Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sumarbústaður brann til grunna

Read Full Article →

Sumarbústaður í Kjós varð eldi að bráð í morgun. Eldurinn uppgötvaðist á sjötta tímanum og var óskað eftir aðstoð frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Tilkynnandi sagði að mikill eldur logaði og þegar slökkvilið kom á staðinn var bústaðurinn alelda. Slökkviliðsmenn gættu þess að eldurinn breiddist ekki út og komu í veg fyrir fok úr rústunum og að eldurinn tæki sig upp á nýjan leik. Þar sem mikill snjór er yfir öllu var þó minni hætta en ella á að eldurinn breiddist út. Bústaðurinn brann til grunna. Hann var í sumarbústaðabyggð í Hvalfirði, nærri Hvammsvík. Um tugur slökkviliðsmanna af Kjalarnesi og úr Mosfellsbæ sinnti slökkvistörfum. Einn af dælubílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Safnmynd.RÚV / Ragnar Visage

Share this article