Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjöldi leik- og grunnskólabarna í Grindavík gæti skipt tugum á næsta skólaári

Read Full Article →

Grindavíkurbær ætlar að ráða skólastjóra til að stýra samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík í haust. Forseti bæjarstjórnar segir mikinn hug í barnafólki að flytja aftur í bæjarfélagið. Skýr vilji meðal barnafólks að snúa til baka „Við lítum á þetta sem ábyrgan undirbúning og einfaldlega nauðsynlegan til að opnun sé yfir höfuð möguleg. Og þetta er innan fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2026. Þannig að við erum að gera ráð fyrir þessum kostnaði,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Staða skólastjóra, sem kemur til með að stýra samreknum leik- og grunnskóla, verður auglýst í dag. „Við finnum fyrir skýrum vilja foreldra og íbúa að koma heim og þarna erum við að sýna fólki og gefa því tækifæri til að skipuleggja sig og kannski draga aðeins úr óvissu.“ Samstaða um leikskólahald næsta haust Bæjarstjórn fundaði í gær. Ásrún Helga segir að samstaða hafi verið um að hefja leikskólahald í haust. Þá sé möguleiki á að skólahald geti hafist hjá yngstu bekkjum grunnskóla, þá hugsanlega með samkennslu. Nánari útfærsla verði gerð í samráði við foreldra. Hún segir enn óvíst hversu mörg börn verði búsett í bæjarfélaginu á næsta skólaári. Fjöldinn gæti skipt einhverjum tugum samkvæmt forskráningu sem gerð var meðal foreldra á dögunum. „Það er mikil vinna fram undan og svo er þetta náttúrulega þannig að öryggið ræður ferðinni og það verða engar tilslakanir á öryggiskröfum.“

Share this article