Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint: Iðnþing 2026

Read Full Article →

Finnum samhljóminn er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu í dag frá kl. 14 til 16. Aldrei áður hafa svo margir skráð sig sem raun ber vitni en búist er við um 700 gestum á þingið. „Við byggjum öll okkar lífskjör á framleiðslu verðmæta. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og breytt aðgengi að erlendum mörkuðum kalla á sterka hagsmunagæslu Íslands,“ segir í tilkynningu SI. „Óvissa og auknar þrengingar í efnahagsmálum hér á landi krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls. Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um nauðsynlegar umbætur.“ Viðskiptablaðið gaf út sérblaðið Iðnþing 2026 í tengslum við viðburðinn en þar má nálgast viðtöl við nokkra þátttakendur á þinginu. Þátttakendur í dagskrá Árni Sigurjónsson, formaður SI Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Ísland Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals Inga Helga Halldórudóttir, yfirlögfræðingur Mílu Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI

Share this article