Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Varphænum fjölgar á Kjalarnesi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 22:10 Varphænum fjölgar á Kjalarnesi Stjörnuegg heldur áfram uppbyggingu hænsnabús í Saltvík á Kjalarnesi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Fyrirtækið Stjörnuegg hyggst halda áfram með uppbyggingu hænsnabús í Saltvík á Kjalarnesi. Á jörðinni hefur fyrirtækið rekið skylda starfsemi síðan 1998, t.a.m. uppeldishús varpfugla og stofnfuglahús. Stjörnuegg er fjölskyldufyrirtæki sem tengist Vallá á Kjalarnesi. Þar hófst uppbygging og rekstur eggjabús um 1970. Tvö varphús eru þegar risin í Saltvík. Hið fyrra var reist 2023 og hið seinna 2024. Húsin eru um 1.700 fermetrar og rúma um 24.000 – 26.000 varpstæði. Stæði fyrir 10 þúsund hænur Til stendur að reisa eitt varphús til viðbótar, sem verður um 1.700 fermetrar með stæði fyrir um 10.000 varphænur og aukaaðstöðu fyrir starfsemina. Með viðbótinni verður heildarstærð búsins um 5.100 m 2 með stæði fyrir um 59.900 varphænur. Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu hefur verið birt í Skipulagsgáttinni og er kynningartími til 30. mars nk. Gert er ráð fyrir að ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar liggi fyrir innan sjö vikna frá upphafi kynningartíma. Vaxandi eftirspurn Í greinargerð Stjörnueggs, sem unnin er af VSÍ ráðgjöf, kemur fram að markmið og tilgangur framkvæmdarinnar sé að styrkja landbúnaðarstarfsemi á býlinu og svara aukinni eftirspurn eftir eggjum á landinu en eftirspurn hefur verið vaxandi undanfarin ár. Til að koma til móts við það verði ráðist í að reisa ný varphús á Reit C í Saltvík á Kjalarnesi á skilgreindu landbúnaðarsvæði. Með fjölgun húsa gefst líka tækifæri til að hvíla húsin lengur á milli hópa og minnka þar með smitálag. Ef íslenskir framleiðendur mæti ekki eftirspurninni muni henni áfram vera mætt að utan. Íslensk eggjaframleiðsla hafi ýmsa kosti, störf skapist í dreifbýli og umhverfisáhrif séu minni en af sambærilegri starfsemi erlendis. Búið í Saltvík sé vel í sveit sett en staðsetningin henti ágætlega fyrir starfsemina enda á skilgreindu landbúnaðarsvæði og stutt í alla stoðþjónustu. Fag- og verkþekking sé þegar á staðnum og samlegðaráhrif við núverandi framleiðslu á jörðinni. mbl.is/Styrmir Kári Skilgreint landbúnaðarland Jörðin Saltvík á Kjalarnesi er u.þ.b. 150 hektarar, skilgreint landbúnaðarland. Jörðin er láglend og mýrar hafa verið ræstar fram fyrir alllöngu, þannig að hluti jarðarinnar er orðinn að grösugum túnum. Á jörðinni hefur fyrirtækið Stjörnugrís rekið skylda starfsemi síðan 1998, t.a.m. uppeldishús varpfugla og stofnfuglahús. Þegar hafa verið reist tvö af þremur varphúsum. Önnur mannvirki á jörðinni eru svínasláturhús og gyltubú, hvort tveggja starfrækt af Stjörnugrís hf. Starfsmannabústaðir eru á jörðinni ásamt byggingum undir vélageymslu og verkstæði. Næsta þéttbýli er Grundarhverfi í um 3,3 km fjarlægð. Fullkominn búnaður Í greinargerðinni kemur fram að húsin séu steypt og einangruð að utan. Búnaður í húsunum verður sá fullkomnasti sem völ er á, t.d. mun vélrænt tölvustýrt kerfi inni í hverju húsi stjórna loftræstingu, lýsingu, raka, fóðrun og hitasigi. Varphúsin verða innréttuð með sérhönnuðum varpbúnaði fyrir lausagönguhænur. Úrgangur er flokkaður og markvisst er reynt að koma úrgangi í endurnotkun, endurvinnslu eða endurnýtingu, t.d. umbúðum og byggingarefni. Dýrahræ eru meðhöndluð í samræmi við reglugerðir. Þá sé úrgangi ráðstafað til aðila sem hafa heimild til meðhöndlunar og móttöku á honum. Nýtt eldishús byggt fyrir varpfugla Fyrirtækið Stjörnuegg hefur fleiri járn í eldinum. Það áformar einnig uppbyggingu og rekstur eldishúss varpfugla í Sætúni II, sem er í næsta nágrenni við Saltvík. Á jörðinni eru tvær byggingar, reistar kringum 1980 og tengdar saman með tengigangi, samtals 1.390 fermetrar. Ungauppeldi á varpfuglum til 16 vikna aldurs er í húsunum og verður áfram. Til stendur að reisa eitt eldishús til viðbótar, um 800 fermetrar að stærð. Stækkun á húsakosti er til að sinna kröfum um breyttan aðbúnað og anna aukinni eftirspurn eftir eggjum í landinu. Starfsleyfið fyrir Sætún II er fyrir allt að 40.000 fugla á hverjum tíma og verður ekki farið yfir þau mörk þrátt fyrir stækkkun. Í matsskyldufyrirspurn er gerð grein fyrir helstu þáttum framkvæmdar og mögulegum áhrifum á umhverfið. Einnig eru lagðar til mótvægisaðgerðir og verklagsreglur á framkvæmdatíma. Tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu er að finna í Skipulagsgáttinni og þar getur almenningur kynnt sér áformin. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eru ennþá taplausir í Gettu betur Viðar Örn með þrennu í fyrri hálfleik Varphænum fjölgar á Kjalarnesi Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Breyttist í skúrk á Wembley Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu annað kvöld Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Komust yfir persónuupplýsingar forstjóra FBI Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Eru ennþá taplausir í Gettu betur Viðar Örn með þrennu í fyrri hálfleik Varphænum fjölgar á Kjalarnesi Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Breyttist í skúrk á Wembley Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Komust yfir persónuupplýsingar forstjóra FBI Lúxussnekkjunni hleypt í land af öryggisástæðum „Kemur gríðarlega á óvart“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article