Jafnrétti, framtíð orkumála og hlutverk kvenna í atvinnulífinu voru í brennidepli á KÍO deginum. Konur í orkumálum fagna nú tíu ára afmæli en á þeim tíma hefur KÍO orðið mikilvægur vettvangur fyrir konur í orkugeiranum, þó enn sé verk að vinna. Á fundinn mættu auk 200 kvenna, forseti Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, forstjórar úr orku- og veitugeiranum, ásamt fleiri góðum gestum. Halla Tómasdóttir forseti Íslands var meðal þeirra sem ávarpaði gesti og lagði áherslu á sérstöðu Íslands. Jafnrétti, endurnýjanleg orka og friðsamt samfélag sé gríðarlegur styrkleiki, og virkja þurfi alla okkar krafta. Hún benti á að Ísland væri með sterkan grunn, en að skýrari fókus þyrfti til að segja skarpa og sannfærandi sögu út á við. Marta Rós Karlsdóttir og frú Halla Tómasdóttir í sófaspjalli. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Halla lagði einnig áherslu á breytingu í hugsunarhætti samfélagsins, þar sem fara þyrfti frá samkeppni yfir í samvinnu. Loks hvatti hún konur til að stíga fram af hugrekki: „Við þurfum ekki leyfi til að hafa áhrif. Það hugrakkasta er að mæta til leiks í eigin mætti og vera við sjálfar.“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, hvatti þá konur til að treysta innsæinu og sækja fram. Hún sagði mikilvægt að fara út fyrir þægindarammann og maður þurfi að umkringja sig fólki sem veit meira en maður sjálfur. Þórdís Kolbrún lagði loks áherslu á að ný heimsmynd kalli á nýjar raddir: „Það er þörf fyrir konur sem þora að vera þær sjálfar.“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var með erindi sem bar heitið ,,að passa í piparkökuformið“. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Þá var rætt um mikilvægi menningar sem skapar rými fyrir margar sterkar konur sem styðja hver aðra, enda sé raunveruleg breyting háð samvinnu. Ásta Dís Óladóttir, prófessor og stofnandi Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, fór yfir stöðu kvenna á vinnumarkaði og benti á að þó konur séu fjölmennar í opinbera geiranum og pólitíkinni þá sé það ekki staðan í einkageiranum. Þá séu einungis um 23% framkvæmdastjóra á Íslandi konur og ef fram heldur sem horfir þá verði það í fyrsta lagi árið 2065 að við sjáum 40/60 hlutfall í æðstu stöðum á Íslandi, konur þá 40%. Ásta Dís Óladóttir fór yfir stöðu kynja í viðskiptalífinu. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Hún benti á að markviss inngrip, eins og kynjakvótalög í stjórnum, hafi skilað árangri en þau hafi engin smitáhrif heldur nái bara til þess sem þau gilda um. Á KÍO-deginum fór einnig fram sófaspjall forstjóra orku- og veitufyrirtækja undir yfirskriftinni „Er þetta ekki bara komið?“ þar sem rætt var um stöðu jafnréttismála og ábyrgð leiðtoga. ,,Við höfum náð ákveðnum árangri en það má lítið út af bregða til að þetta fari aftur til baka,” sagði Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, og lagði einnig áherslu á mikilvægi vinnustaðamenningar, að fólk geti verið það sjálft í vinnunni. Selma Svavarsdóttir, formaður Kvenna í orkumálum, Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, og Magnús Þór Ásmundsson, forstjór © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, tók í sama streng: „Stutta svarið er nei, þetta er ekki komið. Ég hélt í raun að þetta væri komið, þetta væri orðið sjálfbært og að boltinn myndi bara rúlla. En það er ekki rétt, þetta hefur staðið í stað eða jafnvel gefið aðeins eftir. Þegar maður horfir svona 10 ár aftur í tímann þá er margt sem við getum verið stolt af, en þetta er ekki komið, og ekki orðið sjálfbært og við verðum að vera á tánum.“ Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, lagði áherslu á virka nálgun í ráðningum: „Ef það sækir ekki kona um – farðu þá og finndu hana.“ Hún ræddi einnig um mikilvægi þess að staldra við áður en farið er í ráðningu og skoða starfið út frá þeirri hæfni sem mikilvæg er fyrir viðkomandi starf til framtíðar. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, og Páll Erland, forstjóri HS Veitna. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) „Þetta snýst um árangur, verðmætasköpun og samkeppnishæfni þjóðarinnar. Ef við erum að taka ákvarðanir án þess að við borðið séu fjölbreyttur hópur, þá vantar bara mjög mikið inn í ákvarðanatökuna. Við þurfum að tryggja að konur séu við borðið”, sagði Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Hafdís Helga Helgadóttir upplýsingafulltrúi Samorku, ræddi um mikilvægi þess að þora að stíga fram. Hún lagði áherslu á góðan undirbúning: „Undirbúningur er besti búningurinn, en fjölmiðlaumhverfið er líka kvikt. Stundum þarf einfaldlega að stökkva þegar kallið kemur.“ Hafdís Helga Helgadóttir nýr upplýsingafulltrúi Samorku gaf góð ráð þegar kemur að fjölmiðlaframkomu. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Anna Margrét Gunnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri Almannaróms, hvatti loks til þess að láta gagnrýni og neikvæðar athugasemdir ekki draga úr sér kjarkinn. Í stað þess ætti að taka slíku eins og hverju öðru selbiti, láta það ekki hafa of mikil áhrif og halda einfaldlega áfram. Anna Margrét Gunnarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Almannaróms. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Birna Bragadóttir, Harpa Pétursdóttir, Helga Kristín Jóhannsdóttir og Hera Grímsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Árni Hrannar Haraldsson, Sólrún Kristjánsdóttir og Kristín Linda Árnadóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Stjórnarkonurnar Helga Kristín Jóhannsdóttir og Ása Björk Jónsdóttir, fóru yfir vegferðina síðastliðin 10 ár og stöðuna í dag. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Herdís Skúladóttir, Kristín Björk Bjarnadóttir, Lilja Björk Hauksdóttir, Tinna Jóhannsdóttir og Hilmar Rós Ómarsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Inga Lára Jónsdóttir, Þórhildur Eva Jónsdóttir, Páll Erland, Ástríður Guðný Sigurðardóttir og Sigrún Inga Ævarsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir, Arndís Einarsdóttir, Laufey Hjaltadóttir, Freyja Björk Dagbjartsdóttir og Þórgunnur Þorsteinsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Sólrún Jóna Böðvarsdóttir, Gunnhildur Jónsdóttir og Elísabet Halldórsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Heiða Halldórsdóttir, stjórnarkona í KÍO. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Erna Sigurðardóttir, Elín Björk Böðvarsdóttir, Elín Smáradóttir, Íris Lind Sæmundsdóttir og Harpa Sjöfn Lárusdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Elísabet Halldórsdóttir og Lilja Sóley Pálsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Stjórn KÍO. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Alma Gytha Huntingdon-Williams. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, Kristín Inga Arnardóttir, Selma Svavarsdóttir og Heiða Halldórsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Selma Svavarsdóttir, formaður KÍO. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal) Frú Halla Tómasdóttir, Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, Marta Rós Karlsdóttir og Selma Svavarsdóttir. © Elísabet Blöndal (Elísabet Blöndal)