Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) var haldinn í Silfurbergi í Hörpu, í lok mars. Yfirskrift fundarins var Tækifæri á flekaskilum. Framsögumenn á fundinum voru Jens Larsson alþjóðahagfræðingur hjá Eurasia Group og Christian Chramer, forstjóri norska sjávarútvegsráðsins (e. Norwegian Seafood Council). Auk þeirra flutti Gunnþór Ingvason, formaður SFS og forstjóri Síldarvinnslunnar erindi, sem og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS. Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra áttu samtal um sjávarútvegsmál á sviðinu í Silfurbergi. © BIG (VB MYND/BIG) Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, flutti erindi á ársfundi samtakanna. © BIG (VB MYND/BIG) Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi hjá Athygli, var fundarstjóri. Katrín var þingmaður Samfylkingarinnar og ráðherra um árabil og gegndi framkvæmdastjórastöðu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu frá árinu 2016 til 2022. © BIG (VB MYND/BIG) Christian Chramer, forstjóri norska sjávarútvegsráðsins, var með erindi þar sem hann fjallaði um það hvernig hægt væri að mæta vaxandi eftirspurn á tímum tolla og stríðsátaka. © BIG (VB MYND/BIG) Jens Larsson alþjóðahagfræðingur hjá Eurasia Group, fjalla á fundinum um það hvernig stjórnmál á alþjóðavettvangi væru að endurmóta heimshagkerfið. © BIG (VB MYND/BIG) Gunnþór Ingvason, formaður SFS og forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, flutti opnunarávarp aðalfundarins í Hörpu. © BIG (VB MYND/BIG) Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte, áttu samtal um sjávarútvegsmál á sviðinu í Silfurbergi. © BIG (VB MYND/BIG) Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri KOM. © BIG (VB MYND/BIG) Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, var á meðal fundargesta. © BIG (VB MYND/BIG) Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður og Logi Bergmann Eiðsson, sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá SFS. © BIG (VB MYND/BIG) Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jakob Lars Kristmannsson, sérfræðingur hjá Viðskiptaráði og Þröstur Sæmundsson, hagfræðingur hjá SFS. © BIG (VB MYND/BIG) Lísa Anne Libungan, fiskifræðingur hjá SFS, Jakob Lars Kristmannsson, sérfræðingur hjá Viðskiptaráði og Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs.