Boðaðar voru miklar breytingar á leikskólakerfinu í Reykjavík í morgun. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir góðar umræður um tillögurnar hafa farið fram í borgarráði í morgun. Málið verði tekið fyrir í borgarstjórn í dag þrátt fyrir að hafa ekki verið á dagskrá fyrir fram. „Við vorum með ákveðna tímalínu síðan við náðum að klára verkefnið eftir mikið og öflugt samtal við marga,“ segir Líf sem tekur fram að málinu hafi verið vísað til borgarstjórnar að beiðni borgarráðs. „Eðli málsins samkvæmt, því þetta er auðvitað gerbreyting á leikskólaumhverfinu og vonandi til mikils batnaðar bæði fyrir barnafjölskyldur og leikskólastarfsmenn,“ segir hún. Meðal breytinga er að leikskóladvöl barna í Reykjavík verður gjaldfrjáls upp að 36 klukkustundum en eftir það bætist við stighækkandi verð fyrir lengri dvöl upp að 42,5 klukkustundum á viku. Opnunartími leikskóla verður ekki styttur en foreldrar hvattir til að hafa börn sín skemur í skóla en nú ef hægt er. Borgarfulltrúar eru sammála um að þær breytingar sem kynntar voru í leikskólamálum í Reykjavík séu tímabærar. Borgarstjórnarfulltrúi Vinstri grænna telur að þær muni ekki taka miklum breytingum í umræðu borgarstjórnar. Líf á ekki von á því að tillögurnar taki breytingum að loknum fundi borgarstjórnar. „Við erum náttúrulega búin, eftir samtal við leikskólastjórnendur og verkalýðsforystuna, að gera nokkrar breytingar. Við færðum upp tekjuviðmiðinn og settum inn lokunardag í vetrarleyfum og vorum aðeins að sníða vankantana. Hún segir að kallað hafi verið eftir stöðugleika í leikskólamálum og að títt sé að starfsfólk leikskóla í Reykjavík leiti til annarra sveitarfélaga. Hún segir að unnið verði einnig að því að greina áhrif breytinganna á bæði fjölskyldur barna og starfsfólk. Því sé möguleiki að einhverjar breytingar verði gerðar í tímans rás. Gerir ekki athugasemd við tímasetninguna Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, segist hafa verið fylgjandi því að farið yrði í breytingar í leikskólamálum í langan tíma. „Ég setti þá vinnu í gang að kanna hvað gengi vel í hinum sveitarfélögunum fyrr á kjörtímabilinu þegar ég var borgarstjóri,“ segir hann. Hann segist í grunninn sammála tillögunum. Tillögur meirihlutans fyrir áramót hafi þó ekki verið nægilega góðar. „Þar var gjaldskráin þannig að meðaltekjufólk hefði þurft að sætta sig við mjög miklar hækkanir en það er búið að breyta því,“ segir hann. Borgarfulltrúar eru sammála um að þær breytingar sem kynntar voru í leikskólamálum í Reykjavík séu tímabærar. Borgarstjórnarfulltrúi Vinstri grænna telur að þær muni ekki taka miklum breytingum í umræðu borgarstjórnar. Einar fagnar því að gerðar séu kröfur um íslenskukunnáttu starfsfólks en gerir athugasemd við að lokunardegi í vetrarfríi sé bætt við. Hann telur brýna nauðsyn á breytingunum og telur tímasetningu þeirra ekki athugaverða þrátt fyrir að stutt sé til sveitarstjórnarkosninga. „En það hefði mátt kynna borgarfulltrúum þetta betur,“ segir hann. Hvatning til atvinnulífsins að taka tillit Skúli Helgason, borgarstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar, tók þátt í að kynna breytingarnar í morgun. Hann telur að með því að bjóða 36 gjaldfrjálsa tíma í leikskólum sé stórt skref stigið. „Það er eitthvað sem við höfum ekki séð í öðrum sveitarfélögum,“ segir hann. Borgarfulltrúar eru sammála um að þær breytingar sem kynntar voru í leikskólamálum í Reykjavík séu tímabærar. Borgarstjórnarfulltrúi Vinstri grænna telur að þær muni ekki taka miklum breytingum í umræðu borgarstjórnar. Aðspurður hvort í tillögunum felist þrýstingur á atvinnulífið að taka tillit til barna og fjölskyldna segist hann vona það. „Þarna er hvatning til foreldra sem hafa svigrúm til þess að stytta vistunartíma barna sinna og það mun minnka álag og bæta starfsemina í leikskólunum,“ segir hann.