Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Engan sakaði þegar lítilli einkaflugvél hvolfdi í lendingu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Engan sakaði þegar lít­illi einka­flug­vél hvolfdi í lend­ingu Markús Þ. Þórhallsson Engan sakaði þegar lítilli einkaflugvél hvolfdi í lendingu við Tungubakka í Mosfellsbæ um klukkan sex síðdegis í gær. Dælubíll slökkviliðsins var sent á vettvang. RÚV / Ragnar Visage Vísir greinir frá þessu og hefur eftir Ásgeiri Halldórssyni, aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, að sjúkrabíll og einn dælubíll hafi verið sendir á staðinn. Slökkviliðsmenn liðsinntu við að koma vélinni aftur á hjólin en ekki er vitað hversu mikið hún skemmdist við óhappið. Fyrir 40 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Bíll sprakk í loft upp þannig að ómaði um alla Malmö Markús Þ. Þórhallsson Bíll sprakk í loft upp í Hindby-hverfinu í sænsku borginni Malmö laust eftir klukkan þrjú í nótt að staðartíma. Sænskur lögreglubíll. Mynd úr safni. SVT / Blåljusbilder Sprengingin var svo hávær að hún heyrðist um nær alla borgina að sögn fréttamiðilsins Sydsvenskan. Enginn eldur fylgdi sprengingunni. Einn hefur verið handtekinn, sem að sögn sjónarvotta var með uppsteit við lögreglu. Enginn slasaðist við sprenginguna en talsverðar skemmdir urðu á nærliggjandi húsum, gluggarúður brotnuðu og gat kom á húsvegg. Bílar skemmdust einnig þegar brak féll á þá. Lögregla hefur lokað svæðið af meðan sprengjusérfræðingar athafna sig. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Op­in­ber ævi­saga El­ísa­bet­ar II í smíðum Breska hirðin hefur leitað til sagnfræðings til að færa ævi Elísabetar drottningar opinberlega á bók. Karl konungur hefur alltaf sagst vilja að kona skráði sögu hennar og sú verður raunin. Hún segir sér mikinn heiður sýndan. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Finnsk­ur kapp­akst­ur­skappi lét lífið á Nür­bur­gring-braut­inni Markús Þ. Þórhallsson Finnski kappakstursmaðurinn Juha Miettinen lét lífið í sjö bíla árekstri sem varð á þýsku Nürburgring-brautinni í gær. Mynd úr safni frá 24 klukkustunda kappakstrinum á Nürburgring. EPA / THOMAS FREY Björgunarlið brást skjótt við en tókst ekki að bjarga lífi Miettinens, sem var 66 ára og mjög reyndur kappakstursmaður. Hinir sex ökumennirnir slösuðust allir en enginn þeirra er í lífshættu. Slysið varð við upphitun fyrir sólarhringskappakstur á brautinni, sem álitin er einhver sú erfiðasta í heimi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Hepp­inn kaup­andi nældi sér í björg­un­ar­vesti af Titan­ic fyrir jafn­virði 111 millj­óna króna Björgunarvesti af farþegaskipinu Titanic seldist nýverið á uppboði fyrir jafnvirði tæplega 111 milljóna króna. Talið var að kaupverðið yrði mikið lægra. Slíkt vesti hefur aldrei verið í boði áður og því gullið tækifæri að mati uppboðshaldarans. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bylt­ing­ar­vörð­ur­inn hótar að gera árásir á skip sem sigla inn í Hormúss­und — kúg­un­ar­til­burð­ir segir Banda­ríkja­for­seti Byltingarvörðurinn íranski hótar að gera árás á hvert það skip sem reynir að sigla um Hormússund eftir að lokað var fyrir umferð um það. Öll sigling sé álitin liðsinni við Bandaríkin. Bandaríkjaforseti segir Írana beita sundinu sem kúgunartóli. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Fjölda­skot­árás­in í Kyiv rann­sök­uð sem hryðju­verk Fjöldaskotárásin sem framin var í úkraínsku höfuðborginni Kyiv í dag er rannsökuð sem hryðjuverk. Árásarmaðurinn var skotinn til bana. Fjöldi látinna er kominn upp í sex eftir að kona lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Konur eru meira úti við en karlar — borg­ar­bú­ar stunda minni úti­vist en íbúar smærri byggða Lýðheilsustofnun Svíþjóðar birti nýverið samantekt úr könnun varðandi útivist almennings og áhrif hennar á heilsu. Þar kemur meðal annars fram að fólk með hærri tekjur ver meiri tíma til útivistar. Konur eru meira útivið en karlar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Björg­un­ar- og hjálp­ar­sveit­um á Suð­ur­landi gefnar 20 millj­ón­ir króna Þrettán björgunar- og hjálparsveitir á Suðurlandi fengu samtals tuttugu milljónir króna að gjöf frá fjórum stúkum í Oddfellowreglunni á Selfossi. Peningarnir verða nýttir til tækjakaupa. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Gekk vel að ráða nið­ur­lög­um sinu­elds­ins Sinueldur sem kviknaði nærri Vík í Mýrdal breiddi úr sér yfir allt að ferkílómeterssvæði. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Óvið­un­andi ástand í fang­els­um hefur áhrif á störf lög­reglu Plássleysi í fangelsum og slæmur aðbúnaður fangaklefa, undir aðila í gæsluvarðhaldi, hefur áhrif hvort lögregla krefjist gæsluvarðhalds. Í einhverjum tilvikum er jafnvel ekki hægt að tryggja rannsóknarhagsmuni vegna ástandsins. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fram­kvæmd­ir á vegum vegna vind­myllu­flutn­inga Styrkja þarf vegi og breikka beygjur svo að hægt sé að flytja efnivið fyrir fyrstu vindmylluvirkjun Íslands í Vaðöldu. Framkvæmdirnar eru á kostnað Landsvirkjunar. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Lán­leys­ið al­gjört hjá Totten­ham Tottenham leitar enn að sínum fyrsta deildarsigri á árinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma í dag og er enn í fallsæti. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Aukin hætta í fullum fang­els­um og gæslu­varð­halds­fang­ar látnir lausir Lögregla hefur neyðst til að sleppa gæsluvarðhaldsföngum og síbrotamönnum úr haldi vegna þess að fangelsin eru yfirfull. Staðan er sérstaklega slæm og árásir og hótanir gegn fangavörðum færast enn í aukana, segir fangavörður. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Blak HK vann odda­hrinu og er einum sigri frá titl­in­um HK er einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum í blaki eftir að hafa unnið KA í dag. Oddahrinu þurfti til og HK leiðir 2-0 í einvíginu. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Glódís eftir leikja­met­ið: „Ég er ekkert að hætta á næst­unni“ Glódís Perla Viggósdóttir sló leikjamet íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í kvöld. Hún segist ekkert á þeim buxunum að hætta á næstunni. Þá rifjaði hún upp sín uppáhalds augnablik í íslensku treyjunni í gegnum árin. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ut­an­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla byrjar rólega Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hófst í gær. Rúmlega 140 hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Thelma og Ágúst Ís­lands­meist­arar í fjöl­þraut Gerplufólkið Thelma Aðalsteinsdóttir og Ágúst Ingi Davíðsson eru Íslandsmeistarar í fjölþraut í áhaldafimleikum. Thelma vann fimmta árið í röð en þetta er fyrsti titill Ágústar í fjölþraut. 18. apríl 2026 kl. 18:11ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Mach­ado hæst­ánægð með að hafa gefið Trump frið­ar­verð­laun­in Friðarverðlaunahafinn Maria Corina Machado segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa frelsað Venesúela með því að velta Nicolas Maduro forseta úr sessi. Hún segir hann verðskulda verðlaunin og að hún sjái ekki eftir neinu. 18. apríl 2026 kl. 18:01ERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Skaut fimm til bana og tók fjóra í gísl­ingu Tæplega sextugur karlmaður frá Moskvu skaut fimm til bana í höfuðborg Úkraínu í dag. Árásarmaðurinn var felldur eftir að hafa tekið fólk í gíslingu inni í verslun. 18. apríl 2026 kl. 17:49INNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Sinu­eld­ur nærri Vík í Mýrdal Sinueldur kviknaði í brekku undir Háfelli skammt undan Vík í Mýrdal. Slökkvilið reynir nú að ráða niðurlögum eldsins. 18. apríl 2026 kl. 17:46ÍÞRÓTTIR Handbolti ÍBV jafn­aði ein­víg­ið með sig­ur­marki 6 sek­únd­um fyrir leiks­lok Tveir leikir fóru fram í undanúrslitum úrvalsdeildar kvenna í handbolta í dag. ÍBV jafnaði einvígið gegn Haukum í 1-1 með sigurmarki sex sekúndum fyrir leikslok. Valskonur unnu risasigur á Fram og eru 2-0 yfir í einvíginu. 18. apríl 2026 kl. 17:04INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Laus úr haldi eftir að hafa ráðist á kven­kyns leigu­bíl­stjóra Lögreglan handtók mann á fertugsaldri fyrir líkamsárás í nótt. Maðurinn réðst á kvenkyns bílstjóra en var sleppt úr haldi eftir skýrslutöku í morgun. 18. apríl 2026 kl. 16:56ÍÞRÓTTIR Fótbolti Gæsa­húð­ar­mynd­band: Glódís sló lands­leikja­met­ið Glódís Perla Viggósdóttir sló landsleikjametið í fótbolta í dag er hún lék 146. landsleik sinn gegn Englandi. Sara Björk Gunnarsdóttir átti metið. Hér er farið yfir feril hennar. 18. apríl 2026 kl. 16:45ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frið­ar­gæslu­liði drep­inn í Líban­on Frakklandsforseti segir fyrstu vísbendingar benda til þess að Hezbollah-samtökin hafi ráðist á friðargæsluliða í Líbanon í morgun. Franskur friðargæsluliði var drepinn og þrír til viðbótar særðir. Tveir eru þungt haldnir. 18. apríl 2026 kl. 16:16INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Pétur kynnti kosn­inga­áhersl­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar Pétur Marteinsson kynnti kosningaáherslur Samfylkingarinnar í Reykjavík við opnun kosningamiðstöðvar þeirra í dag. Málefni barna eru efst á baugi en framboðið vill líka einfalda regluverk borgarinnar til að auðvelda viðskipti og fjárfestingar. 18. apríl 2026 kl. 15:55ÍÞRÓTTIR Skíði Hilmar og Linda fyrst Ís­lend­inga í Fossa­vatns­göng­unni Erlendir skíðagöngukeppendur urðu í efstu sætum í Fossavatnsgöngunni á Ísafirði í dag. Fremst íslenskra keppenda urðu Hilmar Örn Kárason og Linda Rós Hannesdóttir. 18. apríl 2026 kl. 15:36INNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Ræddu sam­göng­ur á Vest­ur­landi og sjáv­ar­út­veg Vikulokin voru send út frá Borgarnesi þessa vikuna. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræddi við gesti sína um málefni sem brenna á Vestlendingum. 18. apríl 2026 kl. 15:27ERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Fimm drepn­ir í skot­árás í Kyiv – Árás­ar­mað­ur­inn felld­ur Maður hóf skothríð í höfuðborg Úkraínu og yfirvöld segja að fimm hafi verið drepnir. Innanríkisráðherra landsins sagði að árásarmaðurinn hefði verið felldur þegar lögregla reyndi að handtaka hann. 18. apríl 2026 kl. 14:00ÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ísland óð í færum en mark­vörð­ur­inn bjarg­aði Eng­landi Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tapaði 0-1 g

Share this article