Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Handtóku mann með öxi

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tóku mann með öxi Iðunn Andrésdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann fyrir vopnalagabrot og hótanir í hverfi 105 og í gær. Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir manninn hafa gengið um með öxi á almannafæri og haft uppi hótanir. Lögregla þekki til mannsins en hann hafi verið í annarlegu ástandi. Kvaðst Heimir gera ráð fyrir því að maðurinn verði yfirheyrður í dag. RÚV / Alexander Kristjánsson Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn fyrir lík­ams­árás og að ræna stræt­is­vagni Lögreglan handtók í gær mann í annarlegu ástandi fyrir að ráðast inn í strætisvagn og keyra á brott. Hann var yfirheyrður af lögreglu í morgun. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Guð­laug verður skóla­stjóri í leik- og grunn­skóla Grinda­vík­ur Guðlaug Erlendsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri í nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Hvert er uppá­halds fram­lag þjóð­ar­inn­ar í Euro­vi­sion? Fjölskylduþátturinn Góðir Íslendingar hefur göngu sína í beinni útsendingu á RÚV á laugardaginn og þjóðin er með. Stóru málin verða tekin fyrir í hverjum þætti og í fyrsta þættinum verður Eurovision brotið til mergjar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Fram­kvæmda­leyfi Hval­ár­virkj­un­ar fellt úr gildi Ákvörðun hreppsnefndar Árneshrepps um að veita Vesturverki ehf. framkvæmdaleyfi fyrir fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði á Ströndum hefur verið felld úr gildi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fram­kvæmd­ir í sjón­máli við nýja legu­deild SAk Fyrsti áfangi við byggingu nýrrar legudeildar á Akureyri er í sjónmáli. Útboð er hafið og frestur til að bjóða í verkið er til apríl loka. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Talið að millj­ón­ir mót­mæli Banda­ríkja­for­seta í dag Búist er við að milljónir Bandaríkjamanna taki þátt í mótmælagöngu gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta í dag. Þetta er í þriðja sinn sem fjöldamótmæli gegn forsetanum eru skipulögð vítt og breitt um Bandaríkin. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Vonar að tón­leik­ar Kaleo fái fleiri Ís­lend­inga til að skunda á Þing­völl Hljómsveitin Kaleo stefnir að því að halda 20 þúsund manna tónleika á Þingvöllum í sumar. Þjóðgarðsvörður bindur vonir við að tónleikarnir dragi nýja hópa að Þingvöllum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular við­var­an­ir taka gildi seinni­part­inn Gular viðvaranir taka gildi á flestum landshlutum seinnipart dags. Engar viðvaranir eru í gildi eins og er en hálka og snjóþekja eru víða á vegum. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Loji býður gestum inn á danskt menn­ing­ar­heim­ili Loji Höskuldsson opnaði einkasýningu í Kaupmannahöfn á dögunum þar sem hann tvinnar saman hönnunarvörum Og hversdagslegum hlutum neyslumenningar í nýjum útsaumsverkum. Á sýningunni gefur að líta langstærsta verk sem Loji hefur gert. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Þegar bestu frjáls­íþrótta­menn lands­ins urðu Ís­lands­meist­arar í hand­bolta Áttatíu ár eru í dag frá fyrsta og eina Íslandsmeistaratitli ÍR í meistaraflokki í handbolta. Liðið skipuðu frjálsíþróttamenn sem vantaði hreyfingu yfir vetrartímann. Hér lítum við um öxl og rifjum upp gamla tíma úr íslenskri íþróttasögu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Holtu­vörðu­heiði og Öxna­dals­heiði færar Erla María Markúsdóttir Holtavörðuheiðinni var lokað eftir hádegi í gær en hefur nú verið opnuð. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Búið er að opna fyrir umferð um Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Heiðunum var báðum lokað í gær vegna veðurs. Verið er að kanna aðstæður á vegum á Austurlandi og vonast er til að hægt verði að opna þar með morgninum. Blása þarf talsverðum snjó svo að hægt verði að opna Fjarðarheiði og Fagradal en unnið er að opnun en það gæti tekið tíma að opna veginn. Nánari upplýsingar um færð á vegum má nálgast á umferðin.is. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu 10 særð­ust í árás á Odesu Brynja Dögg Friðriksdóttir Rústir í Odesu eftir árás 19. mars 2026. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AP / Oleg Grekov Að minnsta kosti 10 eru særðir, þar af eitt barn, eftir árásir Rússa á hafnarborgina Odesu í Úkraínu í nótt, samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent. Drónaárás var gerð á fæðingarspítala og þrjár menntastofnanir sem olli töluverðum skemmdum. Engin slys á fólki urðu á fæðingarspítalanum en starfsfólk og sjúklingar náðu að koma sér í öruggt skjól meðan á árásinni stóð. Ódesa hefur reglulega orðið fyrir árásum Rússa síðan innrásin í Úkraínu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 D-listi sjálf­stæð­is­manna og óháðra í Hörg­ár­sveit kynnir fram­boðs­lista D-listi sjálfstæðismanna og óháðra í Hörgársveit hefur samþykkt fullskipaðan lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2026. Oddviti flokksins er Árni Rúnar Örvarsson. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Banda­ríkja­for­seti segir NATO-þjóðir ekki vera til staðar fyrir Banda­rík­in Bandaríkjaforseti gagnrýndi bandalagsþjóðir í Atlantshafsbandalaginu fyrir að vera ekki til staðar fyrir Bandaríkin þegar á reyndi til að tryggja Hormússund. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann gagnrýnir bandalagið. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Eldur kvikn­aði í bíl á Bílds­höfða Brynja Dögg Friðriksdóttir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk útkall kl. 01:20 í nótt vegna bíls sem stóð í ljósum logum á bílaplaninu við Húsgagnahöllina á Bíldhöfða. Bíllinn er talinn hafa verið mannlaus en vegfarendur hringdu í neyðarlínuna og tilkynntu um brunann, samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn dælubíll var sendur á staðinn og slökkvistarf gekk hratt og vel fyrir sig. Eldsupptök eru ókunn en altjón varð á bifreiðinni. 28. mars 2026 kl. 0:52INNLENDAR FRÉTTIR Veður Björg­un­ar­sveit­ir kall­að­ar út til að að­stoða bíla og rútu á Norð­ur­landi eystra Björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra fengu nokkur útköll í kvöld vegna bíla sem sátu fastir í stórhríð í nágrenni Akureyrar. Rúta með 34 um borð í Aðaldal óskaði einnig eftir aðstoð. 28. mars 2026 kl. 0:05INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Við­skipta­vin­ir indó yfir hund­rað þúsund Um 500 milljóna tap var á rekstri indó á síðasta ári en viðskiptavinum sparisjóðsins hefur fjölgað um 30.000 á árinu. 27. mars 2026 kl. 23:01MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Saint Pete lofar plötu í sumar Rapparinn Saint Pete kíkti í Vikuna með Gísla Marteini í kvöld. Hann reynir að minnast á Akureyri á hverju einasta lagi, enda Akureyringur í húð og hár. 27. mars 2026 kl. 22:26ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tiger Woods hand­tek­inn Tiger Woods er grunaður um akstur undir áhrifum eftir að hann velti bíl sínum í Flórída í dag. 27. mars 2026 kl. 21:29INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Metn­að­ar­laus áætlun og ólík­legt að hún stand­ist Stjórnarandstæðingar í fjárlaganefnd Alþingis segja gjaldheimtu sem búið var að eyrnamerkja til uppbyggingar samgönguinnviða ekki skila sér í nýrri fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar. 27. mars 2026 kl. 21:06INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ekkert ferða­veð­ur og vegir víða ófærir Nokkrum vegum hefur verið lokað vegna ófærðar en gul viðvörun vegna veðurs er enn í gildi víða á landinu. 27. mars 2026 kl. 20:48INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Telur að hækkun veiði­gjalds valdi upp­sögn­um þrátt fyrir millj­arða hagnað Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir stöðuna í greininni sterka en óvissu vegna ástandsins á alþjóðavettvangi. Hann býst enn við uppsögnum vegna hækkunar veiðigjalda þrátt fyrir milljarða uppgjör 27. mars 2026 kl. 20:30INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál App bjarg­aði 70.000 mál­tíð­um frá rusl­inu í fyrra Yfir 30 tonn af mat, sem að öðrum kosti hefðu endað í ruslinu, voru seld í fyrra í gegnum app sem varð til í covid. Eigandi segir tækifæri í ruslinu. 27. mars 2026 kl. 19:57INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Þörf á alvöru að­gerð­um Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir að fjármálaáætlunin bjóði ekki upp á alvöru aðgerðir líkt og þurfi til að bregðast við efnahagsástandinu. 27. mars 2026 kl. 19:45INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Undr­andi á minn­is­blaði mennta­mála­ráð­herra – „Við áttum okkur ekki alveg á þessu út­spili“ Formaður Kennarasambands Íslands segir minnisblað menntamálaráðherra gefa til kynna að markmið hennar séu ekki í fullu samræmi við virðismatsvegferð sem ráðist var í í kjölfar kjarasamninga. 27. mars 2026 kl. 19:01INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Tölu­verð­ur og al­var­leg­ur mis­brest­ur“ hjá barna­vernd Reykja­nes­bæj­ar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála gerir miklar athugasemdir við vinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar. Töluverður misbrestur hafi verið á skráningu gagna, ekki tryggt að fóstursamningar væru í gildi og eftirliti ekki sinnt nægilega vel. 27. mars 2026 kl. 18:15INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Inga vill lengri skóla­daga og lengra skóla­ár ís­lenskra nem­enda Íslenskir grunnskólakennarar eru með lága kennsluskyldu á alþjóðlegan mælikvarða, segir ráðherra. Hún vill fjölga kennsludögum og kennslutímum til að bæta námsárangur íslenskra barna. 27. mars 2026 kl. 17:55INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál 60 rýma hjúkr­un­ar­heim­ili áform­að á Húsa­vík Hugrún Hannesdóttir Diego Laki og tengd félög voru með hagstæðasta tilboðið í nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík í útboði á vegum Framkvæmdasýslu Ríkiseigna. Hjúkrunarheimilið verður rúmlega 4.000 fermetrar. Verkefnið verður eitt af stærri uppbyggingarverkefnum á svæðinu á næstu árum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Laka. Stjórnvöld hafa kynnt átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila og fjölgun rýma. Mikil bið eftir hjúkrunarrýmum hefur haft áhrif á bráðamóttöku Landspítalans því margir bíða á legurýmum sjúkrahússins. Myndin sýnir hvernig áformað er að hjúkrunarheimilið líti út. Aðsend / Laki 27. mars 2026 kl. 17:49INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fundu blóð­ugt skófar á vett­vangi og líf­sýni hins ákær

Share this article