Innlent | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 21:45 Aðstoðar við þjálfun í hafnabolta Gauti notar ýmis tæki og tól til að styðjast við í greiningarvinnunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Sjúkraþjálfarinn Gauti Grétarsson er vel kynntur hérlendis eftir áratuga starf og hefur verið iðinn við að aðstoða íslenska afreksíþróttamenn. Hefur til að mynda farið á ófáa Ólympíuleikana í starfsliði íslenska hópsins. Morgunblaðið hafði spurnir af því að Gauti hefði verið í Bandaríkjunum nýlega að aðstoða leikmenn í bandarísku þjóðaríþróttinni hafnabolta eða baseball. Íþróttin hefur lítið sem ekkert verið stunduð hér á Íslandi og Gauti var því spurður hvernig í ósköpunum þetta kom til. „Ég hef verið að fara á námskeið og ráðstefnur hjá TPI [Titleist Performance Institute] en þar er verið að mennta fólk sem vinnur með kylfingum. Ég hef verið í þessum samtökum frá árinu 2008. Á ráðstefnu fyrir tólf árum hlýddi ég á erindi hjá kanadískum golfkennara og spjallaði við hann eftir fyrirlesturinn. Eftir það urðum við bara félagar og hann kom hingað til Íslands og hélt fyrirlestur fyrir Golfsambandið og PGA-samtökin á Íslandi. Ég fór einnig út til hans og mældi kylfinga í Kanada með þeim tækjum og tólum sem ég er með,“ segir Gauti og sá kanadíski er nú farinn að vinna með leikmönnum í hafnabolta. „Í hafnaboltanum eru menn ekki komnir eins langt og í golfinu þegar kemur að menntun þjálfara og því að nýta myndavélar, kraftplötur og fleira í þjálfuninni. Verið er að yfirfæra það yfir á leikmenn í hafnabolta vegna þess að munurinn á sveiflunni í þessum íþróttum er fyrst og fremst sá að boltinn er kyrr í golfinu en á hreyfingu í hafnabolta,“ segir Gauti og hann er nú farinn að hjálpa leikmönnum í hafnaboltanum að bæta árangurinn. „Hann fékk mig til að aðstoða sig við að greina hreyfinguna þegar leikmenn slá í hafnabolta vegna þess að ég er með mælitæki þar sem við getum séð hvaða vöðvar koma inn á hvaða tíma. Ég er einnig með fyrirlestra fyrir þjálfarana um samhæfingu augna og handa en tilgangurinn með því er að virkja taugakerfið betur til að fá meira út úr hverjum íþróttamanni.“ Þekkt bandarísk lið Fyrsta ferðin sem Gauti fór til Bandaríkjanna vegna hafnaboltans var síðasta haust. Hann hefur unnið með leikmönnum hjá mjög þekktum liðum úr Major League eins og LA Dodgers. „Þá hélt ég fyrirlestra fyrir þjálfara hjá Arizona Diamondbacks og í vetur fór ég aftur og gerði slíkt hið sama fyrir þjálfara hjá Los Angeles Dodgers, Texas Rangers og Cleveland Guardians. Á undirbúningstímabilinu fara öll þessi lið annaðhvort til Flórída eða Arizona í æfingabúðir. Þá er tíminn nýttur til að gera eitthvað öðruvísi og í mínu tilfelli er það annars vegar að fá meiri kraft úr líkamanum þegar menn framkvæma hreyfingar og hins vegar samhæfing augna og handa,“ segir Gauti en hann vinnur með styrktarþjálfurunum en einnig þjálfurunum sem sjá um sveifluna hjá leikmönnum. Landon Knack, kastari Los Angeles Dodgers, lætur vaða. Liðið hefur níu sinnum orðið meistari. AFP/Chris Coduto „Félagi minn er þá með kraftplötuna, nema og myndavélar. Leikmennirnir taka fimm til sex högg, við greinum það og sýnum þeim hvað hægt sé að laga líkamlega. Þá eru höggin framkvæmd aftur en eftir þessar greiningar fá þjálfararnir og leikmenn upplýsingar frá okkur um hvernig mætti laga hreyfingar á einfaldan hátt. Þetta finnst mér skemmtileg nálgun, að vinna saman við að greina hlutina.“ Einhæfar hreyfingar Í íþróttahreyfingunni hér heima er þekkt að Gauti hefur lengi boðið afreksíþróttafólki upp á þjónustu þar sem unnið er með samhæfinguna sem hann nefnir. Lætur hann þá íþróttafólkið gera þrjá hluti í einu, sem dæmi, til að auka færni. Til að nefna einfalt dæmi þá hefur komið fram að Gylfi Þór Sigurðsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, var hjá Gauta sem unglingur. Gauti hefur haldið fyrirlestra um hversu einhæfar hreyfingarnar eru í mörgum íþróttum og bent á mikilvægi þess að bæta upp styrk til að vega upp á móti því. „Flestar íþróttagreinar eru einhæfar. Við spörkum bolta með öðrum hvorum fætinum, við sláum í sömu áttina í golfi og sama á við um hafnaboltann. Við erum alltaf að þjálfa aðra hliðina. Með því að virkja hina hliðina búum við til margfaldan kraft í samanburði við það sem gerist ef menn vinna bara með aðra hliðina. Við eigum svo mikið inni með því að virkja hina hliðina. Það er eins og að keyra bíl en vera bara á tveimur hjólum.“ Leikmenn hafa komið hingað Spurður um framhaldið í þessu samstarfi við bandarísku hafnaboltafélögin segir Gauti að það muni að einhverju leyti ráðast af því hversu mikinn tíma hann hefur til að sinna því. Hann rekur jú sjúkraþjálfunarstöð hér heima og hefur ýmislegt á sinni könnu. „Ég mun líklega fara út tvisvar til þrisvar á ári til að fylgja þessu eftir. Ég hef fengið leikmenn hingað til Íslands en auðvitað er einfaldara að ég fari út til þeirra og vinni með þeim í þeirra umhverfi,“ segir Gauti og hann segir leikmenn í bandarísku þjóðaríþróttinni ósköp svipaða þeim afreksíþróttamönnum sem hann hefur unnið með í öðrum greinum. „Þeir eru ánægðir ef þeir sýna framfarir frá einum tíma til annars. Það getur skipt miklu máli ef það tekst að greina af hverju menn meiðast og ef það er vegna álags. Við vorum til dæmis með leikmann sem var meiddur en hann komst aftur í gang og stóð sig frábærlega í næstu tveimur leikjum. Áskoranirnar eru þær að auka getu þeirra sem afreksmanna en koma í veg fyrir álagsmeiðsli um leið.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Breskir skilorðsfulltrúar aðþrengdir Aðstoðar við þjálfun í hafnabolta Þorsteinn fær ekki að þvinga Ásgeir til skýrslugjafar Saltverk í samstarf við netverslunarrisa Þórsarar héldu sér á lífi með stórsigri Umræðan Tölum íslensku Er Ísland til sölu, Kristrún Frostadóttir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vegagerðin mætt með dælubíl Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Æxlin bráðnuðu í burt Furðulegt að hlusta á skammir Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Sigríður telur að sér vegið Gular viðvaranir á öllu landinu Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Breskir skilorðsfulltrúar aðþrengdir Aðstoðar við þjálfun í hafnabolta Þorsteinn fær ekki að þvinga Ásgeir til skýrslugjafar Saltverk í samstarf við netverslunarrisa Þórsarar héldu sér á lífi með stórsigri Umræðan Tölum íslensku Er Ísland til sölu, Kristrún Frostadóttir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Furðulegt að hlusta á skammir Lögreglukona sakfelld í héraði Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann „Hverju er hægt að treysta?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Sigríður telur að sér vegið Gular viðvaranir á öllu landinu Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir