Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Elds­neytis­verð hækkað minna hér en á öðrum Norður­löndum

Read Full Article →

Elds­neytis­verð hefur hækkað mun minna á Ís­landi en á hinum Norður­löndunum frá áramótum, sam­kvæmt nýrri greiningu Sam­taka verslunar og þjónustu, SVÞ. Um­ræða um elds­neytis­verð hefur verið áberandi síðustu daga, meðal annars eftir að Hag­stofa Ís­lands greindi frá því að verð á bensíni hefði hækkað um 5,8 pró­sent í mars og verð á dísilolíu um 6,9 pró­sent. Í greiningu SVÞ, sem byggir á gögnum frá GlobalPetrolPrices, kemur fram að verðhækkun á dísilolíu hér á landi hafi verið sú lægsta á Norður­löndunum á tíma­bilinu 5. janúar til 23. mars Á sama tíma­bili hafi bensín­verð á Ís­landi hækkað næst­minnst. Sam­kvæmt greiningunni hækkaði bensín­verð hér á landi um 22 krónur á lítra en hækkunin á hinum Norður­löndunum nam 15 til 86 krónum. Verð á dísilolíu hækkaði á sama tíma um 32 krónur á lítra á Ís­landi, saman­borið við 33 til 99 króna hækkun annars staðar á Norður­löndunum. SVÞ segir þessar niður­stöður benda til þess að ís­lenskir sölu­aðilar hafi hvorki velt kostnaðar­hækkunum hraðar út í verð né í meira mæli en sam­bæri­leg fyrir­tæki á hinum Norður­löndunum. Samtökin telja því að lítið hald sé í þeim mál­flutningi að ís­lensk fyrir­tæki hafi gengið óeðli­lega hart fram í ný­legum verðhækkunum. Sjá einnig For­maður VR kallar eftir verðþaki á olíu Þá segir í um­fjöllun SVÞ að mikilvægt sé að um­ræða um elds­neytis­verð og mögu­leg inn­grip, svo sem verðþak, byggist á gögnum og yfir­vegun. Samtökin taka þó fram að hækkandi elds­neytis­verð hafi bæði bein og óbein áhrif á heimili og fyrir­tæki og að þróun á alþjóðamörkuðum geti haft neikvæð áhrif hér á landi eins og annars staðar. SVÞ segir jafn­framt að það sé fyrir­tækjanna sjálfra að finna leiðir til að bregðast við verðbreytingum á alþjóða­vísu en að saman­burðurinn við önnur Norður­lönd sýni að þróunin á Ís­landi hafi verið hóf­legri en víða annars staðar.

Share this article