Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi í dag að ráða skólastjóra sem komi til með að stýra samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Markmiðið með ráðningunni er að tryggja að hægt verði að bjóða upp á skólastarf í bænum næsta haust, að því gefnu að eftirspurn og aðstæður leyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Þá kemur fram að niðurstöður úr nýlegri forskráningu foreldra sýni að hluti barnafjölskyldna sem áttu lögheimili í bænum fyrir rýmingu vilji snúa aftur heim. Bæjarstjórn telji mikilvægt að mæta því ákalli með markvissum undirbúningi. Slíkt auki fyrirsjáanleika fyrir fjölskyldur sem þurfi að skipuleggja næsta vetur. Ráðning tryggi að næsta bæjarstjórn hafi raunverulegt val um skólahald Sveitarstjórnarkosningar fara fram í vor og mun þá ný bæjarstjórn taka við. Á sama tíma mun Grindavíkurnefnd ljúka störfum. Í tilkynningu segir að með því að auglýsa eftir skólastjóra núna sé núverandi bæjarstjórn að tryggja að næsta stjórn hafi raunverulegt val um skólahald í Grindavík. „Okkur ber skylda til að halda dyrunum opnum fyrir framtíðina. Það er vilji til þess innan bæjarstjórnar að skólahald hefjist í Grindavík í haust. Ef við hefjum ekki þennan undirbúning strax í dag erum við í raun að taka þá ákvörðun fyrir næstu bæjarstjórn að ekki verði hægt að opna skóla í haust. Ráðning skólastjóra er lykilskref í að skipuleggja hvernig skólastarfi verður háttað, hvort sem er í leik- eða grunnskóla,“ er haft eftir Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur. Bæjaryfirvöld leggi áherslu á að þótt undirbúningur fari nú á fullt skrið, verði engar tilslakanir gerðar á öryggiskröfum. Endanleg ákvörðun um form og umfang skólahaldsins mun taka mið af þeirri stöðu sem bærinn er í á þeim tíma í samstarfi við foreldra og íbúa.