Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vaxandi sinueldur sem erfitt er að ráða við

  • What: A wildfire broke out in Heiðmörk near Elliðavatn.
  • Impact: The fire is spreading and difficult to control due to dry conditions.
Read Full Article →

Eldur kviknaði í sinu í Heiðmörk við Elliðavatn síðdegis. Upphaflega voru slökkviliðsmenn frá einni stöð sendir af stað til að slökkva eldinn en fljótlega kom í ljós að hann var að breiðast út og magnast. Því var bætt í mannskap og rétt fyrir klukkan fjögur voru nokkrir slökkviliðsbílar komnir á staðinn. Slökkviliðið hefur sent nokkra bíla í Heiðmörk til að berjast við sinueld nærri Elliðavatni. Svæðið sem brennur hefur stækkað og er erfitt viðureignar. Mikið hefur verið um sinuelda síðustu daga og vikur vegna mikilla þurrka sem hafa fylgt úrkomuleysi frá áramótum. Sinueldar hafa bæði verið raktir til þess að fólk hafi farið óvarlega og til þess að eldarnir hafi verið kveiktir vísvitandi.

Share this article