Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.3.2026 | 16:15 Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ráðgjafar bera fyrir sig manneklu og löng ferðalög þegar kemur að manneklu. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ » Fleiri tengdar fréttir Ráðgjafar sem starfa hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar eru allir sammála um að álag á hvern og einn sé of mikið. Engin regla sé um hámarksfjölda mála á hvern ráðgjafa og í raun sé ekki mikið hugsað út í málafjöldann fyrr en ráðgjafi fari í algjört þrot og grátbiðji um aðstoð. Þá mega ráðgjafar með yfirdrifinn fjölda mála ekki vinna yfirvinnu og kemur það því ítrekað fyrir að einhver vinnsla sitji á hakanum fyrir vikið. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) sem sýna að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vinnslu mála þar sem börn voru vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga. Hefur þetta mikla álag meðal annars haft það í för með sér að ekki hefur verið hægt að sinna eftirliti og stuðningi á fullnægjandi hátt. Gögnin sem GEV skoðaði í frumkvæðisrannsókn sinni bera það með sér að jafnvel hafi liðið mörg ár án þess að barnaverndarþjónustan heimsækti fósturheimili og ræddi við barn, þrátt fyrir að upplýsingar væru til staðar um að barninu liði ekki vel. Hafi eftirlit og heimsóknir á fósturheimili farið fram í umræddum tilvikum skorti í öllu falli á skráningar þar um. Frétt af mbl.is Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Fóru ekki í heimsóknir vegna manneklu Fram kemur í skýrslunni að af viðtölum við starfsfólk hafi verið ljóst að ráðgjafar voru meðvitaðir um að sinna ætti eftirliti í það minnsta einu sinni á ári. Einn ráðgjafinn sagði: „Við erum meðvitaðar um að lögin greina frá því að við ættum að fara á öll fósturheimili einu sinni á ári a.m.k. En vegna manneklu og álags og langra ferðalaga er heimsókninni ekki alltaf sinnt í þetta eina sinn. Að sama skapi erum við alltaf í samskiptum við börnin og fósturforeldrana þrátt fyrir að heimsóknin sé ekki farin. Fósturforeldrar eru ekki óafskiptir þrátt fyrir að ekki sé farið í heimsókn. Ég t.d. átti viðtal við mín heimili sem ég komst ekki í heimsókn til í gegnum Teams í fyrra.“ Samkvæmt gögnum í einu þeirra mála sem voru skoðuð var ljóst að ástand á fósturheimili hafði ekki verið gott á um fjögurra ára tímabili. Sé miðað við skráningar í gögnum málsins sé ljóst að barnaverndarþjónustan fylgdist ekki nægilega vel með aðstæðum barnsins á þeim tíma. Lítið hafi verið fjallað um málið á meðferðarfundum á tímabilinu jafnvel þótt miklar áhyggjur hafi verið í nærumhverfi barnsins. Barn tjáði sig um líkamlegt ofbeldi Í öðru máli koma fram upplýsingar frá barni um að því liði ekki vel á fósturheimili sínu, það væri mikið eitt, það upplifði vantraust og óskaði eftir að fara á annað fósturheimili. Svo virðist af gögnum málsins að þetta hafi ekki verið skoðað neitt nánar, í það minnsta hafi ekkert verið skráð um það. Í gögnum eins máls segir að barni hafi liðið illa á fósturheimilinu, a.m.k. til að byrja með. Fyrir liggi upplýsingar frá foreldri þar sem það segir barn hafa tjáð sig um líkamlegt og andlegt ofbeldi á fósturheimilinu og að barnið hafi reynt að strjúka. Skömmu eftir símtal við foreldri þar sem þessar upplýsingar komu fram er skráð símtal við skólastjóra þar sem fram kemur að barnið hafi tjáð sig um að fósturforeldrar kæmu í veg fyrir að það gæti hringt í starfsmann barnaverndar. Hvergi í gögnum málsins sé hins vegar að finna upplýsingar um að starfsmaður hafi farið og talað við barnið eða skoðað þetta nánar. Enginn kom í þrjú ár Þeir fósturforeldrar sem rætt var við voru allir sammála um að töluvert hafi skort á eftirlit í málum þeirra barna sem ráðstafað hafði verið til þeirra. Þá hafi gengið erfiðlega að fá aðstoð frá barnaverndarþjónustunni fyrir börnin, hafi verið þörf á því. Í einu málinu sagði fósturforeldri að enginn hefði komið á heimilið í a.m.k. þrjú ár. Í því máli hafði fósturforeldri upplýst almennan starfsmann á þjónustuborði um vanlíðan barnsins og óskað eftir sálfræðiaðstoð fyrir hana. Viðbrögðin frá barnaverndarþjónustunni hefðu verið tölvupóstur þar sem fram kom að samþykktir hefðu verið ákveðið margir tímar. Sagði fósturforeldri: „Mér finnst barnaverndarþjónustan í Reykjanesbæ bregðast algerlega. Þau hafa ekki hugmynd um hver staðan er. Sem betur fer líður [barninu] vel,“ sagði fósturforeldrið. Fluttu á milli landshluta Hið sama var upp á teningnum hjá öðrum fósturforeldrum sem rætt var við. Sögðu fósturforeldrarnir að síðustu tvö til þrjú ár hafi verið rosalegur losaragangur hvað varðaði vinnslu máls barnsins og eftirlit. Í einu málinu var um eitt og hálft ár síðan starfsmaður barnaverndarþjónustunnar mætti í eftirlit en á þeim tíma höfðu fósturforeldrar flust búferlum milli landshluta og enginn hafði komið og athugað aðstæður á nýja heimilinu. GEV beinir tilmælum til barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar að endurskoða verklag sitt er kemur að eftirliti í samræmi við barnaverndarlög. „Mikilvægt er að leggja áherslu á að fylgst sé náið með aðbúnaði og líðan barns á fósturheimili og því að ráðstöfun nái tilgangi sínum. Í þessu sambandi er mikilvægt að fósturheimili séu heimsótt a.m.k. einu sinni á ári, en oftar ef þörf er talin á,“ segir í skýrslunni. Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Deilt um hvort gersigra þurfi klerkana Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Goðsögn United syrgir móður sína Tæplega tilbúið glæsihús selt á 267 milljónir Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Margir vegir lokaðir vegna ófærðar „Kemur gríðarlega á óvart“ Heuermann hyggst játa sök Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Ekkert lát á lægðunum Klifraði yfir girðingu og gekk heim Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Deilt um hvort gersigra þurfi klerkana Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Goðsögn United syrgir móður sína Tæplega tilbúið glæsihús selt á 267 milljónir Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margir vegir lokaðir vegna ófærðar Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu annað kvöld Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Ekkert lát á lægðunum Klifraði yfir girðingu og gekk heim Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article