Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gauti og Þórdís Íslandsmeistarar í svigi

Read Full Article →

Gauti Guðmundsson varð í dag Íslandsmeistari karla í svigi á Skíðamóti Íslands í Hafnarfjalli á Akureyri. Gauti var annar eftir fyrri ferð á eftir Matthíasi Kristinssyni en skíðaði hraðast allra í seinni ferðinni og fagnaði þar með Íslandsmeistaratitlinum. Matthías varð annar, 0,52 sek. á eftir samanlögðum tíma Gauta og ólympíufarinn Jón Erik Sigurðsson endaði þriðji. Þórdís Helga Grétarsdóttir varð svo Íslandsmeistari kvenna í svigi. Hún var þriðja eftir fyrri ferð en átti frábæra seinni ferð sem skilaði henni öruggum sigri. Ólympíufarinn Sonja Lí Kristinsdóttir varð önnur og Eyrún Erla Gestsdóttir þriðja. Elín Elmarsdóttir van Pelt sem keppti á Ólympíuleikunum í síðasta mánuði var önnur eftir fyrri ferð en náði ekki að klára seinni ferðina.

Share this article