Bæjarstjórn Grindavíkur lýsir yfir áhyggjum af þeim hugmyndum að fresta eigi skólahaldi í bænum næsta haust. Þá standi möguleg mismunun við endurkaup eigna eftir fjölskyldugerð í vegi fyrir eðlilegri framþróun sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bæjarstjórnin sendi frá sér í dag. Til stóð að skólahald myndi hefjast í bænum í haust en á föstudaginn lýsti Grindavíkurnefndin því yfir að hún mældi ekki með því að barnafjölskyldur myndu snúa aftur í bæinn á meðan óvissa varir vegna jarðhræringa. „Við teljum mikilvægt að treysta dómgreind Grindvíkinga þegar kemur að ákvörðunum um þeirra eigin mál og endurkomu heim. Skólastarf er algjör grunnforsenda til að gera barnafjölskyldum kleift að snúa aftur, enda hefur alltaf verið eftirsóknarvert að ala upp börn í bænum okkar,“ segir í yfirlýsingu bæjarstjórnar Grindavíkur. Frestun á skólahaldi þýði að minnsta kosti eitt ár í viðbót af óvissu fyrir fjölskyldur sem muni setja strik í reikninginn við uppbyggingu bæjarins. „Við skiljum vel og deilum áhyggjum af öryggismálum, en viljum jafnframt benda á að börnin okkar eru mörg hver nú þegar í bænum um helgar og taka þar þátt í iðandi íþrótta- og tómstundastarfi,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir bæjarstjórn að mikilvægt sé að horfa til þess að eitt stærsta áfallið sem börn og ungmenni kljáist við sé missir á sínu daglega umhverfi. Í yfirlýsingunni segir að framtíðarsýn bæjarstjórnar sér skýr: „Að öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis verði gert kleift að flytja aftur í hús sín ef þeir svo kjósa, og að skólahald verði tryggt í haust. Við trúum því að með góðu samtali og samvinnu geti endurreisn hins þróttmikla samfélags í Grindavík hafist fyrir alvöru,“ segir þar.