Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Reykjavíkurleiðin samþykkt í borgarstjórn

Read Full Article →

Leikskólaleiðin í Reykjavík hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Breytingarnar fela í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun og afslátt fyrir einstæða foreldra og efnaminni fjölskyldur. Málið var sett á dagskrá borgarstjórnar í dag eftir að minnihlutinn gerði athugasemdir við kynningu á tillögunum á fundi borgarráðs í morgun. Minnihlutinn taldi aðdragandann stuttan og nauðsynlegt að ræða tillögurnar betur. Tillögurnar hlutu samþykkt með þrettán atkvæðum borgarfulltrúa meirihlutans og Viðreisnar. Aðrir borgarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum sjónvarps.

Share this article