- What: Firefighters are battling brush fires in the capital region of Iceland.
- Impact: Dry conditions have led to an increase in brush fires, some suspected to be intentionally set.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur slökkt sinuelda á tveimur stöðum í morgun, þar á meðal á sömu slóðum í Hvalfirði og í gær. Mikið hefur verið um sinubruna síðustu vikur vegna þess mikla þurrks sem einkennt hefur veðurfar í höfuðborginni og nágrenni frá áramótum. Eldarnir hafa bæði verið raktir til þess að fólk fari óvarlega og þess að einhverjir hafi viljandi kveikt í sinu. Vonir standa til að einhver úrkoma verði í dag eða næstu daga sem væti gróður svo síður verði hætta á sinubruna. Brunnin sina. Mynd úr safni.RÚV / Gréta Sigríður Einarsdóttir