Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Breytingarnar á leikskólakerfinu leysi ekki aðkallandi vanda

Read Full Article →

Leikskólastjóri í Reykjavík segir breytingar á leikskólamálum borgarinnar, sem samþykktar voru í dag, mikil vonbrigði. Þær geti bætt starfsumhverfi til lengri tíma, en leysi ekki bráðavandann sem blasir við. Reykjavíkurleiðin í leikskólamálum var samþykkt í borgarstjórn í dag. Breytingarnar fela meðal annars í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun en eftir það bætist við stighækkandi verð fyrir lengri dvöl. Afsláttur verður fyrir einstæða foreldra og efnaminni fjölskyldur. Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri Jöklaborgar, segir niðurstöðuna gífurleg vonbrigði. „Það sem kom útúr þessu er raunveruega ekki að hjálpa starfsumhverfi leikskólanna núna, heldur mögulega kannski einhverntímann seinna þegar reynir betur á þessar aðgerðir. Þetta leysir ekki vandann sem við erum að glíma við í dag og höfum barist við of lengi,“ segir Ásta. Leikskólastjórnendur sammála um vonbrigði sín Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir breytingarnar bitna verst á foreldrum í ósveigjanlegum störfum eða þeim sem eigi lítið bakland og ýti undir stéttaskiptingu. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að álögur á fullvinnandi foreldra séu auknar og þjónusta skert. Leikskólastjórnendur Reykjavíkurborgar sátu samstöðufund á sama tíma og borgarráðsfundurinn var. Ásta Kristín segir stjórnendur hafa verið sammála um vonbrigði sín yfir niðurstöðunum. Þau hafi viljað fá að stýra tímanum, fjölga stöðugildum í leikskólum og láta endurskoða barngildi, sem snýr að því hversu marga starfsmenn leikskólarnir eiga að hafa í skólanum. Hún segir að lengi mætti svo áfram telja. „Bara svona segi hlutina eins og eru að fjöldi foreldra eru fleiri atkvæði heldur en fjöldi starfsmanna hjá leikskólum í Reykjavík og það virðist vera það sem skiptir máli núna þannig að frá okkar hálfu þá er þetta bara óheppilegur tímapunktur að kosningar séu að koma.“

Share this article