Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ætlar ekki endurskoða minnisblað um breytingar á skólakerfinu

Read Full Article →

Mennta- og barnamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til að endurskoða samanburð á kennsludögum og skóladögum. Gögn Hagstofunnar sýni að töluverður munur er á fjölda skóladaga og fjölda kennsludaga í grunnskólum landsins. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Vill lengja skólaárið og fjölga kennslustundum Sérfræðingar ráðuneytisins unnu að gerð minnisblaðs, sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórn í síðustu viku. Inga vill lengja skólaárið og fjölga kennslustundum, til að bæta námsárangur íslenskra nemenda. Minnisblaðið hefur verið gagnrýnt af kennurum, meðal annars fyrir skilgreiningu á skóladögum annars vegar og kennsludögum hins vegar. Í minnisblaðinu segir að skóladagar á Íslandi séu 180 dagar samkvæmt grunnskólalögum og fjöldi kennsludaga um 170. Fjöldi kennsludaga er svo notaður til að bera íslenska skólakerfið saman við skólakerfi annarra Evrópuríkja. Niðurstöður þess samanburðar sýna að íslenskir nemendur eru undir í samanburði við nemendur í öðrum ríkjum um fjölda kennsludaga og heildarfjölda kennslustunda. Gagnrýni á að miðað sé við kennsludaga en ekki skóladaga Kennarar hafa sagt það villandi að ráðuneytið dragi ályktanir út frá fjölda kennsludaga. Kennsla fari fram 180 daga á ári, ekki 170, og við þá tölu eigi að miða í alþjóðlegum samanburði. Í svari ráðuneytisins, meðal annars við þessari gagnrýni, segir að íslensk stjórnvöld hafi skilað til OECD tölum um 170 kennsludaga á Íslandi til margra ára og hafa ekki verið gerðar athugasemdir við það af hálfu hagaðila.

Share this article