Veður og færð hefur sett mark sitt á atkvæðagreiðslu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem lýkur á morgun. Vegurinn í Árneshrepp verður lokaður í dag, opnunartími kjörstaðar á Drangsnesi styttur og ekki verður flogið á Gjögur. Kosning hófst 14. mars og síðasti kjördagur er á morgun. Kjörstaðir hafa verið opnir tvo síðustu laugardaga auk þess sem fólk hefur getað komið á skrifstofu sveitarfélaganna til að kjósa. „Að auki er boðið upp á póstkosningu ef fólk sér sér ekki fært að mæta á kjörstaði,“ segir Hildur Aradóttir, formaður yfirkjörstjórnar um sameiningu Kaldrananeshrepps og Árneshrepps. Það er norðanhríð á Ströndum og útséð um að vegurinn norður í Árneshrepp verði opnaður í dag. Hildur segir veðrið litlu skárra á Drangsnesi og þar verði lokað fyrr í dag. „Skrifstofa kaldrananeshrepps á að vera opin til 1 í dag en ég er búin að auglýsa lokun frá hálfellefu, maður verður að komast heim,“ segir Hildur. Spáin er betri á morgun og Hildur segir búið að gera ráðstafanir til tryggja að öll atkvæði skili sér. „Það verður flogið á morgun og verður mokað frá flugvellinum að kjörstað svo það sé tryggt að atkvæðin komist til skila.“ Í Árneshreppi eru 54 á kjörskrá og um 90 í Kaldrananeshreppi. Ekki er búið að taka saman tölur um kjörsókn en Hildur hvetur íbúa til að greiða atkvæði. „Ég vona að þátttaka verði góð. það er ekki lágmarksfjöldi atkvæða í þessari kosningu þannig að það er bara meirihluti ræður af þeim sem kjósa,“ segir Hildur að lokum.