Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrír slösuðust þegar litboltasprengju var kastað inni í lesti

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 31 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Þrír slös­uð­ust þegar lit­bolta­sprengju var kastað inni í lesti Markús Þ. Þórhallsson Lögregla handtók manninn þegar lestin nam staðar í Bonn. epa Þrír slösuðust lítillega þegar karlmaður varpaði litboltaboltasprengju inni í farþegalest á leið milli þýsku borganna Köln og Frankfurt. Bild segir manninn hafa mundað hníf og hótað árás. Nokkrum farþegum hafi tekist að yfirbuga hann og læsa inni á salerni þar sem hann sat uns hann var handtekinn í Bonn. Um það bil fimm hundruð farþegar yfirgáfu lestina þar. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Stríðs­mála­ráð­herr­ann víkur yf­ir­manni land­hers­ins til hliðar Fjöldi háttsettra yfirmanna Bandaríkjahers hefur hætt störfum eða verið rekinn á síðara kjörtímabili Donalds Trump forseta. Stríðsmálaráðherrann bað yfirmann í landher að hverfa á braut í gær. Það er talið gert til að auka fylgispekt hersins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björg­un­ar­sveit kom snjóruðn­ings­tæki sem sat fast til bjarg­ar Björgunarsveitir hafa aðstoðað fjölda ökutækja, þar á meðal snjóruðningstæki, sem sátu föst í kvöld, þá aðallega á norðaustur horni landsins þar sem Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Of­an­flóð­varn­ir vörðu Flat­eyri í snjó­flóði Ofanflóðavarnir við Flateyri sem reistar voru síðasta sumar vörðu bæinn frá snjóflóði síðustu helgi. Nú stendur til að verja höfnina, til að tryggja örugga undankomuleið þegar hætta steðjar að. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Ásgeir og Trist­an unnu brons á EM Ásgeir Karl Gústafsson og Tristan Máni Nínuson unnu brons í tvímenning á Evrópumóti ungmenna í keilu. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland vinnur til verðlauna á mótinu. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Kefla­vík vann í spennu­trylli gegn Val Keflavík leiðir í einvígi sínu gegn Val í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir spennandi lokakafla. Þá vann Tindastóll að lokum öruggan sigur gegn ÍR sem veittu þó ágætis mótspyrnu. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Haukar í und­an­úr­slit­in og mæta FH Haukar eru komnir í undanúrslit Íslandsmóts karla í handbolta eftir að hafa unnið Aftureldingu eftir oddaleik í einvígi liðanna. Haukar unnu öruggan 32-24 sigur. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Gettu betur Verzló áfram í úrslit Gettu betur eftir stór­sig­ur á ME Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann á Egilsstöðum í seinustu viðureign undanúrslita Gettu betur. Í næstu viku mætir Menntaskólinn í Reykjavík Verzlunarskólanum í úrslitaviðureign kepnninnar í Háskólabíói. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Nær óhugs­andi að Fram­sókn detti út af þingi Prófessor í stjórnmálafræði segir nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi. Framsóknarflokkurinn mælist í fyrsta sinn utan þings í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Mönnuð tungl­ferð af­rakst­ur ára­tuga af und­ir­bún­ingi og vinnu Geimskot NASA í gær var afrakstur áratuga vinnu, samkvæmt íslenskum vísindamanni sem starfaði hjá geimferðastofnuninni. Hann telur mannkynið verða komið með bækistöð á tunglinu á næstu 15 árum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Kreml beygir netið undir sig Stjórnvöld í Rússlandi hafa hert enn frekar aðgengi landsmanna að netinu og ætla að velja sérstaklega þær vefsíður sem verða alltaf aðgengilegar. Truflanir sem hafa verið á aðgengi að netinu hafa haft mikil áhrif á daglegt líf almennings. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fram­sókn mælist ekki með mann á þingi Framsóknarflokkurinn mælist í fyrsta sinn utan þings í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Einungis fimm flokkar næðu inn manni, yrði gengið til kosninga nú. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Færri nýta sér neyð­ar­skýli borg­ar­inn­ar Til skoðunar er hvort þörf sé á gistiskýlum á vegum Reykjavíkurborgar vegna minni aðsóknar. Deildarstjóri segir að betra aðgengi að varanlegu húsnæði og samþætting þjónustu vera að skila sér. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar á Ísa­firði hættir við fram­boð eftir harðar deilur Oddviti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ hefur sagt af sér eftir að ósætti kom upp innan flokksins. Hann segir flokksmeðlimi hafa borið á sig vantraust. Nýr oddviti segir að ekki hafi verið hægt að halda áfram með óbreytt ástand. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Inn­an­lands­flugi aflýst en ferðum bætt við á morgun Nær öllum innanlandsflugferðum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar var í dag aflýst vegna veðurs. Flogið var til og frá Ísafirði síðdegis. Til stendur að fleiri flugferðum verði bætt við til að koma farþegum á áfangastað. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Búið að loka bæði Fjarð­ar­heiði og veg­in­um um Fagra­dal Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Fjarðarheiði og veginum um Fagradal hefur verið lokað vegna óveðurs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi varð smávægilegur árekstur á veginum um Fagradal. Engin slys urðu á fólki. Hringvegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi er einnig lokaður vegna óveðurs. Snjó blásið burt af Fjararheiði, myndin er úr safni. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Landsbjörgu, segir daginn hjá björgunarsveitum hafa verið tiltölulega rólegan. Björgunarsveitin Tindur á Ólafsfirði var kölluð út í morgun þar sem þakplötur og annað losnaði í vindi. Þæfingsfærð hefur verið á Snæfellsnesi í dag og í hádeginu var björgunarsveit kölluð út í hádeginu vegna bíls sem var fastur við Öndverðarnes. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump sagður hafa vikið Pam Bondi úr emb­ætti Dagný Hulda Erlendsdóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi dómsmálaráðherra úr embætti. Þetta hefur fjölmiðillinn Reuters eftir heimildum sínum innan Hvíta hússins. Hann er sagður hafa verið ósáttur við frammistöðu hennar í embætti, svo sem í Epstein-málinu. Bondi hefur verið sökuð um að hafa ekki birt öll skjöl tengd málinu. Þá er Trump einnig sagður hafa verið ósáttur við seinagang Bondi við að sækja til saka gagnrýnendur og andstæðinga sem hann vildi fá fyrir dóm. CNN og aðrir bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Todd Blanche, sem gegnt hefur embætti varadómsmálaráðherra og verið lögmaður Trumps, taki við stöðu starfandi dómsmálaráðherra. Pam Bondi hefur verið dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps. EPA / JIM LO SCALZO Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Skorað á tveim­ur völlum í sama leikn­um — aðeins gerst einu sinni áður? Í dag gerðist það að Fylkir skoraði mark á tveimur mismunandi völlum í einum og sama fótboltaleiknum. Slíkt hefur að minnsta kosti gerst einu sinni áður. Leikur þeirra gegn KFA í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla var færður úr Árbæ í Hafnarfjörð. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hryðjuverkamálið Hryðju­verka­mál­ið tekið fyrir í Lands­rétti í maí Hryðjuverkamálið verður tekið fyrir í Landsrétti í maí. Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í málinu í mars og vísaði því aftur þangað. Hæstiréttur fann að fjölmörgum þáttum í dómi Landsréttar í málinu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Stöðva þarf spíral dauða og eyði­legg­ing­ar í Mið-Aust­ur­lönd­um Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn standa á barmi stríðs sem gæti breiðst út til allra Mið-Austurlanda. Hann hvetur til friðsamlegra lausna og fordæmir árásir á almenna borgara. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýir svart­ir kjör­kass­ar úr plasti teknir í notkun í vor Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkassana af hólmi og létta störf kjörstjórna. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Kyngir niður í Kópa­vogi og leik frest­að Leikur Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna í fótbolta var stöðvaður vegna snjókomu og leiknum frestað til morguns. Bikarleikur Fylkis og KFA var hins vegar færður innandyra eftir að leikurinn var hafinn. 2. apríl 2026 kl. 13:45INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fagnar við­haldi á Hval­fjarð­ar­göng­um en ekki lengd lok­un­ar Bæjarstjóri Akraness segir að fyrirhugaðar lokanir í Hvalfjarðargöngum að nóttu til í apríl og maí hafi mikil áhrif á íbúa og fyrirtæki. Hann vonast til þess að Vegagerðin geti boðið upp á fylgdarakstur meðan á þeim stendur. 2. apríl 2026 kl. 13:29INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Nýjar tröpp­ur óskast við Ráðhús Ár­borg­ar Tröppurnar við Ráðhús Árborgar hafa verið lokaðar í vetur af öryggisástæðum. Framkvæmdir eiga að hefjast að loknu útboði eftir páska. 2. apríl 2026 kl. 12:55INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Gjaf­mild­ir Gríms­ey­ing­ar gefa páska­egg Kvenfélagið Baugur og Kiwanisklúbburinn í Grímsey gáfu hátt í 200.000 krónur til matargjafa á Akureyri fyrir páskana. Peningarnir eru ætlaðir til páskaeggjakaupa þeirra sem minna mega sín. 2. apríl 2026 kl. 12:43INNLENDAR FRÉTTIR Veður Útlit fyrir gott páska­veð­ur eftir daginn í dag Veðrið tekur að lægja á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld, að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar. Viðbúið er að vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað síðdegis. 2. apríl 2026 kl. 12:21ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar skipu­leggja harðar gagnárás­ir eftir hót­an­ir Trumps Dagný Hulda Erlendsdóttir Íranar vara við hörðum gagnárásum eftir hótanir Bandaríkjaforseta í gær um árásir sem færi Íran aftur til steinaldar. Stríðið milli ríkjanna hefur nú varað í nær fimm vikur. Hótanir Írana koma eftir ávarp Bandaríkjaforseta í gær þar sem hann hótaði mjög hörðum árásum á Íran næstu tvær til þrjár vikur sem myndu færa Íran aftur til steinaldar. Háværar sprengingar hafa heyrst í miðborg Tehran, höfuðborg Írans, í morgun. Þá er stærsta stálverksmiðja landsins óstarfhæf eftir árásir. Í morgun hafa Íranar hert árásir á Ísrael. Reykur í Tehran, höfuðborg Írans, í gær eftir árásir herja Bandaríkjanna og Ísraels. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH 2. apríl 2026 kl. 12:10ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Rutte vænt­an­leg­ur til Wash­ing­ton í næstu v

Share this article