Innlent | mbl | 4.3.2026 | 13:45 Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Halla Hrund krefur ráðherra svara um úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Samett mynd/Reykjavíkurborg/Eggert Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ » Fleiri tengdar fréttir Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur krafið heilbrigðisráðherra svara um hve lengi ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda eigi að bíða eftir úrræðum við hæfi. Þá vill hún svör við því hvort meðferð erlendis verið niðurgreidd á meðan beðið er eftir heildstæðum lausnum hér á landi. Halla beinir fyrirspurn sinni til ráðherra eftir að hún las viðtal við hinn 18 ára Gauta Einarsson, sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag. Gauti hefur um árabil glímt við geð- og fíknivanda og hann og fjölskylda hans hafa staðið frammi fyrir viðvarandi úrræðaleysi í kerfinu hér á landi síðustu árin . Bendir Halla á að geð- og fíknivandi fari ekki í manngreiningarálit. Hann geti bankað upp á í hvaða fjölskyldu sem er. Þá bendir hún jafnframt á að saga þessara ungmenna fari allt of oft á versta veg og endi jafnvel með dauðsföllum. Frétt af mbl.is Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Foreldrarnir óvinnufærir Gauti segir meðal annars frá því í viðtalinu hvað honum finnst að kerfinu og hvernig megi bæta það. Hann telur mikilvægt að koma á fót úrræði hér á landi þar sem er boðið upp á langtímameðferð fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda, þar sem unnið er bæði með geðræn veikindi og fíknivanda. Sjálfur hefur Gauti aldrei farið í fíknimeðferð, enda er ekkert meðferðarúrræði hér á landi sem hentar honum. Hann hins vegar að baki fimmtán innlagnir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). Samtals yfir 100 daga. Hann hefur oftar en einu sinni verið nær dauða en lífi vegna neyslunnar og ítrekað sett fjölskyldu sína í þá stöðu að vera frávita af áhyggjum um afdrif hans. Báðir foreldrar hans voru óvinnufærir á síðasta ári og þurftu á endurhæfingu að halda. Frétt af mbl.is Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Fari allt of oft á versta veg Halla segir loforðin mörg þegar kemur að málefnum þessara barna og ungmenna en framkvæmdin sé óskýr. Saga Gauta sé saga margra ungmenna og fjölskyldna þeirra. „Um síðustu helgi var fjallað um sögu Gauta sem á langa sögu í slíkri baráttu. Við vitum að saga hans er saga margra ungmenna og fjölskyldna þeirra sem hafa barist lengi við kerfið. Saga ungmenna sem rekur af leið vegna þess að heildræna meðferð og stuðning skortir. Allt of oft endar sagan á versta veg, eins og kertafleytingarnar á Tjörninni í desember síðastliðnum minntu okkur harkalega á,“ segir Halla og vísar þar til þess þegar hópur fólks kom saman og minntist drengja sem kerfið greip ekki og féllu frá langt fyrir aldur fram vegna geð- og fíknivanda. Frétt af mbl.is „Það er ekkert að gerast og dauðsföllum fjölgar“ Í lok árs birtist hér á mbl.is umfjöllun og viðtöl við foreldra fjögurra ungmenna sem létust vegna fíknivanda. Allir eiga foreldrarnir það sameiginlegt að hafa barist við kerfið árum saman fyrir þjónustu og úrræðum fyrir börn sín, með takmörkuðum árangri. „Þessi vandi fer ekki manngreiningarálit, en mörg ungmenni úr stuðningsríku umhverfi, líkt og Gauta. Þvert á það sem margir halda. Þessi vandi nær einfaldlega til okkar allra og snertir flestar fjölskyldur á Íslandi með einum eða öðrum hætti,“ segir Halla. „Gauti og fjölskylda hans stíga fram í þeirri von að saga hans leiði til þess að stjórnvöld hlusti og breyti kerfinu. Sem er eðlileg krafa. Ég fullyrði, að væru þessi ungmenni væru að takast á við önnur veikindi - þá væri búið að bregðast við með allt öðrum hætti.“ Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Frétt af mbl.is Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óskar eftir tímalínu aðgerða Halla spyr hvenær verði boðið upp á markvissari og samþættari meðferð fyrir ungmenni sem glíma bæði við geð- og fíknivanda. „Hér er átt við úrræði sem skapa ekki gjá við 18 ára aldur heldur taka utan um ungmennin yfir þann tíma. Úrræði sem líkjast meira þeim sem í boði eru í löndum líkt og Svíþjóð og Hollandi.“ Þá spyr hún hvort boðið upp á aðgengi að sambærilegum úrræðum erlendis á meðan beðið er eftir heildstæðum lausnum hér á landi og hvort slík þjónusta fjármögnuð af ríkinu. „Í fjárlögum yfirstandandi árs var fjármagn til endurhæfingarþjónustu og heilsugæslu vegna fíknivanda aukið umtalsvert. Samt er nánast ókleift að sjá hvaða markmið og mælikvarðar eru á bak við auknar fjárheimildir. Hvers kyns þjónustu á að fjármagna? Fyrir hversu marga? Er um að ræða ný úrræði og þá hver. Skýrleika í framkvæmd og eftirfylgni virðist skorta,“ segir í fyrirspurn Höllu. Þá óskar hún að lokum eftir því að ráðherra greini frá tímalínu slíkra aðgerða. Frétt af mbl.is Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Frétt af mbl.is Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Stefna á algjör yfirráð í lofti innan tveggja daga Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Dark snow showers expected in Southwest Iceland today Karólína Helga leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Voru að telja atkvæði í kjöri um nýjan leiðtoga Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Höfuðborgarbúar losna ekki við snjóinn í bili Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Stefna á algjör yfirráð í lofti innan tveggja daga Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Dark snow showers expected in Southwest Iceland today Karólína Helga leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfuðborgarbúar losna ekki við snjóinn í bili Koma bara ef þeir fá læknishjálp Umdeild próf lögð fyrir nema Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“