Tækifæri á flekaskilum er efni ársfundar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem fer fram í dag frá 13-15 í Silfurbergi í Hörpu. Gunnþór Ingvason, formaður SFS og forstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað, flytur opnunarávarp. Jens Larson, alþjóðahagfræðingur hjá Eurasia Group, verður með erindið Geopolitics is reshaping the global economy. Christian Chramer, forstjóri Norwegian Seafood Council, verður með erindið Hit by a wave - how to continue surfing on demand growth and avoiding the currents of tariffs and wars. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, er með erindið Í stormi og hríð, hvert ár alla tíð. Þá verða Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi Deloitte, og Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, í samtali á sviði. Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi hjá Athygli, er fundarstjóri.