Innlent | mbl | 8.5.2026 | 11:10 Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna ASÍ og BSRB segja að breytingarnar hafi skapað aukið álag á barnafjölskyldur og þegar orðið að veigamiklu umræðuefni í aðdraganda kosninga. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra X26 - Borgarafundur Akureyri Getur skapað á annað hundruð störf Bilið breikkar enn frekar „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“ » Fleiri tengdar fréttir Leikskólamál Styðja við bann á gjörunnum matvælum Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Andleg heilsa þeirra sem starfa í leikskóla mælist verri en annarra hópa Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust » Fleiri tengdar fréttir Breytingar í leikskólaþjónustu hafa gert daglegt líf barnafjölskyldna flóknara, kostnaðarsamara og síður fyrirsjáanlegt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands, sem hefur gert samantekt ásamt BSRB um þróun leikskólaþjónustu á kjörtímabilinu 2022–2026. Frétt af mbl.is Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Meðal stærstu kosningamálanna Foreldrar standa víða frammi fyrir styttri opnunartíma, fleiri lokunardögum, flóknari gjaldskrám og hærri kostnaði fyrir fulla vistun. Í samantektinni kemur fram að leikskólamál séu meðal stærstu kosningamála fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Skert þjónusta og aukin gjaldtaka Samkvæmt samantektinni hefur þjónusta víða verið skert á sama tíma og gjaldtaka hefur aukist. Opnunartími leikskóla hefur verið styttur í mörgum sveitarfélögum, meðal annars með styttri opnun á föstudögum. Þá hefur víða verið sett hámark á dvalartíma barna, oft 40 klukkustundir á viku eða jafnvel minna fyrir yngstu börnin. Slíkar breytingar geta haft veruleg áhrif á möguleika foreldra til að samræma atvinnu og fjölskyldulíf, sérstaklega þeirra sem vinna fulla vinnu. Þá segir að afsláttarkerfi hafi einnig tekið breytingum. Þar sem áður voru sérstakir afslættir fyrir hópa á borð við námsmenn, einstæða foreldra og fólk með örorku hafa sum sveitarfélög tekið upp tekjutengda gjaldtöku. Afleiðingin sé sú að stór hluti foreldra á vinnumarkaði greiði nú hærri leikskólagjöld en áður. Í samantekt ASÍ og BSRB er þá vikið að svokölluðum skráningardögum, sem hafa verið teknir upp í flestum sveitarfélögum og eru að jafnaði á bilinu 5 til 20 dagar á ári. Greiða foreldrar sérstaklega fyrir hvern dag sem nýttur er, oft á bilinu 2.500 til 5.000 krónur. Þetta hafi gert kostnað við leikskólavist síður fyrirsjáanlegan. Lokunardögum hefur einnig fjölgað en sumarlokanir, starfsdagar, skráningardagar og aðrir lokunardagar eru nú samtals á bilinu 30 til 46 dagar á ári. Til samanburðar hefur almennt launafólk yfirleitt 24 til 30 orlofsdaga á ári, sem getur valdið foreldrum erfiðleikum við að brúa bilið. Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Flóknari gjaldskrár Í samantektinni er bent á að gjaldskrár margra leikskóla hafi orðið flóknari og hækkanir fyrir fulla vistun verið umtalsverðar. Í sumum tilfellum hefur hún hækkað um allt að 85% á kjörtímabilinu. Í stærstu sveitarfélögum landsins kostar átta tíma vistun nú víða um 50.000 krónur á mánuði, en 8,5 tíma vistun getur numið allt að 68.000 krónum. Á sama tíma hafi gjöld fyrir skerta vistun í sumum tilvikum verið lækkuð eða felld niður. Þetta þýði að foreldrar sem nýti fulla vistun beri hlutfallslega meiri kostnað en áður og niðurgreiði í reynd vistun þeirra sem eru í hlutastarfi eða geta af öðrum ástæðum stytt dvalartíma barna sinna. Í heild sinni sýnir samantektin að leikskólaþjónusta hefur víða færst frá því að vera einföld grunnþjónusta yfir í flóknara og breytilegra kerfi, þar sem bæði skipulag og kostnaður eru síður fyrirsjáanleg en áður. ASÍ og BSRB segja í samantektinni að þetta skapi aukið álag á barnafjölskyldur og hafi þegar orðið að veigamiklu umræðuefni í aðdraganda kosninga. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra X26 - Borgarafundur Akureyri Getur skapað á annað hundruð störf Bilið breikkar enn frekar „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“ » Fleiri tengdar fréttir Leikskólamál Styðja við bann á gjörunnum matvælum Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Andleg heilsa þeirra sem starfa í leikskóla mælist verri en annarra hópa Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Inga Tinna keypti höll í Garðabæ Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Alls ekki búið hjá Vonn Eiga vélarnar framhaldslíf? Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Fyrir hvern er borgin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Nemendum með A stórfjölgar milli ára Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum 85 þúsund fengu 250 milljarða Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Áhættumatið tekur á veikleikum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Inga Tinna keypti höll í Garðabæ Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Alls ekki búið hjá Vonn Eiga vélarnar framhaldslíf? Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Fyrir hvern er borgin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 30 farþegar yfirgáfu skipið á Sankti Helenu Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum X26 - Borgarafundur Akureyri Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum 85 þúsund fengu 250 milljarða Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Áhættumatið tekur á veikleikum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka