eystra klukkan átta. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekkert sem bendir til tengsla við Hamas eða hryðjuverkasamtök Ekkert hefur komið fram í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hingað til sem bendir til þess að sakborningar í Höfðatorgsmálinu svokallaða hafi tengsl við Hamas eða hryðjuverkasamtök. Þröngur hópur rannsakenda hefur aðgang að gögnum málsins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla rannsakar atvik þar sem ekið var á björgunarsveitarmann Björgunarsveitir eru slegnar eftir að ökumaður ók á björgunarsveitarmann við lokunarpóst á Reykjanesbraut í dag. Vitað er hver maðurinn er og lögregla rannsakar atvikið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Lést eftir að barnabílstóll brotnaði í hörðum árekstri Hálka og snjóþekja á vegi eru orsök þess að fólksbíll rann í veg fyrir rútu í Borgarfirði í fyrra, með þeim afleiðingum að stúlka á öðru ári lést. Barnabílstóll stúlkunnar brotnaði í árekstrinum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Þingið samþykkir umfangsmikinn efnahagspakka til að bregðast við áhrifum stríðsins Umfangsmikill aðgerðapakki til að bregðast við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum var samþykktur í spænska þinginu í dag. Meðal annars verður virðisaukaskattur lækkaður á eldsneyti og gas auk þess sem bændur og fleiri fá beinan stuðning. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Sjö sóttu um forstjórastöðu á SAk Þorgils Jónsson Sjö sóttu um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri sem var auglýst þann 26. febrúar síðastliðinn. Hildigunnur Svavarsdóttir lét af starfi forstjóra eftir að ákveðið var að auglýsa stöðuna. Meðal þeirra sem sóttu um voru Erla Björnsdóttir, settur forstjóri og Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsækjendalistinn er svohljóðandi: Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Erla Björnsdóttir, settur forstjóri Guðjón Hauksson, forstjóri Gunnar Líndal Sigurðsson, verkefnastjóri Hermann Jóhannesson, flugvallarstjóri Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri Snjólaug Svala Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist McCartney gefur út nýtt lag þrungið minningum frá Liverpool fyrir daga Bítlanna Breski tónlistarmaðurinn Paul McCartney hefur gefið út nýtt lag og boðar nýja plötu í maílok. Hann kveðst aldrei áður hafa verið jafneinlægur sjálfum sér, platan verði tímaferðalag um Liverpool æsku hans og hinna Bítlanna. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Þetta eru liðin sem Ísland mætir í undankeppni EM 2028 Í dag verður dregið í riðla í undankeppni Evrópumóts karla í handbolta 2028. Ísland endaði í riðli með Eistlandi, Úkraínu og Serbíu. Þá er einnig ljóst hvernig leiðin verður hjá Degi Sigurðssyni og Alfreð Gíslasyni. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíuleikar Trans konur fá ekki að keppa í kvennaflokki á Ólympíuleikunum Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, tilkynnti í dag nýja stefnu varðandi þátttöku trans kvenna í keppnum á vegum nefndarinnar. Þátttökuréttur í kvennaflokki mun nú byggja á genaprófi sem keppendur þurfa að taka einu sinni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Leiðtogar Íslands, Noregs og Finnlands vilja enn auka í stuðning við Úkraínu Finnlandsforseti og forsætisráðherrar Íslands og Noregs eru sammála um að brýnt sé að halda áfram stuðningi við Úkraínumenn. Leiðtogafundur JEF – Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar stendur yfir í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál „Okkur þykir þetta grafalvarlegt mál“ Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir greinilegt að keyra eigi frumvarp um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna hratt í gegn. Hún segir miður að áformin séu klædd í búning mannauðsstjórnunar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hægt að koma í veg fyrir 40% krabbameina Krabbameinstilfellum á eftir að fjölga til muna á næstu árum ef að líkum lætur. Stór hluti krabbameina er lífsstílstengdur og með réttum forvörnum er hægt að koma í veg fyrir 40% tilfella. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fjármálaáætlun: Stefna að 34 milljarða afgangi 2031 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti í dag fjármálaáætlun fyrir næstu fimm ár. Hann sagði SAMANTEKT Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Kvíðir því að fylgjast með næstu atvinnuleysistölum Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis segir félagsmenn vera svartsýnni á atvinnuhorfur en áður. Hún telur að færri komi hingað til lands vegna efnahagsástands og óvissu. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Stormað í gegnum útgáfu vikunnar Að venju er af nægu að taka í nýrri íslenskri tónlist þessa vikuna og meðal þeirra sem bjóða upp í dans eru Þormóður, Maron Birnir og Alaska 1867, Birnir, Flott og Hreimur. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Hvaða nöfn nýbura voru vinsælust á síðasta ári? Matthildur og Birnir voru vinsælustu eiginnöfn nýfæddra barna sem fæddust hér á landi á síðasta ári. Alls voru börnin 4.439 talsins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Líf áfram í efsta sæti Sjálfstæðisflokks á Akranesi Líf Lárusdóttir, formaður bæjarráðs á Akranesi, verður áfram í efsta sæti flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Tvær breytingar á íslenska hópnum Búið er að tilkynna íslenska landsliðshópinn í handbolta fyrir leiki í undankeppni EM. Harpa María Friðgeirsdóttir kemur inn í hópinn. Thea Imani Sturludóttir er meidd og fer út. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stúlkan fundin Þorgils Jónsson Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er komin í leitirnar. Fréttin var uppfærð. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Mette Frederiksen ræðir við flokksleiðtoga á morgun Mette Frederiksen hefur boðað leiðtoga þeirra stjórnmálaflokka sem hún vill starfa með til stjórnarmyndunarviðræðna á morgun. Hún fundar einnig með Venstre og Íhaldsflokknum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Áfall yfir morgunkaffinu Daði Már Kristófersson segir að það hafi verið nokkuð áfall að lesa uppsagnarbréf tileinkað honum yfir morgunkaffinu. Það breyti þó í engu fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Fjórir íslenskir höfundar tilnefndir til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Árstíðarverur og Skólastjórinn eru á meðal þeirra 13 bóka sem tilnefndar eru til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Verðlaunin verða veitt í Helsinki í október. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Sennilegt að stýrivextir hækki frekar Nýjustu verðbólgutölur ýta undir að Seðlabankinn hækki stýrivexti frekar, segir Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Verðbólga er nú 5,4%. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Veiðiskipin lóna upp í ölduna og halda sjó í óveðrinu Nokkur veiðiskip lóna upp í veðrið út af Reykjanesi, hafa tekið upp veiðarfæri og bíða eftir að lægi. Stýrimaðurinn um borð í Guðmundi í Nesi segir að það væri kæruleysi að fara út á dekk. Vindmælirinn í skipinu mældi í morgun hviður upp í 35 m/s. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Evrópusambandið hjólar í klámsíður og Snapchat fyrir brot á reglum um barnavernd Klámsíður á borð við Pornhub koma sér hjá því að hindra að börn geti skoðað klámfengið efni á heimasíðum þeirra. Þetta sýna bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í dag. Rannsókn á Snapchat er einnig hafin. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Atvinnuleysi var 7,1% í febrúar Í vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands mælist árstíðarleiðrétt atvinnuleysi 7,1%, sem er aukning milli mánaða. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Viktor Bjarki um A-landsliðið: „Auðvitað er ég tilbúinn“ Viktor Bjarki Daðason, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins FCK, varð í vetur einn yngsti markaskorarinn í sögu Meistaradeildarinnar. Hann spilar með U21 árs liðinu í landsliðsglugganum sem