Innlent | Morgunblaðið | 25.4.2026 | 9:00 Pólitíkin má ekki bera stjórnmálin ofurliði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Setja bókamerki Úr ólíkum áttum | Pistill Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur úr sunnudagsblaði Morgunblaðsins Í vikunni var tilkynnt að ég hefði verið skipuð tímabundið til þess að gegna embætti sendiherra í íslensku utanríkisþjónustunni og mun ég af þeim sökum segja af mér þingmennsku á mánudaginn. Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt til þess að gegna svo mikilvægri stöðu í þágu Íslands. Í gegnum störf mín á undanförnum árum hef ég kynnst hversu fjölbreytt og annasöm störf íslenskra sendiherra eru. Það er mikil ábyrgð að vera opinber fulltrúi sjálfstæðs og fullvalda ríkis. Í tilviki Íslands er verkefnið jafnvel enn mikilvægara þar sem staða okkar í heiminum er að svo miklu leyti grundvölluð á því að við ræktum vel samskipti við vina- og bandalagsþjóðir. Það er því metnaðarmál fyrir mig að standa undir þessu trausti og ég mun á næstu mánuðum leggja mig fram um að læra sem best allt það sem ég á ólært á þeim vettvangi (og það er margt) en finna einnig leiðir til þess að nýta þá reynslu, þekkingu og getu sem ég hef öðlast á fyrri starfsvettvangi. Hafi reynslan kennt mér eitthvað hingað til, þá er það mikilvægi þess að læra af öðrum og þykjast ekki vita og skilja fyrr en maður raunverulega veit og skilur. Þegar maður fer með ábyrgð og völd er mikilvægt að missa ekki sjónar á tilganginum sjálfum. Oft hef ég talað um aðgreiningu milli pólitíkur og stjórnmála. Þá flokkast sem pólitík átök á yfirborðinu þar sem fólk berst fyrir stöðu sinni, reynir að klekkja á andstæðingum, vera skemmtilegt, fanga athyglina, gera hluti sem eru fallnir til vinsælda og leggja rækt við flokkshollustu. Og allir stjórnmálamenn þurfa að kunna að fóta sig í pólitík. Réttast fyrir Ísland Stjórnmálin snúast í mínum huga um lengri tíma markmið og það er í gegnum þau sem raunveruleg þróun samfélagsins á sér stað. Þar er ráðandi hugsunin sem í upphafi kveður fólk til þess að byrja að hafa áhuga á þjóðfélagsmálum; viljinn til þess að bæta samfélagið í kringum sig með góðum hugmyndum og vel ígrundaðri stefnu. Þar mælist árangurinn ekki í kosningasigrum heldur í raunverulegum árangri fyrir land og þjóð. Í stjórnmálum er ekki fyrst spurt hvað sé best eða þægilegast fyrir flokkinn eða stjórnmálamanninn sjálfan – heldur alltaf og eingöngu: „Hvað er réttast fyrir Ísland?“ Áfram mun spurningin um hvað sé best fyrir Ísland vera leiðarljós í störfum mínum. Eins og ég hef löngum gert þegar kemur að utanríkismálum þá geri ég orð Hannesar Hafstein að mínum þegar hann sagði að utan landsteina væri hann ekki lengur flokksmaður, heldur Íslendingur. Undanfarna daga hef ég fengið mikil viðbrögð við fyrirhuguðum vistaskiptum, margar fallegar kveðjur og er þakklát fyrir þann stuðning og skilning. Sú tilfinning virðist fara vaxandi, að tími mikillar alvöru sé runninn upp og að töluvert liggi á að við gerum okkur grein fyrir að sumar af þeim áhyggjum og sum af þeim viðfangsefnum sem borið hafa ægishjálm yfir íslenska stjórnmálaumræðu kunni að falla í skuggann á miklu stærri og alvarlegri málum. Við vonum að svo verði ekki, en þótt vonin sé fögur og nærandi, þá er hún ekki traustur grunnur til þess að byggja á. Við þurfum að horfast í augu við heiminn eins og hann er, en ekki eins og hann var áður eða eins og við óskum okkur að hann væri. Mikilvæg hugarfarsbreyting Í nýlegri viðhorfskönnun sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið komu að mínu mati fram vísbendingar um að aukin alvara sé að færast í umræðu um utanríkismál en einnig vaxandi þroski. Þar kom til dæmis fram að 84 prósent aðspurðra hafa meiri áhyggjur af þróun alþjóðamála nú en fyrir ári en einungis tvö prósent hafa minni áhyggjur. Þá hefur 71% aðspurðra miklar áhyggjur af þróun alþjóðamála en tæplega 6% litlar eða engar. Einnig kom fram að í fyrsta skipti frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu eru fleiri sem lýsa sig fylgjandi en andvíga því að Ísland styðji Úkraínu með vopnakaupum. Nú eru 42 prósent hlynnt slíkum stuðningi, en 30 prósent andvíg, en þegar spurningin var fyrst borin upp, í maí 2022, voru einungis 21 prósent fylgjandi en 52 prósent andvíg. Þótt ég hati stríð og mér sé illa við vopn þá þykir mér þessi hugarfarsbreyting mikilvæg. Þegar ég tók ákvörðun um það á fyrstu dögum stríðsins að Ísland legði til flutning á skotfærum til Úkraínu þá gerði ég mér grein fyrir og hafði skilning á að mörgum þætti það óþægilegt. Það var hins vegar ákvörðun sem ég efaðist aldrei um að væri rétt fyrir Ísland og þetta litla framlag okkar skipti raunverulegu máli fyrir Úkraínu, meira en ég gerði mér í hugarlund. Í reynd hafði Ísland með þessu framlagi nýtt sér þann kraft sem falist getur í smæðinni, því margfalt umfangsmeiri stuðningur stærri ríkja skilaði sér töluvert seinna en það litla sem við lögðum til. Í þessu samhengi vil ég aftur þakka fyrir þann þverpólitíska stuðning sem þessar ákvarðanir hlutu. Og birtist sömuleiðis í þingsályktun sem fól í sér varnartengdan stuðning fyrir Úkraínu. Þar stigu ýmsir langt út fyrir þægindarammann og tóku hagsmuni Íslands og réttan málstað fram yfir pólitískan skammtímagróða. Þegar heimurinn lítur til Ísland s þá sér hann ekki þá flokkadrætti sem við erum oft upptekin af. Þetta er mikilvægt að hafa í huga nú þegar taka þarf stórar ákvarðanir í breyttum heimi. Ábyrgð okkar allra felst í því að vanda okkur og láta ekki pólitíkina bera stjórnmálin ofurliði. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, [email protected] Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Í umferðarteppu í 92 klukkustundir „Þá fór allt í skrúfuna“ Úr Ólíkum áttum: Pólitíkin má ekki bera stjórnmálin ofurliði Bandaríkin leiti leiða til að „bjarga andlitinu“ Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkari réttur til kosningaþátttöku Hermaður sagður hafa veðjað á handtöku Maduros Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Ekið á gangandi vegfaranda Mest lesið Í gær Í vikunni Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ „Mér finnst þetta fáránlegt“ Hundurinn þarf hvíldarinnlögn Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Takast á um virkjunarkosti Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Fólk þurfi að vera hrætt Nýjast á mbl.is » Í umferðarteppu í 92 klukkustundir „Þá fór allt í skrúfuna“ Úr Ólíkum áttum: Pólitíkin má ekki bera stjórnmálin ofurliði Bandaríkin leiti leiða til að „bjarga andlitinu“ Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Minntist ekki á varanlegar undanþágur Veltihringrásin nálgast vendipunkt Ekið á konu á gangi við Skógarveg Mest lesið Í gær Í vikunni Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ „Mér finnst þetta fáránlegt“ Hundurinn þarf hvíldarinnlögn Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Takast á um virkjunarkosti Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Fólk þurfi að vera hrætt