Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.3.2026 | 20:15 Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Gauti ásamt foreldrum sínum Rakel Valgeirsdóttur og Einari Óskari Sigurðssyni, sem voru bæði orðin óvinnufær á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ » Fleiri tengdar fréttir Gauti Einarsson er 18 ára og hefur um árabil glímt við fíknivanda og geðhvörf. Hann hefur nú verið edrú í nokkrar vikur og hefur margt við meðferðarúrræði hér á landi að athuga, enda ekkert úrræði til sem hentar honum. Hann hefur aldrei farið í fíknimeðferð en á baki fimmtán innlagnir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL), samtals yfir 100 nætur. Þrátt fyrir að Gauti sé þakklátur því heilbrigðisstarfsfólki sem sinnti honum á BUGL segist hann ekki hafa fengið marga tíma hjá geðlækni eða sálfræðitíma sem hentuðu honum. Fleiri sem hann þekkir hafi upplifað að það sama. Frétt af mbl.is Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Það vantar rammann og það vantar eftirfylgdina. Það er svona það helsta sem mætti bæta hjá BUGL-inu,“ útskýrir hann. Misjafnt er hvað virkar fyrir börn og unglinga með fjölþættan vanda og aðstoðin sem stóð Gauta til boða inni á BUGL hentaði honum ekki alltaf, enda var hann ungur og vinna hefði þurft með hann á heildstæðari hátt til lengri tíma. Gauti hefði þurft á langtímaúrræði að halda þar sem hægt hefði verið að aðstoða hann við að takast á við sinn vanda með aðstoð fagfólks með sérþekkingu á geð- og fíknivanda. Fyrir hann eru úrræði eins og Klettabær, Stuðlar og BUGL bara geymslustaðir, þrátt fyrir að ýmis þjónusta sé þar í boði. Það er bara ekki þjónustan sem hann þarf. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Foreldarnir óvinnufærir á síðasta ári Gauti telur að gróflega reiknað hafi hann kostað íslenska ríkið um 150 til 180 milljónir á síðasta ári sem ungmenni með geð- og fíknivanda. Inn í það reiknisdæmi tekur hann allar innlagnir á geðdeild og gjörgæslu og búsetu í Klettabæ þar sem hann hefur búið síðastliðin tvö ár. Er þá ekki tekið með að báðir foreldrar hans voru óvinnufærir á síðasta ári og þurftu á endurhæfingu að halda, enda fylgir því gríðarlegt álag eiga barn með svo alvarlegan vanda og þá þarft oft eitthvað undan að láta. „Ein lausn væri að byrja að greiða meðferðir fyrir ungmenni með fjölþættan vanda í útlöndum. Það kostar tífalt minna og sumar meðferðir eru árangursríkari. Þar væri mikill sparnaður sem gæti farið í að byggja meðferðarheimili fyrir ungmenni með geð- og fíknivanda og hækka laun heilbrigðisstarfsmanna, sem myndi skila því að fleiri myndu vilja vinna þessi störf,“ segir Gauti. Lestu viðtalið í heild: Frétt af mbl.is Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Árásarmaðurinn í Texas studdi klerkastjórnina Landsliðsmaður skoraði í risasigri Þriðji sigur Íslendingaliðsins í röð Frábær nýting hornamannsins í Noregi Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Merki um að Khamenei sé látinn Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Óvæntar vinsældir í netheimum Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Árásarmaðurinn í Texas studdi klerkastjórnina Landsliðsmaður skoraði í risasigri Þriðji sigur Íslendingaliðsins í röð Frábær nýting hornamannsins í Noregi Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku 21 milljarðs gjaldþrot Play Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Óvæntar vinsældir í netheimum Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article