Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Iðnþing í Hörpu

Read Full Article →

Iðnþing Samtaka iðnaðarins fór fram í Silfurbergi í Hörpu í liðinni viku en yfirskrift þingsins þetta árið var „Finnum samhljóminn“. Mikilvægi verðmætasköpunar var í brennidepli á þinginu. Fjallað var um aukið spennustig á alþjóðasviðinu, sem hefur breytt aðgengi að erlendum mörkuðum og kallað á sterka hagsmunagæslu Íslands. Einnig var fjalla um óvissu og auknar þrengingar í efnahagsmálum hérlendis, sem krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls. Fjölmennt var í Hörpu, þar sem Árni Sigurjónsson, fráfarandi formaður SI, flutti opnunarávarp og Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra var með tölu. Fjölmargir aðrir tóku þátt í umræðum © BIG (MYND/BIG) Árni Sigurjónsson flutti sitt síðasta ávarp sem formaður Samtaka iðnaðarins. Hann setið í stjórn samtakanna á áratug og verið formaður síðustu sex ár. © BIG (MYND/BIG) Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra var með erindi á þinginu. © BIG (MYND/BIG) Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ávarpaði þingið að venju. © BIG (MYND/BIG) Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Ísland, fjallaði um þær áskoranir sem fyrirtækið hefur staðið fram fyrir síðustu misseri. © BIG (MYND/BIG) Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. © BIG (MYND/BIG) Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, var með tölu á þinginu © BIG (MYND/BIG) Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech, sagði á áskoranir á alþjóðasviðinu þýddu að Ísland þyrfti að hafa skýra sýn. © BIG (MYND/BIG) Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, flutti erindi á ráðstefnunni. © BIG (MYND/BIG) Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. © BIG (MYND/BIG) Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins og Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. © BIG (MYND/BIG) Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) og Bjarni Benediktsson, sem er nýtekinn við framkvæmdastjórastöðu SA. © BIG (MYND/BIG) Fjölmenn var á þinginu og hér má m.a. sjá Snorra Másson, þingmann Miðflokksins og Ara Edwald, oddvita flokksins í Reykjavík. © BIG (MYND/BIG) Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins, í ræðustól á þinginu. © BIG (MYND/BIG) Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, er nýr formaður Samtaka iðnaðarins. © BIG (MYND/BIG) Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. © BIG (MYND/BIG) María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Fjallað var um málið í Viðskiptablaðinu .

Share this article