Innlent | mbl | 26.2.2026 | 22:30 Segir breytingarnar geta ógnað öryggi barna Pétur segir foreldra eiga rétt á að vita að eftirlitskerfið sé sterkt, skýrt og órofið en ekki á milli handa margra mismunandi stofnana með óljósa ábyrgð á mismunandi verkefnum sem skarast. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Breytingar á stjórnsýslu stofnana geta tekið 3–5 ár. Á því tímabili eru raunverulegar líkur á að þjónusta rofni eða veikist. Þegar um er að ræða eftirlit með leikskólum, öldrunarheimilum, sundlaugum og matvælum er órofin og stöðug þjónusta lífsnauðsynleg. Þetta segir Pétur Halldórsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, í aðsendri grein á Vísi . Tilefnið er frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem myndi færa ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og leggja af heilbrigðisnefndir sveitarfélaga. Drög að frumvarpinu mættu mikilli andstöðu í samráðsgátt stjórnvalda. „Ef verkefni heilbrigðiseftirlitsins eru færð til margra ólíkra stofnana er hætt við að gloppur myndist í varnarkerfinu. Slíkar gloppur geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þau sem minnst geta varið sig: börn, aldraða og viðkvæma einstaklinga,“ segir Pétur. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fer fyrir frumvarpinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ábyrgasta leiðin þegar öryggi barna er í húfi Pétur segir eðlilegt að eftirlit taki breytingum en bæta megi kerfið án þess að fara í algera uppstokkun. Í stað þess að leggja niður heilbrigðiseftirlitið megi styrkja það skref fyrir skref eins og hafi verið gert frá því það var fyrst fest í lög árið 1901. Þróunin hafi alla tíð gengið út á að efla fagmennsku, bæta ferla og tryggja að eftirlitskerfið standist nútímakröfur í gegnum tímans rás en slík framþróun krefjist ekki stórfellds niðurrifs heldur varfærinna og vandaðra umbóta. Þannig megi tryggja samfellt og stöðugt eftirlit, jafnvel á meðan breytingar eru unnar. „Það er einfaldlega ábyrgasta leiðin þegar öryggi barna og annarra viðkvæmra hópa er í húfi.“ Börn eigi rétt á öruggum og hreinum leikskólum, lausum við mengun og slysahættu og foreldrar eigi rétt á að vita að eftirlitskerfið sé sterkt, skýrt og órofið en ekki á milli handa margra mismunandi stofnana með óljósa ábyrgð á mismunandi verkefnum sem skarast. Frétt af mbl.is Mikil andstaða í umsagnarferli Frétt af mbl.is Sérfræðingar mótmæltu á kynningarfundi ráðherranna „Matareitrunin á Mánagarði er sorglegt dæmi“ Þá segir Pétur það miður að þrátt fyrir þær forvarnir sem byggðar hafa verið upp geti hlutir farið úrskeiðis og tekur dæmi um E.coli-hópsýkinguna sem upp kom á leikskólanum Mánagarði á Eggertsgötu í októbermánuði 2024. „Matareitrunin á Mánagarði er sorglegt dæmi um þetta, þar sem börn urðu fyrir miklum skaða, og oft er erfitt að greina hætturnar í okkar daglega umhverfi áður en skaðinn er skeður.“ Heilbrigðiseftirlitið gegni lykilhlutverki í vörnum samfélagsins gegn þessum hættum og sérþekking heilbrigðisfulltrúa nýtist til að fyrirbyggja slíkar aðstæður. Þannig sé hlutverk heilbrigðiseftirlitsins meðal annars að tryggja að foreldrar geti verið vissir um öruggar aðstæður fyrir börn sín. Komi upp grunur um myglu, mengun, galla eða óöruggar aðstæður, hvar sem er á landinu, þá bregðist heilbrigðiseftirlitið við. Frétt af mbl.is Þrír með réttarstöðu sakbornings vegna hópsýkingar Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ágúst súr: Rifu allt í einu upp rauða spjaldið Þetta var alsæla Segir breytingarnar geta ógnað öryggi barna Bralla ýmislegt hæfilega kærulaus Skagamenn lögðu Valsmenn á Akranesi Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árangurinn á Íslandi greiddi götuna Fullyrðingar standast ekki Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Varar við inngöngu Íslands í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Ágúst súr: Rifu allt í einu upp rauða spjaldið Þetta var alsæla Segir breytingarnar geta ógnað öryggi barna Bralla ýmislegt hæfilega kærulaus Skagamenn lögðu Valsmenn á Akranesi Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fært til lendingar í Keflavík á ný Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál