Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Holtuvörðuheiði og Öxnadalsheiði færar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 44 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Holtu­vörðu­heiði og Öxna­dals­heiði færar Erla María Markúsdóttir Holtavörðuheiðinni var lokað eftir hádegi í gær en hefur nú verið opnuð. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Búið er að opna fyrir umferð um Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Heiðunum var báðum lokað í gær vegna veðurs. Verið er að kanna aðstæður á vegum á Austurlandi og vonast er til að hægt verði að opna þar með morgninum. Nánari upplýsingar um færð á vegum má nálgast á umferðin.is. NýttMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Loji býður gestum inn á danskt menn­ing­ar­heim­ili Loji Höskuldsson opnaði einkasýningu í Kaupmannahöfn á dögunum þar sem hann tvinnar saman hönnunarvörum hversdagslegum hlutum neyslumenningar í nýjum útsaumsverkum. Á sýningunni gefur að líta langstærsta verk sem Loji hefur gert. Fyrir 30 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Þegar bestu frjáls­íþrótta­menn lands­ins urðu Ís­lands­meist­arar í hand­bolta Áttatíu ár eru í dag frá fyrsta og eina Íslandsmeistaratitli ÍR í meistaraflokki í handbolta. Liðið skipuðu frjálsíþróttamenn sem vantaði hreyfingu yfir vetrartímann. Hér lítum við um öxl og rifjum upp gamla tíma úr íslenskri íþróttasögu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu 10 særð­ust í árás á Odesu Brynja Dögg Friðriksdóttir Rústir í Odesu eftir árás 19. mars 2026. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AP / Oleg Grekov Að minnsta kosti 10 eru særðir, þar af eitt barn, eftir árásir Rússa á hafnarborgina Odesu í Úkraínu í nótt, samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent. Drónaárás var gerð á fæðingarspítala og þrjár menntastofnanir sem olli töluverðum skemmdum. Engin slys á fólki urðu á fæðingarspítalanum en starfsfólk og sjúklingar náðu að koma sér í öruggt skjól meðan á árásinni stóð. Ódesa hefur reglulega orðið fyrir árásum Rússa síðan innrásin í Úkraínu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 D-listi sjálf­stæð­is­manna og óháðra í Hörg­ár­sveit kynnir fram­boðs­lista D-listi sjálfstæðismanna og óháðra í Hörgársveit hefur samþykkt fullskipaðan lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2026. Oddviti flokksins er Árni Rúnar Örvarsson. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Banda­ríkja­for­seti segir NATO-þjóðir ekki vera til staðar fyrir Banda­rík­in Bandaríkjaforseti gagnrýndi bandalagsþjóðir í Atlantshafsbandalaginu fyrir að vera ekki til staðar fyrir Bandaríkin þegar á reyndi til að tryggja Hormússund. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann gagnrýnir bandalagið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Eldur kvikn­aði í bíl á Bílds­höfða Brynja Dögg Friðriksdóttir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk útkall kl. 01:20 í nótt vegna bíls sem stóð í ljósum logum á bílaplaninu við Húsgagnahöllina á Bíldhöfða. Bíllinn er talinn hafa verið mannlaus en vegfarendur hringdu í neyðarlínuna og tilkynntu um brunann, samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn dælubíll var sendur á staðinn og slökkvistarf gekk hratt og vel fyrir sig. Eldsupptök eru ókunn en altjón varð á bifreiðinni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Björg­un­ar­sveit­ir kall­að­ar út til að að­stoða bíla og rútu á Norð­ur­landi eystra Björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra fengu nokkur útköll í kvöld vegna bíla sem sátu fastir í stórhríð í nágrenni Akureyrar. Rúta með 34 um borð í Aðaldal óskaði einnig eftir aðstoð. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Við­skipta­vin­ir indó yfir hund­rað þúsund Um 500 milljóna tap var á rekstri indó á síðasta ári en viðskiptavinum sparisjóðsins hefur fjölgað um 30.000 á árinu. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Saint Pete lofar plötu í sumar Rapparinn Saint Pete kíkti í Vikuna með Gísla Marteini í kvöld. Hann reynir að minnast á Akureyri á hverju einasta lagi, enda Akureyringur í húð og hár. 27. mars 2026 kl. 22:26ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tiger Woods hand­tek­inn Tiger Woods er grunaður um akstur undir áhrifum eftir að hann velti bíl sínum í Flórída í dag. 27. mars 2026 kl. 21:29INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Metn­að­ar­laus áætlun og ólík­legt að hún stand­ist Stjórnarandstæðingar í fjárlaganefnd Alþingis segja gjaldheimtu sem búið var að eyrnamerkja til uppbyggingar samgönguinnviða ekki skila sér í nýrri fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar. 27. mars 2026 kl. 21:06INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ekkert ferða­veð­ur og vegir víða ófærir Nokkrum vegum hefur verið lokað vegna ófærðar en gul viðvörun vegna veðurs er enn í gildi víða á landinu. 27. mars 2026 kl. 20:48INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Telur að hækkun veiði­gjalds valdi upp­sögn­um þrátt fyrir millj­arða hagnað Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir stöðuna í greininni sterka en óvissu vegna ástandsins á alþjóðavettvangi. Hann býst enn við uppsögnum vegna hækkunar veiðigjalda þrátt fyrir milljarða uppgjör 27. mars 2026 kl. 20:30INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál App bjarg­aði 70.000 mál­tíð­um frá rusl­inu í fyrra Yfir 30 tonn af mat, sem að öðrum kosti hefðu endað í ruslinu, voru seld í fyrra í gegnum app sem varð til í covid. Eigandi segir tækifæri í ruslinu. 27. mars 2026 kl. 19:57INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Þörf á alvöru að­gerð­um Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir að fjármálaáætlunin bjóði ekki upp á alvöru aðgerðir líkt og þurfi til að bregðast við efnahagsástandinu. 27. mars 2026 kl. 19:45INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Undr­andi á minn­is­blaði mennta­mála­ráð­herra – „Við áttum okkur ekki alveg á þessu út­spili“ Formaður Kennarasambands Íslands segir minnisblað menntamálaráðherra gefa til kynna að markmið hennar séu ekki í fullu samræmi við virðismatsvegferð sem ráðist var í í kjölfar kjarasamninga. 27. mars 2026 kl. 19:01INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Tölu­verð­ur og al­var­leg­ur mis­brest­ur“ hjá barna­vernd Reykja­nes­bæj­ar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála gerir miklar athugasemdir við vinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar. Töluverður misbrestur hafi verið á skráningu gagna, ekki tryggt að fóstursamningar væru í gildi og eftirliti ekki sinnt nægilega vel. 27. mars 2026 kl. 18:15INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Inga vill lengri skóla­daga og lengra skóla­ár ís­lenskra nem­enda Íslenskir grunnskólakennarar eru með lága kennsluskyldu á alþjóðlegan mælikvarða, segir ráðherra. Hún vill fjölga kennsludögum og kennslutímum til að bæta námsárangur íslenskra barna. 27. mars 2026 kl. 17:55INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál 60 rýma hjúkr­un­ar­heim­ili áform­að á Húsa­vík Hugrún Hannesdóttir Diego Laki og tengd félög voru með hagstæðasta tilboðið í nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík í útboði á vegum Framkvæmdasýslu Ríkiseigna. Hjúkrunarheimilið verður rúmlega 4.000 fermetrar. Verkefnið verður eitt af stærri uppbyggingarverkefnum á svæðinu á næstu árum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Laka. Stjórnvöld hafa kynnt átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila og fjölgun rýma. Mikil bið eftir hjúkrunarrýmum hefur haft áhrif á bráðamóttöku Landspítalans því margir bíða á legurýmum sjúkrahússins. Myndin sýnir hvernig áformað er að hjúkrunarheimilið líti út. Aðsend / Laki 27. mars 2026 kl. 17:49INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fundu blóð­ugt skófar á vett­vangi og líf­sýni hins ákærða á hníf Rannsókn lögreglunnar á manndrápi á Kársnesi laut einkum að blóðugu skófari og lífsýnum á eggvopni sem fannst á vettvangi. Lögregla virðist í fyrstu hafa talið að hinn látni hafi veitt sér áverkana sjálfur en grískur maður var síðar handtekinn. 27. mars 2026 kl. 17:24ÍÞRÓTTIR Fótbolti Þor­steinn um Úkra­ínu: „Þetta er lið sem við þurfum að vinna“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Úkraínu 14. apríl og Englandi 18. apríl í undankeppni HM. Þjálfari liðsins segir leikina gríðarmikilvæga og hann vill fá sem flesta stuðningsmenn á völlinn. 27. mars 2026 kl. 17:08ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Fyrstu fundir mjög flók­inna stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna að baki Stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku eru hafnar. Búist er við að þær verði flóknar enda hvorki vinstriblokkin né hægriblokkin á Stórþinginu með meirihluta. Lars Løkke Rasmussen er sem fyrr í lykilstöðu. 27. mars 2026 kl. 16:55INNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Rúss­neska snekkj­an fékk leyfi til að taka olíu og sækja vistir í lög­reglu­fylgd Erlendu snekkjunni La Datcha sem meinuð var hafnarkoma síðustu helgi á Akureyri var í dag leyft að taka olíu og sækja vistir í landi undir eftirliti lögreglu. Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir að snekkjan verði farin úr landhelgi fyrir 30. mars. 27. mars 2026 kl. 16:50INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Úr­skurð­að­ur í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald Annar karlmaðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í bílakjallara við Höfðatorg í Reykjavík hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald til viðbótar. 27. mars 2026 kl. 16:40MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sauma­vél­ar, leik­gleði og at­vinn­u­inn­flytj­andi Upprásin í Hörpu heldur ótrauð áfram og 10. mars komu fram Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric. Ólátagarður, sem er griðastaður íslenskrar grasrótartónlistar á Rás 2, tók púlsinn á tónlistarfólkinu þegar það steig af sviði. 27. mars 2026 kl. 16:36INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Þetta eru veru­leg von­brigði“ Forseti ASÍ er óánægður með þann niðurskurð sem boðaður er í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. 27. mars 2026 kl. 16:23INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Vel­ferð­ar­ráð gerir miklar at­huga­semd­ir við barna­vernd­ar­frum­varp Frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum var lagt fram á Alþingi í gær. Velferðarráð Reykjavíkurborgar gagnrýnir frumvarpið meðal annars á grundvelli þess að samráð sé of lítið og að kafli um fósturmál sé ekki endurskoðaður nægilega. 27. mars 2026 kl. 15:36INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Vilja byggja sex hæða blokk þar sem áður var Krist­jáns­bak­arí Til skoðunar er að sex hæða hús, með atvinnuhúsnæði á jarðhæð og íbúðum á þeim efri, rísi þar sem Kristjánsbakarí starfaði á Akureyri um árabil. Bakaríinu var lokað í september á síðasta ári. 27. ma

Share this article