Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Þrjú útköll vegna veðurs í Hafnarfirði Brynja Dögg Friðriksdóttir Hafnarfjarðarhöfn í roki, horft yfir á Norðurbakkann. RÚV / Ragnar Visage Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bárust þrenn útköll vegna veðursins í kvöld. Útköllin voru öll í Hafnarfirði vegna hluta sem höfðu fokið eða losnað vegna veðurs, samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn Slökkviliðsins. Einn dælubíll sinnti þessum verkefnum og eru þau yfirstaðin. Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Falinn gjóður sigurvegari Músíktilrauna Alls kepptu 11 hljómsveitir í undanúrslitum í Músíktilraunum í ár og einstaklingsverðlaun voru veitt í átta flokkum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ásrún Mjöll leiðir lista VG og óháðra í Múlaþingi Ásrún Mjöll Stefánsdóttir leiðir lista Vinstrihreyfingarinnar– græns framboðs og óháðra í Múlaþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Sitjandi oddviti flokksins skipar annað sæti listans. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Árið sem Páll Óskar breytti Eurovision Í fyrsta þætti af Góðum Íslendingum var rifjað upp árið sem Páll Óskar breytti Eurovision-söngvakeppninni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Blindir og sjónskertir heimsóttu Veiðisafnið á Stokkseyri Það var góð stemning á Veiðisafninu á Stokkseyri þegar stofnandi safnsins tók á móti félagsmönnum Blindrafélags Íslands í dag. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Hildur Vala, Sóli Hólm og Frikki Dór taka lagið Upphafsatriði skemmtiþáttanna Góðir Íslendingar var upprifjun á mörgum helstu Eurovision-slögurum Íslendinga með þeim Hildi Völu, Sóla Hólm og Friðriki Dór. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Misbrestir barnaverndar Reykjanesbæjar nái til nærri allra þátta starfseminnar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála gerði 25 alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð barnaverndar Reykjanesbæjar. Forstjóri stofnunarinnar segir misbrest af þessu tagi geta haft áhrif á börnin til lengri tíma. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Rúm 28% kvenna í Evrópu beittar ofbeldi – Samfélagið þarf að breytast og gerendur að sæta ábyrgð Tíðni líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis gegn konum og stúlkum í nánu sambandi hefur minnkað sáralítið á heimsvísu síðustu áratugi. Teymisstjóri Bjarkarhlíðar segir samfélagið þurfa að breytast og gerendur að taka ábyrgð. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti 32 liða úrslitin taka á sig skýrari mynd Átta leikir fóru fram í dag í annarri umferð bikarkeppni karla í fótbolta og eru 32 liða úrslitin farin að taka á sig skýrari mynd. Þau verða leikin um páskahelgina og verða fimm leikir sýndir beint á rásum RÚV. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Alvarleg staða á Hólum í Hjaltadal Myglaðar byggingar, holóttir vegir og illa hirtar lóðir valda íbúum á Hólum í Hjaltadal verulegum áhyggjum. Ríki og sveitarfélag benda hvort á annað og óvissa er um framtíð þessa sögufræga staðar. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Sund Snorri Dagur náði lágmarki fyrir EM Íslandsmótið í sundi í 50 metra laug er haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Snorri Dagur Einarsson náði í dag lágmarki inn á Evrópumótið sem haldið verður í París í ágúst. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Árneshreppur og Kaldrananeshreppur sameinast Sameining Kaldrananeshrepps og Árneshrepps var samþykkt í báðum sveitarfélögum í dag. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Haukakonur byrja úrslitakeppnina á sigri Hans Steinar Bjarnason Haukar unnu KA/Þór 27-24 í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni úrvalsdeildar kvenna í handbolta í kvöld. KA/Þór var yfir í hálfleik, 11-13. Jafnt var 18-18 þegar tíu mínútu voru liðnar af seinni hálfleik en þá náðu Haukakonur forystu sem þær létu ekki af hendi. Vinna þarf tvo leiki til að komast í undanúrslitaeinvígi gegn ÍBV. Haukakonur byrja úrslitakeppnina á sigri gegn KA/Þór. RÚV / Mummi Lú Valur og ÍBV sitja hjá í fyrstu umferð. Fyrr í dag vann Fram sigur á ÍR, 23-27. Sigurvegarinn úr því einvígi mætir deildarmeisturum Vals í undanúrslitum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Taka verði mið af þeim sem hafa minnst á milli handanna Formaður Eflingar ræddi fjármálaáætlun áranna 2027-2031 í Vikulokunum á Rás 1. Hún segir hvorki hið opinbera né Samtök atvinnulífsins hafa staðið við gefin loforð við gerð kjarasamninga vorið 2024. Þó séu enn tækifæri til að leita lausna. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Orri Steinn skoraði tvö mörk í jafntefli gegn Kanada Íslenska karlalandsliðið í fótbolta gerði 2-2 jafntefli við Kanada í vináttulandsleik í Torontó í kvöld. Orri Steinn Óskarsson sneri aftur eftir langa fjarveru og skoraði bæði mörk Íslands sem var 2-0 yfir í hálfleik. Ísland mætir Haítí á þriðjudag. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Yfir ein milljón manna á flótta í Líbanon Sameinuðu þjóðirnar vara við því að Líbanon sé á barmi mannúðarkrísu. Einn af hverjum fimm er á flótta. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Táknmálstúlkaðar fréttir í beinni útsendingu Sjónvarpsfréttir eru táknmálstúlkaðar í beinni útsendingu hér á vefnum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögmaður Quang Le sakar lögregluna um að mismuna fólki eftir uppruna Lögreglan réðst inn í tvær íbúðir í Reykjavík í gærmorgun og handtók tvo fjölskyldumeðlimi Quang Lés, vegna gruns um peningaþvætti. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna Snjóflóðið í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði í dag féll á hóp vélsleðamanna. Einn lenti í flóðinu en komst sjálfur undan. Lögreglan hvetur þá sem hyggja á fjallaferðir til þess að gæta að sér. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Skíði Gauti tvöfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum Gauti Guðmundsson er tvöfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum eftir að hann tryggði sér sigurinn í stórsvigi á skíðamóti Íslands í dag. Ólympíufarinn Sonja Lí Kristinsdóttir varð Íslandsmeistari kvenna. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Framkonur unnu fyrsta leikinn í úrslitakeppninni Hans Steinar Bjarnason Úrslitakeppnin í úrvalsdeild kvenna í handbolta hófst í dag. Fram vann fjögurra marka útisigur á ÍR í Breiðholti, 23-27 og hefur þar með tekið 1-0 forystu í einvígi liðanna. Vinna þarf tvo leiki til að komast í undanúrslitaeinvígi gegn Val. Fram er einum sigri frá því að komast í undanúrslitaeinvígi gegn Val. Mummi Lú Fram varð í 4. sæti í deildarkeppninni en ÍR í 4. sæti. Í hinu einvíginu mætast Haukar og KA/Þór sem urðu í þriðja og sjötta sæti deildarkeppninnar. Valur og ÍBV sitja hjá í fyrstu umferð. Valskonur eru deildarmeistarar og ÍBV varð í öðru sæti. Liðin eiga þó inni frestaðan deildarleik sem spilaður er í dag. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Fundu mann sem var leitað eftir að snjóflóð féll í Ólafsfirði Snjóflóð féll í Ólafsfirði í dag. Flóðið féll utan byggðar. Einn barst með flóðinu og var leitað í fyrstu en hann er nú kominn í leitirnar heill á húfi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Sérstaða Íslands í Norður-Atlantshafi geti nýst öðrum ríkjum Forsætisráðherra segir samhæfingu Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar JEF vera mikilvæga til að stemma stigu við þeirri ógn sem stafi af Rússlandi. Leiðtogafundur viðbragðssveitarinnar fer fram á Íslandi í fyrsta sinn á næsta ári. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Styður þingályktunartillögu um bann við hylmingu andlits heilshugar Þingflokksformaður Miðflokksins segir ekkert hægt að lesa í það að hún sé ekki á meðal flutningsmanna þingsályktunartillögu um bann við hylmingu andlits á almannafæri. Hún styðji tillöguna heilshugar. 28. mars 2026 kl. 14:04ERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Flýtur Wall Street enn og aftur sofandi að feigðarósi? Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur keyrt verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og hlutabréfamarkaðir um allan heim nötra. Þessir atburðir hafa dregið athyglina frá annarri undirliggjandi ógn sem ekki hefur farið jafn hátt en gæti valdið miklum usla. 28. mars 2026 kl. 14:00INNLENDAR FRÉTTIR Veður Ökumenn hvattir til að vera ekki á ferðinni Óvissustig tekur gildi á vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu síðdegis í dag vegna vonskuveðurs. Gul viðvörun er víða á milli klukkan sex og tíu í kvöld. Lögregla hvetur ökumenn til að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir. 28. mars 2026 kl. 13:22INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Rúður brotnar og víni hnuplað í Vesturbænum Brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 107 í Vesturbænum í morgun. Samkvæmt eiganda staðarins braut þjófurinn tvær rúður og tók nokkrar vínflöskur. Innbrotið er komið á borð lögreglu. 28. mars 2026 kl. 13:16ÍÞRÓTTIR Sund Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins Boðsundssveit Sundfélags Hafnarfjarðar stórbætti Íslandsmetið í 4x200 metra skriðsundi á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í sundi í 50 metra laug í gærkvöld. Þá náðu fimm sundmenn lágmörkum á Evrópumeistaramótið í sumar. 28. mars 2026 kl. 13:13INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekið á mann í Þrengslum Maður varð fyrir bíl í Þrengslum á Suðurlandi í dag. Maðurinn hafði sjálfur lent í vandræðum vegna hálku og stóð fyrir utan bíl sinn þegar annar bíll ók á hann. Slysið er ekki talið alvarlegt. 28. mars 2026 kl. 13:00MENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Silfurgengið: Vel heppnuð bók sem gæti kveikt ættfræðiáhuga Gagnrýnendur Kiljunnar voru sammála um að ný ungmennabók Brynhildar Þórarinsdóttur gæti náð vel til fólks á öllum aldri. Í bókinni fær unglingsstúlka áhuga á sögu formæðra sinna þegar hún fær gamla silfurnælu í afmælisgjöf frá ömmu sinni. 28. mars 2026 kl. 12:32INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Segir fulla ástæðu til að skoða breytingar á skólakerfinu Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga á von á að funda með Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um tillögur hennar að breytingum á skólakerfinu. Inga vill fjölga kennsludögum og kennslustundum. 28. mars 2026 kl. 12:32ERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Rannsaka hvort Sephora beini markaðssetningu að börnum Yfirvöld á Ítalíu rannsaka hvort snyrtivörufyrirtæki