Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Undrandi á minnisblaði menntamálaráðherra – „Við áttum okkur ekki alveg á þessu útspili“

Read Full Article →

Formaður Kennarasambands Íslands segir minnisblað Ingu Sæland menntamálaráðherra um breytingar á skólakerfinu vera sérkennilegt í ljósi samtals milli kennara og stjórnvalda í kjölfar kjarasamninga í fyrra. „Kennarasambandið, Samband íslenskra sveitarfélaga og kjara- og mannauðssvið ríkisins hafa síðan í mars á síðasta ári fundað reglulega,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, í kvöldfréttum sjónvarps. „Við áttum okkur ekki alveg á þessu útspili, hvort hér sé menntamálaráðuneytið einhvern veginn að stíga inn í það ferli, sem er þó aðili að málinu.“ Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra vill fjölga kennsludögum og kennslutímum til að bæta námsárangur íslenskra barna. Skóladagar á Íslandi eru 180 dagar samkvæmt grunnskólalögum og fjöldi kennsludaga er áætlaður 170 dagar. Formaður Kennarasambands Íslands segir minnisblað menntamálaráðherra gefa til kynna að markmið hennar séu ekki í fullu samræmi við virðismatsvegferð sem ráðist var í í kjölfar kjarasamninga. Inga lagði minnisblað fyrir ríkisstjórnina í vikunni þar sem hún sagði að útgjöld á hvern nemanda í grunn- og framhaldsskóla hér á landi væru þau hæstu innan OECD-landanna. Námsárangurinn sé á sama tíma undir meðaltali og kennsluskylda kennara lítil. Nauðsynlegt sé að taka umræðuna upp í kjarasamningsviðræðum kennara og gera starfsaðstæður þeirra sambærilegri við aðra opinbera starfsmenn. Magnús Þór segir útgjöld í íslenska skólakerfinu vera há í samanburði meðal OECD-ríkja en í meðallagi fyrir Norðurlöndin. Mikil áhersla sé lögð á menntun barna sem hluta af sterku velferðarkerfi, auk þess sem Ísland hafi þá sérstöðu að leggja til að mynda mikla áherslu á list- og verkgreinar í gegnum meirihluta skólagöngunnar. Magnús segir fregnir af minnisblaði Ingu hafa komið kennurum á óvart. „Okkur finnst það sérkennilegt og kannski til þess fallið að menn ætli sér að fara í einhverja aðra niðurstöðu en lagt var af stað með.“

Share this article