Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kjúklingur þriðjungur af kjötneyslu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.2.2026 | 10:30 Kjúklingur þriðjungur af kjötneyslu Tryggja rétt hitastig, lýsingu, fóðrun og annað, segir Sigurður Óskar Óskarsson, hér í eldishúsi með nokkra ungfugla í hendi mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Kjúklingur verður æ vinsælli matvara og markaðurinn er að stækka. Því svörum við með uppbyggingu og fjárfestingum,“ segir Guðmundur Svavarsson framkvæmdastjóri Reykjagarðs hf. Nýlega var nýtt eldishús á búi fyrirtækisins að Ásmundarstöðum í Holtum í Rangárvallasýslu tekið í notkun og í starfsemi fyrirtækisins er frekari uppbygging nú í undirbúningi. Sláturhús og kjötvinnsla félagsins er á Hellu og í 3.500 fermetra viðbyggingu þar verður vinnsla á afurðum, úrbeining, pökkun, framleiðslueldhús og fleira. Vinnsla sem er á höfuðborgarsvæðinu verður á einum stað eystra og með því flytjast austur alls 25 störf af höfuðborgarsvæðinu. Um hálf öld er síðan rekstur kjúklingabús á Ásmundarstöðum hófst. Starfsemin er rekin undir merkjum Holtakjúklings og fyrirtækið er Reykjagarður hf., sem Sláturfélag Suðurlands eignaðist árið 2007. Á nefndum bæ eru í dag alls 16 eldishús og í hverju þeirra allt að 13.000 fuglar. Fimm daga gamlir fuglar sem eru hraðvaxta. Eftir um það bil mánuð héðan í frá er komið að slátrun þessara sem hér trítla frjálsir um. mbl.is/Sigurður Bogi Starfsemin er dreifð Eldi á sláturfugli á vegum Holtakjúklings er einnig á Einholti í Biskupstungum, í Grindavík, að Tannstaðabakka í Hrútafirði og svo á hendi samstarfsaðila á tveimur búum í Rangárþingi. Einnig að Miðskógum í Dölum; samstarf Holtakjúklings og bænda þar hófst árið 2023 með einu húsi. Öðru var bætt við á síðasta ári. Þá leggja þrír bændur á Suðurlandi sem eru í sjálfstæðum rekstri inn afurðir hjá Reykjagarði. „Við leggjum áherslu á að dreifa starfseminni og stuðla að búsetu og blómlegum búskap í sveitum. Hjarta starfsemi Reykjagarðs er þó hér í Rangárvallasýslu. Á launaskrá hér eru liðlega 100 manns og fjöldi samstarfsaðila í héraði. Á Hvolsvelli er svo Sláturfélag Suðurlands, móðurfélag okkar, með enn umfangsmeiri rekstur en Reykjagarður,“ segir Guðmundur. Ungar, sóttkví og útungun Um kjúklingarækt gildir þéttofið regluverk sem allt miðar að sjúkdómavörnum. Stofnegg til ræktunar eru flutt inn frá Svíþjóð, þeim ungað út á Hvanneyri og þaðan eru ungarnir fluttir í einangrunarstöðvar Holtakjúklings sem eru í Borgarfirði og uppsveitum Árnessýslu. Sýni, til að staðfesta heilbrigði unga, eru tekin og sé allt í lagi er sóttkví aflétt. Um 20 vikna aldur eru ungarnir svo fluttir í varphús að Ásmundarstöðum þar sem þeir hefja varp 24-26 vikna gamlir. Eggin sem þá verða til fara síðan í útungarstöð fyrirtækisins á Hellu og þaðan eru þeir fluttir nýklaktir í eldhúsin. Þar taka við 35 dagar, uns fuglinn fer í slátrun á Hellu. „Kúnstin við eldið er að tryggja rétt hitastig, lýsingu, fóðrun og annað. Velferðin er mikilvæg,“ segir Sigurður Óskar Óskarsson, bústjóri á Ásmundarstöðum. Eldishúsin þar eru alls 16 og fuglarnir þar á hverjum tíma alls um 135.000. Sláturfuglar eru teknir úr húsum síðdegis dag hvern og fluttir til slátrunar á Hellu. Þar rúlla í gegn alls um 50-55 þúsund fuglar á viku sem er hráefni í um það 250 þúsund máltíðir. Guðmundur Svavarsson framkvæmdastjóri Reykjagarðs hf. mbl.is/Sigurður Bogi Hollur og góður matur „Framleiðsla á kjúklingi hér innanlands í fyrra nam 10.200 tonnum sem er um 1/3 af öllu því kjöti sem á landinu var framleitt,“ segir Guðmundur. „Kjúklingurinn er vinsæll og selst vel. Íslendingar velja kjúkling í meiri mæli en áður þekktist og hér búa þúsundir manna frá löndum þar sem rík hefð er fyrir neyslu þessa kjöts. Þá sjáum við fylgni í sölu við stóraukinn ferðamannastraum. En svo er þetta bara líka góður og hollur matur sem má útbúa á marga vegu og seður vel.“ Í kjúklingaframleiðslu á landinu segir Guðmundur miklar framfarir hafa náðst á síðustu árum. Góð tök séu á rekstri og framleiðslu, m.a. hafi húsakostur verið bættur sem skili sér í bættum aðbúnaði og auknum afurðum. Á bænum eru í dag alls 16 eldishús og í hverju þeirra allt að 13.000 fuglar. Þétt regluverk gildir um starfið; dýravelferð og hollustu. mbl.is/Sigurður Bogi Sjúkdómastaðan er góð „Á Íslandi eru engin lyf notuð í kjúklingaeldi, öndvert því sem víða tíðkast erlendis. Sjúkdómastaðan er góð. Tekist hefur að vinna á þeim plágum sem nokkuð var um áður. Lítið er um kampýlóbakter- og salmonellusýkingar sem voru stórt vandamál á árum áður. Kjúklingabændur hafa gert öflugar ráðstafanir og tekin eru sýni bæði á eldistímanum og úr slátrun. Þetta var allt unnið í samstarfi við Matvælastofnun og samkvæmt áætlunum sem settar voru upp,“ segir Guðmundur og að síðustu: „Þegar góð tök hafa náðst í sjúkdómavörnum er leiðin greið. Nýbygging og stækkun á vinnslunni hér á Hellu er mikilvægt framfaraskref. Nýtt bú í Dölum og stækkun á Ásmundarstöðum ásamt miklum endurbótum þar eru verkefni sem hundruðum milljóna króna hefur verið varið í. Og við sjáum fyrir okkur að efla eldisstarfsemina áfram með meiri framleiðslu sem er í takt við sístækkandi markað.“ Nóg er að gera hjá fyrirtækinu og verið að stækka húsnæðið til að anna aukinni eftirspurn eftir kjúklingum mbl.is/Sigurður Bogi mbl.is/Sigurður Bogi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Gugga í gúmmíbát svarar nettröllum fullum hálsi Ótrúleg dramatík hjá Lakers „Við þurfum þessar vinnandi hendur“ Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla Út úr myndinni að stýrivextir lækki Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Gugga í gúmmíbát svarar nettröllum fullum hálsi Ótrúleg dramatík hjá Lakers „Við þurfum þessar vinnandi hendur“ Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kosningum flýtt í Danmörku Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Fært til lendingar í Keflavík á ný Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article