Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Fjölskyldur í forgang strax

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 8:00 Fjölskyldur í forgang strax Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Sjálfstæðisflokkurinn vill setja fjölskyldumálin í forgang enda fjölskyldan grunneining samfélagsins og þurfa kerfi borgarinnar að taka mið af henni. Menntun og uppvöxtur barna er burðarstólpi þjóðfélagsins til framtíðar og vel þarf að búa að uppvaxtarárum hvers einstaklings. Eignumst fleiri börn Betur þarf að búa að fjölskyldum í Reykjavík og gera fleirum kleift að stækka fjölskylduna, enda lækkandi fæðingartíðni hérlendis áhyggjuefni. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja fjölskyldum í borginni fjölbreyttar lausnir í kjölfar fæðingarorlofs. Við vitum að fjölskyldur eru ólíkar og að þörfum þeirra þarf að mæta með hlaðborði lausna. Við ætlum að styðja betur við sjálfstætt starfandi leikskóla og þá vinnustaði sem vilja opna leikskóla eða daggæslu fyrir börn sinna starfsmanna. Við viljum jafnframt innleiða dagheimili fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 30 mánaða og endursemja við dagforeldrastéttina. Þeim fjölskyldum sem kjósa að vera lengur heima með börn sín viljum við bjóða heimgreiðslur í allt að 12 mánuði. Við ætlum að huga betur að viðhaldi skólahúsnæðis og ráðast í uppbyggingu hagkvæmra leikskóla í samstarfi við einkaaðila þar sem áhersla verður á vandað umhverfi fyrir börn og starfsfólk. Við ætlum jafnframt að ráðast í átak svo gera megi leikskóla borgarinnar að eftirsóknarverðum vinnustöðum og lækka veikindahlutföll sem nú standa í 10%. Skólar í fremstu röð Síðastliðna áratugi hefur átt sér stað varasöm þróun í skólamálum hérlendis en íslenskum nemendum gengur nú sífellt verr í alþjóðlegum samanburði. Rík áhersla hefur verið á færri samræmdar mælingar, minni kröfur gerðar til nemenda og samkeppni í skólastarfi litin hornauga. Það er löngu tímabært að snúa við þessari óheillaþróun í menntamálum þjóðarinnar – stefna að skólakerfi í fremstu röð – en til þess þurfum við aðgengileg gögn, mælanleg markmið og skýra mælikvarða. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík telur mikilvægt að samræmt mat verði framkvæmt í öllum árgöngum grunnskólans ásamt samræmdu lokaprófi úr 10. bekk. Við viljum jafnframt að námsmat verði aftur byggt á talnakvarðanum 1-10 enda námsmat, byggt á litakóðum, táknum eða bókstöfum, illskiljanlegt og mikil eftirspurn eftir breytingum. Við teljum nauðsynlegt að auka hreyfingu reykvískra skólabarna og auka gæði skólamáltíða. Við leggjum jafnframt til tveggja ára tilraunaverkefni með símafrí í grunnskólum Reykjavíkur svo hægt verði að leggja mat á áhrif þess á líðan og námsárangur barna. Við viljum að börn sem flytja til landsins og ekki tala íslensku taki sín fyrstu skref í grunnskólagöngunni í móttökudeild þar sem sérstök áhersla er á íslensku og íslenskt samfélag. Munurinn hérlendis á PISA-einkunnum nemenda með innflytjendabakgrunn og innfæddra nemenda er einn sá mesti innan OECD. Skólakerfið þarf augljóslega að mæta þessum nemendahópi betur en móttökudeildir gætu reynst brú í takmarkaðan tíma áður en nemendurnir öðlast færni til að hefja nám í almennum bekk. Margt hægt að gera strax Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar að standa með fjölskyldum – tryggja fjölbreyttar lausnir í kjölfar fæðingarorlofs og gera kröfu um árangur í skólamálum. Það er ekki eftir neinu að bíða – það er svo margt hægt að gera strax. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Svona verður sumardagsveðrið Trump vill skipta Íran út fyrir Ítalíu Aðsend grein: Fjölskyldur í forgang strax Lét Harry og Meghan ekki raska ró sinni Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Hvað vildu þeir til Mexíkó? Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Þrír hafa verið náðaðir Jón Pétur með buxurnar á hælunum Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Þrjú ár fyrir þrjú kíló af kókaíni Sviptur ökuréttindum á staðnum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Svona verður sumardagsveðrið Trump vill skipta Íran út fyrir Ítalíu Aðsend grein: Fjölskyldur í forgang strax Lét Harry og Meghan ekki raska ró sinni Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Þrír hafa verið náðaðir Jón Pétur með buxurnar á hælunum Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Þrjú ár fyrir þrjú kíló af kókaíni Sviptur ökuréttindum á staðnum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article