Innlent | mbl | 10.4.2026 | 16:18 Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, fór yfir helstu niðurstöður skýrslunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Grindavíkurnefnd leggst gegn því að skólahald hefjist í Grindavík í haust eins og bæjarstjórn Grindavíkurbæjar áformar. Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, segir að eins og staðan sé núna sé Grindavík ekki talin öruggur staður fyrir börn auk þess að það geti haft veruleg sálræn áhrif á börn ef þau þurfa að ganga í gegnum aðra rýmingu eins og mörg börn þurftu að gera í nóvember 2023. Grindavíkurnefnd kynnti í dag skýrslu um endurreisn Grindavíkur. Nefndin segir að skýrslan beri þess merki að náttúruhamförum í Grindavík sé ekki lokið og mikil óvissa ríki um þróunina á næstunni. Nefndin mælir ekki með að barnafjölskyldur flytji í bæinn á meðan óvissan varir. Hvernig endurreisir maður bæjarfélag án barna? En hvernig er hægt að endurreisa bæjarfélag án framtíðarkynslóðar? „Þetta er eðlileg spurning sem við höfum líka spurt okkur og fengið frá fólkinu í Grindavík. Við höfum lagt áherslu á það að endurreisnin gerist ekki í einu skrefi. Það er að okkar mati ekki skynsamlegt að fyrsta skrefið sé að fá börn inn í bæinn á meðan áhættumatið segir okkur að Grindavík sé ekki staður fyrir börn án eftirlits,“ segir Árni í samtali við mbl.is. Hann bætir við að börn muni koma til Grindavíkur á nýjan leik þegar fram í sækir en að svo stöddu telur nefndin ekki skynsamlegt að hefja skólahald í bænum og þannig hvetja barnafjölskyldur til að flytja til Grindavíkur. Grunnskóli Grindavíkur mbl.is/Eggert Jóhannesson Verða að taka óvissuna með Hvenær er hægt að segja að óvissan sé yfirstaðin og barnafjölskyldur geti flutt aftur til Grindavíkur og skólastarf hafist? Árni segir að móðir jörð ráði miklu um það. Ekki sé vitað hvenær verði hægt að lýsa yfir goslokum á svæðinu en til þess þarf landris og kvikusöfnunin í Svartsengi að hætta, það þarf að vera stöðugt og helst farið að lækka aftur yfir sex mánaða tímabil samfellt svo að Veðurstofan treysti sér til að lýsa yfir goslokum. „Þetta ræður auðvitað hraðanum á endurreisninni og atburðarásinni. Við getum ekki vitað hvernig þessir hlutir þróast. Þetta getur auðvitað verið búið og það getur verið að það gjósi ekki aftur og auðvitað væri það gott en á meðan óvissan er til staðar verðum við að taka hana með í reikninginn.“ Rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Dagsetning brúðkaupsins sögð liggja fyrir Fyrrverandi leikmaður orðinn yfirmaður knattspyrnumála í Keflavík Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Eva Dögg og Stefán giftu sig Botnlanginn fjarlægður úr stjörnu Philadelphia 76ers Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað „Þá er eins gott að þeir hætti því strax!“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Myndskeið: Yfirlýsing Melaniu Trump í heild sinni Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Nýjast á mbl.is » Dagsetning brúðkaupsins sögð liggja fyrir Fyrrverandi leikmaður orðinn yfirmaður knattspyrnumála í Keflavík Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Eva Dögg og Stefán giftu sig Botnlanginn fjarlægður úr stjörnu Philadelphia 76ers Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þá er eins gott að þeir hætti því strax!“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Styrkir samtökin um 25 milljónir Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða