Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekið á mann í Þrengslum

Read Full Article →

Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslum í dag. Hann hafði sjálfur lent í vandræðum vegna hálku á vegi og stóð fyrir utan bifreiðina þegar annar bíll ók á hann. Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Hann segir manninn ekki alvarlega slasaðan en gerir ráð fyrir því að hann hafi verið fluttur til athugunar. Lögregla er enn á vettvangi. Þorsteinn segir talsverða hálku í Þrengslum og á Hellisheiði en kveðst ekki hafa heyrt af öðrum umferðaróhöppum, en búist er við því að veður versni eftir því sem líður á daginn.

Share this article