Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hríðarveður á suðvesturhorninu í fyrramálið

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hríð­ar­veð­ur á suð­vest­ur­horn­inu í fyrra­mál­ið Brynjólfur Þór Guðmundsson Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hríðarveðurs á Suðurlandi og við Faxaflóa frá klukkan níu í fyrramálið til eitt eftir hádegi. Hvöss suðaustanátt með snjókomu og skafrenningi verður þá ríkjandi. Lítið skyggni verður á köflum, einkum á Hellisheiði, í Þrengslum, á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Hætt er við að samgöngur fari úr skorðum. Vindhviður geta farið í kringum 30 metra á sekúndu við fjöll við Faxaflóa. Gular viðvaranir morgundagsins. Veðurstofa Íslands Fyrir 2 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Bróðir Mar­grét­ar Löf: „Ekki senda fólk heim til kval­ara síns“ Bróðir Margrétar Löf telur að koma hefði mátt í veg fyrir að Margrét banaði föður þeirra, Hans Löf, í fyrra. Hann lýsir deginum þegar Margrét var handtekin og upplifun sinni af málinu. Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Óvíst hversu margir flug­far­þeg­ar hafa orðið fyrir áhrif­um Starfsmenn Úrvals Útsýnar aðstoðuðu viðskiptavini um helgina vegna ferðalaga til og frá Mið-Austurlöndum. Forstjórinn segir ekki hafa þurft að fella niður pakkaferðir. Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Betri sveit kynnir fram­boðs­lista Nýtt framboð sem sprettur upp úr hópi sumarhúsaeigenda í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur kynnt framboðslista sinn. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Eldur í iðn­að­ar­hverfi í Hafn­ar­firði Eldur kviknaði á neðri hæð iðnaðarhúsnæðis við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag. Slökkvistarf gengur vel og slökkvilið hefur náð yfirhöndinni, að sögn varðstjóra. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Veður „Get þá í versta falli skrið­ið heim“ Bálhvasst er orðið sums staðar á Austfjörðum og bylur er á Borgarfirði eystra. Appelsínugular viðvaranir tóku gildi klukkan eitt á Austurlandi og Austfjörðum. Sveitarstjórinn í Múlaþingi bjó sig undir veðrið og er með kuldagallann í bílnum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Þórey Anna ólétt og dregur sig úr lands­lið­inu Einar Örn Jónsson Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur dregið sig út úr landsliðshópi kvennalandsliðsins í handbolta fyrir komandi leiki gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. Þórey Anna er ólétt og leikur ekki handbolta meira á næstunni. Sonja Lind Sigsteinsdóttir, leikmaður Hauka, kemur í hennar stað. Þórey Anna varð bikarmeistari með Val á laugardag og það var lokaleikur hennar í bili. Hún á 55 A-landsleiki að baki og mörkin eru 90. Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum á miðvikudag og svo ytra á sunnudag. Fyrri leikurinn er sýndur beint á RÚV 2 og sá síðari á RÚV. Ísland er neðst í undanriðlinum og mætir Færeyjum og Portúgal í lokaleikjunum í apríl. Þórey Anna Ásgeirsdóttir Imago Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Grænland Ætla að senda sjúkra­skip­ið þrátt fyrir and­mæli Bandaríkin eru staðráðin í að senda sjúkraskip til Grænlands þrátt fyrir að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafa afþakkað heilbrigðisaðstoð. Sérfræðingar telja að skipið myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Ís­lend­ing­ur í Barein: „Þetta er bara skelfi­legt“ Íslensk kona sem býr í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Sírenuvæl sé á tveggja tíma fresti sem haldi fyrir þeim vöku. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lögðu hald á 5.000 glös með ólög­leg­um pept­íð­um á Ís­landi Íslensk yfirvöld hafa lagt hald á um 5.000 glös með ólöglegum peptíðum. Allt efnið kom hingað með póst- og hraðsendingum frá Kína. 30 ríki tóku þátt í sameiginlegum aðgerðum gegn viðskiptum og innflutningi á ólöglegum lyfjum. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mikill varn­ar­leik­ur en okkur finnst það skemmti­legt Kvennalandslið Íslands í fótbolta fær vægast sagt vegleg verkefni í fyrstu tveimur leikjunum í undankeppni HM 2027. Ísland mætir heimsmeisturunum á morgun og svo Evrópumeisturunum á laugardag. Sveindís Jane Jónsdóttir óttast ekki andstæðingana. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Minn­ast Davíðs Odds­son­ar: „Einn áhrifa­mesti stjórn­mála­mað­ur í sögu lýð­veld­is­ins“ Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, lést á heimili sínu í gær 78 ára að aldri. Samferðafólk Davíðs minnist hans sem áhrifamikils stjórnmálamanns og sterks leiðtoga. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Það er í tísku að vera að svelta sig, hjá stúlk­um“ Samfélagsmiðlar, athugasemdir um líkamsþyngd og ofuráhersla á útlit hefur ýtt undir mikla fjölgun átröskunartilfella undanfarið hjá ungum stúlkum, að mati næringarfræðings. Hún segir þróunina vera ógnvænlega. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Margir vegir lok­að­ir vegna hríð­ar­veð­urs Vegir víða á Austurlandi og Norðausturlandi hafa lokast vegna hríðarveðurs sem gengið er inn yfir austanvert landið. Veðrið á enn eftir að versna austast. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Þetta gerist ekki mikið stærra“ Nýliðinn Birta Georgsdóttir er klár í slaginn gegn Spánverjum. Íslenska landsliðið í fótbolta mætir þessu besta liði heims í fyrsta leik sínum í undankeppni HM 2027. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Tugir falln­ir í Líban­on og ráðist á skrif­stofu Netan­ja­hús Átökin í Miðausturlöndum hafa breiðst enn frekar út. Rauði hálfmáninn segir að 550 hafi verið drepnir í Íran síðan árásir hófust. Íranski herinn gerði í morgun árásir vítt og breitt um heimshlutann, meðal annars á skrifstofur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Ísraelsher hefur gert þungar árásir á Hezbollah-samtökin í Líbanon og tugir eru sagðir hafa verið drepnir. Bandarískar herþotur hafa hrapað í lofthelgi Kúveit. Ekkert mannfall varð. Árásir voru gerðar á breskar herstöðvar á Kýpur. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heldur blaðamannafund klukkan 13:00 FRÉTTAVAKT Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Þetta var svona hjóna­band sem var fyrir fram ákveð­ið“ „Það var búið að segja mér að ég ætti að eignast vinkonu í haust,“ segir Björk sópransöngkona um kynni hennar og Þóru víóluleikara. Þeim varð fljótt vel til vina og hafa starfað saman í um áratug. Þær halda tónleika í Salnum um helgina. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Spáð brjál­uðu veðri fyrir austan Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir vegna hríðarveðurs á austanverðu landinu. Lögreglan á Austurlandi hvetur fólk til að halda sig heima ef það þarf ekki að vera á ferðinni. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar „Ég er of­virk­ur í hug­mynd­um“ — smíð­uðu stól sem opnar dyrnar á stór­mót Ófeigur Ágúst Leifsson smíðaði stól sem nýtist fyrir keppni í fjölmörgum greinum fatlaðra. Stóllinn gerir nú keppendum kleift að taka þátt í fjölda greina. Sigurjón Ægir Ólafsson segist ætla á stórmót. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Í dag: Litáar í hefnd­ar­hug mæta Ís­landi Í dag mætast Ísland og Litáen í undankeppni HM 2027 í körfubolta. Ísland vann frækinn endurkomusigur gegn Litáum í fyrri leiknum á föstudaginn var. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum 31 látinn og um 150 særðir eftir miklar árásir á Líban­on Ísraelsher gerði miklar árásir á Líbanon í nótt, í hefndaraðgerðum sem herinn segir beinast gegn Hezbollah-hreyfingunni. Hreyfingin gerði árásir á Ísrael fyrr í nótt sem sagðar voru hefndaraðgerðir vegna dauða æðsta klerks Írans, Ali Khamenei. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akraneskaupstaður Björg­un­ar­fé­lag Akra­ness fær nýtt björg­un­ar­skip Björgunarfélag Akraness hefur fengið afhent björgunarskipið Gísla Jóns af Björgunarbátasjóði Vestfjarða á Ísafirði. Töluverð eftirvænting er hjá félögum í Björgunarfélaginu yfir komu skipsins enda næg verkefni og þjáfun framundan. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Davíð Odds­son er látinn Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, er látinn. Davíð lést á heimili sínu í gær 78 ára að aldri. 2. mars 2026 kl. 2:49INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Vél­ar­vana bátur dreg­inn í höfn í Sand­gerði Brynja Dögg Friðriksdóttir Björgunarskipið Hannes Þ. í Sandgerði kom fyrir taug í bátnum Óla á Stað, sem varð vélarvana rétt út af Sandgerði 1. mars 2026. Björgunarbátasjóður Suðurnesja Rétt fyrir miðnætti í kvöld var björgunarskipið Hannes Þ. í Sandgerði kallað út á næsthæsta forgangi (F2) vegna vélarvana báts sem rak hægt að landi rétt út af Sandgerði. Var Hannes Þ. kominn að bátnum um klukkan 00:37. Vel gekk að koma taug yfir í bátinn og draga hann í land og var aðgerðum lokið um klukkan hálf tvö í nótt samkvæmt fréttatilkynningu frá Björgunarbátasjóði Suðurnesja. 2. mars 2026 kl. 2:24ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur snar­hækk­að Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarhækkað um helgina vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Íranski byltingarvörðurinn hefur varað við öllum samgöngum og flutningum um Hormússundið. Takmarkanir á flutningum hafa mikil áhrif heimsframboð og verð á olíu. 2. mars 2026 kl. 1:15ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin 2 látnir og 14 særðir eftir skot­árás í Austin í Texas Brynja Dögg Friðriksdóttir Lögreglan við störf á vettvangi í Austin, Texas. AP/FR172290 AP / Jack Myer Tveir eru látnir og að minnsta kosti 14 eru særðir, þar af þrír alvarlega, eftir skotárás á bar í Austin, Texas í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn kom keyrandi á bíl og hóf skothríð úr bíl sínum á fólk sem stóð fyrir utan barinn. Því næst lagði hann bílnum og fór með riffil og gekk að barnum. Hann var síðan skotinn af lögreglumönnum. Ekki er vitað um ástæður árásarinnar en Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, telur að árásin sé mögulega hryðjuverk. Árásarmaðurinn er sagður hafa tjáð fyrirlitningu sína á Bandaríkjunum og Ísrael og var klæddur í bol sem á stóð, eign Allah. Árásarmaðurinn var bandarískur ríkisborgari fæddur í Senegal. 1. mars 2026 kl. 22:29ÍÞRÓTTIR Körfubolti Afar hörð topp­bar­átta eftir Grinda

Share this article