Innlent | mbl | 27.3.2026 | 11:45 Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Stofnuninni hafði borist nokkur fjöldi kvartanna vegna barnaverndarþjónustar Reykjanesbæjar. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Niðurstöður nýrrar skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) sýna að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vinnslu mála þar sem börn voru vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga. GEV hóf frumkvæðisathugun í febrúar 2025 á vinnslu slíkra mála hjá barnaverndunarþjónustunni eftir að sjö ábendingar og kvartanir höfðu borist stofnuninni vegna starfsemi hennar. Athugunin afmarkaðist við vinnslu mála á tímabilinu 1. janúar 2024 til 18. febrúar 2025 og fól gagnaöflunin í sér gagna- og upplýsingabeiðnir til barnaverndarþjónustunnar, viðtöl við starfsfólk og stjórnendur og samtöl við úrtak fósturforeldra. Af 41 máli sem voru til vinnslu á umræddu tímabili völdu eftirlitsaðilar 23 mál til að kanna nánar. Samþykki foreldra ekki tryggt Meðal annars kom í ljós að töluverður misbrestur hafi verið á skráningu gagna og varðveislu upplýsinga hjá barnaverndarþjónustunni, skortur var á að í gildi væru fóstur- eða vistunarsamningar allan vistunartímann og ekki var gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilið leyfi frá GEV. Þá var grundvöllur vistunar ekki tryggður á fullnægjandi hátt í öllum tilfellum, þ.e. hvort vistunin væri með samþykki foreldra eða ekki og ekki heldur gætt á fullnægjandi hátt að réttindum barna við málsmeðferð, m.a. varðandi skipun talsmanna og aðilastöðu barna 15 ára og eldri. Úrbótum ljúki á þessu ári Í skýrslunni kemur fram að ljóst sé að verulegir annmarkar hafi verið á málavinnslu þeirra mála sem athugunin náði til og að töluverður misbrestur hafi verið á því að kröfum í lögum og reglugerðum hafi verið fylgt. GEV telur afar mikilvægt að barnaverndarþjónustan leggi áherslu á að efla innra eftirlit sitt í þeim tilgangi að stuðla betur að gæðum og öryggi þjónustunnar. Í eftirlitsskýrslunni er settur fram fjöldi tilmæla um úrbætur sem barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar ber að fara eftir. Hefur GEV óskað eftir úrbótaáætlun frá barnaverndarþjónustunni og skal úrbótum vera lokið 1. janúar 2027. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Set mikla pressu á sjálfan mig Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Beint: Spennan heldur áfram að magnast Sólin mun rísa að nýju Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Geta ekki sagt „full og varanleg“ Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Úthugsuð árás Bandaríkjanna Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Klifraði yfir girðingu og gekk heim Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Sjáðu hvar páskaeggin eru ódýrust Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Set mikla pressu á sjálfan mig Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Beint: Spennan heldur áfram að magnast Sólin mun rísa að nýju Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úthugsuð árás Bandaríkjanna Stórfelld árleg hækkun gjalda Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Klifraði yfir girðingu og gekk heim Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Sjáðu hvar páskaeggin eru ódýrust Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“