Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrstu 36 tímarnir gjaldfrjálsir á leikskólum borgarinnar

Read Full Article →

Leikskóladvöl barna í Reykjavík verður gjaldfrjáls upp að 36 klukkustundum en eftir það bætist við stighækkandi verð fyrir lengri dvöl upp að 42,5 klukkustundum á viku. Opnunartími leikskóla verður ekki styttur en foreldrar hvattir til að hafa börn sín skemur í skóla en nú ef hægt er. Þetta er meðal breytinga á fyrirkomulagi leikskólamála í Reykjavík sem fulltrúar meirihlutans í borgarstjórn kynntu í dag. Dregið hefur verið úr gjaldskrárhækkunum og tekjuviðmið foreldra hækkað frá því sem boðað var í haust. Þetta er gert til að bregðast við gagnrýni sem þá kom fram. Bregðast á við undirmönnun og auka fyrirsjáanleika, segja forsvarsmenn borgarinnar. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sagði að tillögurnar sem kynntar voru í dag séu ekki þær sömu og voru kynntar fyrir áramót. Þær taki mið af samráði og fjölda ábendinga frá einstaklingum og félagasamtökum. Í gær hefðu áformin verið kynnt fyrir foreldrum leikskólabarna og stéttarfélögum og gerðar örlitlar breytingar eftir það. Hún sagði að mikil áhersla hefði verið lögð á að ekki hallaði á konur eða fólk með veikt bakland og langan vinnutíma við breytingarnar. Hún lagði áherslu á að opnunartími leikskóla yrði ekki styttur. „Hérna erum við reyndar að stíga risastórt skref í áttina að endurgjaldslausum leikskóla.“ Vistunargjald verður ekki rukkað fyrir fyrstu 36 tímana. 1.750 krónur verða rukkaðar á hvern hálftíma upp að 38 klukkustundum á viku, 2.750 á hvern hálftíma fram að 40 klukkustundum og 4.000 krónur á hálftíma upp að 42,5 klukkustundum sem er hámarksvöld. Alltaf er rukkað 15.290 króna fæðisgjald. Sé barnið 38 stundir á leikskóla á viku kostar það 22.290 krónur að meðtöldu fæðisgjaldi og vistunargjaldi. 40 klukkustundir kosta 33.290 krónur og 42,5 klukkustundir 53.290 krónur. Frá þessu getur svo dregist 20 til 75 prósenta afsláttur eftir tekjum og búskaparstöðu foreldra. Helga Þórðardóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði áherslu á að þetta væri lægra heldur en hæsta gjaldið í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Að auki væri gjaldfrjálsi tíminn 36 klukkustundir en ekki 30 eins og í Hafnarfirði og Kópavogi. Ein gagnrýnin fyrr í vetur var að fólk þyrfti að skrá börn sín í vistun á ákveðnum dögum strax í september, svo sem í kringum páska og aðrar hátíðir. Nú verður boðið upp á slíka skráningu í september og janúar. Leggja á áherslu á að sameina systkin á sama leikskóla. Auk þess verða umsjónarmenn fasteigna ráðnir til að sinna ýmsum málum sem snerta mannvirki. Í upphaflegum tillögum var gert ráð fyrir að leikskólar yrðu lokaðir á sama tíma og vetrarfrí er í grunnskólum. Nú er gert ráð fyrir að þetta hefjist með einum frídegi á næsta ári. Einnig á að bæta íslenskukunnáttu starfsfólks, meðal annars með því að greiða afleysingar fyrir fólk sem stundar íslenskunám á vinnutíma.

Share this article