Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

U-beygja hjá ESB vegna olíuvinnslu á Norðurslóðum

Read Full Article →

Evrópusambandið er með til skoðunar að hætta andstöðu við nýja olíu- og gasvinnslu á Norðurslóðum en sambandið horfir nú til þess að bæta orkuöryggi álfunnar í kjölfar áhrifa stríðsátaka í Miðausturlöndum á evrópska orkumarkaðinn. ESB hefur frá árinu 2021 beitt sér fyrir banni á vinnslu á olíu, kolum og gasi á Norðurslóðum vegna loftslags- og umhverfissjónarmiða. Nú er sambandið með til skoðunar að falla frá slíkum tillögum, samkvæmt heimildarmönnum Financial Times . U-beygjan er sögð hluti af endurskoðun ESB á stefnu sinni fyrir Norðurslóðir sem stefnt er að því að kynna í haust. Í umfjölluninni er bent á að ESB tók upp markmið um bann á slíka vinnslu á Norðurslóðum áður en Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022 og nýlegs stríðs í Íran sem hefur varpað ljósi á að hvað ESB reiðir sig mikið á innflutt jarðefnaeldsneyti. Evrópusambandsríki flytja inn um 57% af þeirri orku sem þau nota, samkvæmt nýlegu mati Eurostat. Í skjali sem FT hefur undir höndum er viðurkennt að ekki hafi tekist að sannfæra alþjóðlega samstarfsaðila og önnur ríki um bann á boranir fyrir olíu- og gasvinnslu á Norðurslóðum. Framkvæmdastjórn ESB vilji nú skoða að taka upp aðra stefnu. Noregur myndu líklega njóta mest góðs af því ef ESB myndi falla frá stefnu sinni um bann á nýrri olíu- og gasvinnslu á Norðurslóðum. Heiðar gagnrýndi fastafulltrúa ESB fyrir tillöguna Heiðar Guðjónsson fjárfestir gagnrýndi þessa stefnu ESB harðlega á á ráðstefnu Hringborðs Norðurslóða (Arctic Circle) haustið 2021 og átti þar í orðaskiptum við fastafulltrúa ESB í málefnum Norðurslóða, eins og Viðskiptablaðið fjallaði um á sínum tíma. Sjá einnig Heiðar gagn­rýnir loft­slags­­stefnu ESB Heiðar hefur haldið því fram að hvergi annars staðar hafi verið gengið með ábyrgari hætti um umhverfið og náttúruauðlindir eins og á Norðurslóðum. Þau samfélög búi yfir ríkri sögu og þekkingu á sviði olíuleitar og -vinnslu, landbúnaðar og fiskveiðum. Auk þess sé umhvefissporið minnst hjá þessum löndum. „Mér finnst algjörlega ólógískt að segja: við skulum halda áfram uppbyggingu á svæðum sem hafa ömurlega sögu að segja en loka fyrir þetta svæði sem hefur sýnt ábyrgustu stjórnina um hundruða ára skeið,“ sagði Heiðar í þætti Þjóðmála í september 2021, þegar rætt var um þessa stefnu ESB.

Share this article