- What: A large brush fire broke out in Heiðmörk near Elliðavatn.
- Impact: Firefighters are working to contain the blaze, which is spreading due to dry conditions.
Eldur kviknaði í sinu í Heiðmörk við Elliðavatn síðdegis. Upphaflega voru slökkviliðsmenn frá einni stöð sendir af stað til að slökkva eldinn en fljótlega kom í ljós að hann var að breiðast út og magnast. Því var bætt í mannskap og rétt fyrir klukkan fjögur voru nokkrir slökkviliðsbílar komnir á staðinn. Slökkviliðið má hafa sig allt við til að berjast við eldinn. Við verðum að senda allt sem við eigum í þetta og meira til, sagði vaktstjóri hjá slökkviliðinu upp úr klukkan hálf fimm. Slökkviliðið hefur sent nokkra bíla í Heiðmörk til að berjast við sinueld nærri Elliðavatni. Svæðið sem brennur hefur stækkað og er erfitt viðureignar. Mikið hefur verið um sinuelda síðustu daga og vikur vegna mikilla þurrka sem hafa fylgt úrkomuleysi frá áramótum. Sinueldar hafa bæði verið raktir til þess að fólk hafi farið óvarlega og til þess að eldarnir hafi verið kveiktir vísvitandi.